laugardagur, maí 31, 2003
Undirbúningur ferðarinnar er dagskrá næstu daga. Fór áðan og keypti svefnpoka í "mini" umbúðum. Einnig skoðaði ég nokkra bakpoka en helvítin í Everest voru búin að lofa nýjum pokum fyrir helgi en það er ekki væntanlegt fyrr en eftir viku. Einnig voru bakpokar sem höfðu verið auglýstir hjá intersportbæklingi, í gámi einhverstaðar niðrá bryggju! En ég keypti smáhluti á borð við einnota regnjakka á 190 kr. (2 stk.) og uppblásið höfuðstatíf til að geta sofið sitjandi í lestum. Sá einn bakpoka sem ég prúttaði niður um 10% sem gæti dugað. 39 lítra poki en ég hef verið að miða við 40-45 lítra. Hann er samt helvíti fínn, hægt að opna allan án þess að rífa upp úr honum fyrst og væntanlega myndi sleppa í stærð. Sef á þessu og måske að ég kaupi helvítið á mánudag. Það var einn "sætur" rauður í útilífi í Smára sem ég hafði reyndar gjóað augunum að en hann kostaði fjandans 14 þúsundkall... Var í gær hjá Birgiri skeggfagra að horfa á verstu mynd í manna minnum. "The Guru" sem er sorp beint frá bollywood Indlandi. Megi leikstjóri, leikarar og aðrir tengdir myndinni drepast úr HABL-veikinni ellegar verða fyrir eldingu og missa vit og rænu! Erik er hættur við að bjóða til veislu í kvöld, en veður hefði nú eflaust hamlað hátíð engu að síður. Þetta gerir hann ásamt því að vera kominn í hungurverkfall til þess að klekkja á nettleika mínum. Megi Veritaz ríða honum í rassgat!
posted by Huginn 8:31 f.h.
|
fimmtudagur, maí 29, 2003
Ég vaknaði á bekk í Reykjavík við það að tveir lögreglumenn voru að ýta við mér. "Djöfull er gott veður" var það eina sem ég hafði að segja við þá. Tók síðan strætó heim á leið og nýt núna samveru skemmtilegs hausverks. Fór óvænt að tjútta í gær. Ætlaði bara að fá mér 2-4 bjóra og var reyndar á mörkum að yfirgefa svæðið eftir 5 bjóra og fara að horfa á ræmu en féll fyrir freistingum Bakkusar og blekkingum um að tugir hreynar meyjar biðu mín óþreyjufullar í bænum. Reyndar endaði ég með því að kyssa einhver húsdýr og hefði eflaust dregið einhvert heim í hellinn ef ég hefði ekki áttað mig á ruglinu og yfirgefið svæðið. Reyndar hellti ég niður á sæta stelpu af Irkinu og hef nú smá leiða yfir því. Veit ekkert hvernig það atvikaðist. Fórum þrír niður í bæ, ég, Baldur rauði og Guðmundur Hörður en týndi þeim báðum. Átti að lána Guðmundi Herði svo þetta var hálfgert klúður. Dansaði við sæta tæju og hélt mig allt kvöldið við aðeins tvo staði, Dubliner og Victor. Það var fámennt í bænum en sagan sagði að ofar á laugarveginum væri meira líf og fjör. Erik tók drama-queen æsing á mig áðan og ég hef ákveðið að sauma saman á mér kjaftinn svo ég bulli ekkert meir í stráknum. Átti að vera saklaust en er nú orðið til þess að hópur kvenna sem hataði mig eitt sinn en var farið að fíla mig sæmilega hatar mig á ný. Einhver myndi segja að þetta þýddi að ég væri kominn á byrjunarreit og ég túlka þetta sem svo að hlutirnir séu aftur orðnir "eðlilegir". Þeim er eðlislægt að hata mig þessum telpuhnátum og verði þeim af góðu!
posted by Huginn 12:54 e.h.
|
þriðjudagur, maí 27, 2003
Kakan mín var vægt til orða tekið, ÓGEÐSLEG! Útlitslega séð var þetta ein stór slepja og bragðaðist einnig sem slík. Reyndar æt en ekkert meira en það. Síðan fengum við tveir í magann, einn stíflaðist og sat uppi með svarta manninn lengur en góðu hófi gegnir og engar sögur fara af hinum tveimur. Þeir eru taldir af! Annars hef ég verið á fullu, fór og aðstoðaði faðir minn við að mála í dag og var allur í hvítum flekkum í andlitinu. Djöfull var ég sexy í verkamannagallanum með þetta írska skegg! Hlupum og fórum í sund eftir vinnu, ég og Gummi netti. Við höfum okkur ýmislegt til dundurs og einn leikurinn gengur út á það að spjalla við starfsfólk sundlaugarinnar. Við tölum alltaf um hana Auði gellu við alla starfsmennina en þekkjum hana reyndar ekki neitt. Vitum orðið allt um vaktirnar hennar, að hún kenndi ballet og er "ofsalega góð stelpa". Núna er bara spurning um hvenær spilaborgin hrynur og hún fari að spyrja okkur hvaða þvæla þetta er í okkur við alla hina starfsmennina. Gæti reyndar líka verið nett að byrja upp úr þurru að nefna hana með nafni... en ég skal láta ykkur fylgjast með framvindu þessa bráðskemmtilega leiks...
posted by Huginn 5:26 e.h.
|
sunnudagur, maí 25, 2003
Nýjasta vitleysan er kökuklúbbur hjá okkur vinunum. Ég þurfti að baka í dag og notaðist við fyrstu uppskrift sem ég fann á netinu. Svokallaða "bounty bombu". Tveir botnar með súkkulaðibitum og kókosmjöli tókust vel en helvítis ísinn frosnaði ekki í tæka tíð svo við þurftum að fresta kökukvöldi til morguns! Annars hljóp ég og synti í dag líkt og aðra daga. Orðinn asskoti brúnn og sællegur í útlitinu nema hvað að skeggið er orðið sjúskað. 10 dagar í brottför að ég held og aðeins eitt djamm eftir á klakanum! Ég er þegar farinn að bjóða ókunnugu fólki í partýi hjá Eriki "nettari, nettastur" og hann virðist kátur með það enda um kvenfólk að ræða. Veit nú ekki hvort af því verði, sjáum til en strákurinn er fluttur í nýja íbúð og er að koma sér fyrir. Þetta setur pressu á mig þar sem hver kunninginn á fætur öðrum er farinn að flytja að heiman. Tilhugsunin ein og sér gefur mér magapínu og flóðmigu er linnir ekki fyrr en ég lofa sjálfum mér að flytja ALDREI frá hótel mömmu. Ég var að fá fréttir af því að Chloe fyrirsæta hefði látið hafa sig af fífli með því að fara nakin í prufu fyrir einhvern sjónvarpsþátt sem var bara gabb og vinirnir eru að redda myndbandinu. Verður "fróðlegt"!
posted by Huginn 3:58 e.h.
|
laugardagur, maí 24, 2003
Djöfull engdist ég um af kvöl þegar við keyrðum niður laugarveginn og angi tjútts lág í loftinu. Dauðlangaði að djamma! Troðfullt í bænum og ótakmarkað magn af fallegum og útúrdrukknum kvennmönnum! Þetta kom hormónaflæðinu á stað og gerði mig snælduvitlausan. Eurovision var ágæt en eftir það horfðum við 5 kunningjar á Oldschool og hlógum okkur máttlausa! Keyrðum þrjár ungar telpur í bæinn og ein fór attur heim. Ég þarf væntanlega að fara til prests og skrifta því losti og ósiðsamar kenndir gerðu vart um sig í líkama mínum, djöfullinn náði tökum á mér og helst langaði mig til að rífa af litlu telpuhnátunni fötin og eiga við hana mök í aftursæti bílsins. En Joga sjálfstjórnun kom að verulegu gagni í stöðunni. Fyrr um daginn hafði ég hlupið, pumpað og synt örlítið. Eftir það át ég yfir mig í veislu systur minnar. Á morgun stendur til að fara í sund með Gumma netta og jafnvel að Erik komi líka ef hann verður ekki upptekinn við flutninga. Ekki eitt einasta símtal í dag útaf auglýsingu sem ég taldi mig hafa sett í DV! Það er sorglegt en satt!
posted by Huginn 9:15 e.h.
|
föstudagur, maí 23, 2003
Angi af sokkunum er að drepa mig! Sjaldan sem maður finnur eigin táfýlu þegar býfurnar eru eins fjarri andlitinu og þær komast. Þetta er vísbending um að innan nokkurra daga þurfi ég að skipta um sokka svo þeir fari ekki að harðna af storknuðum svita. Í kvöld eru grannar meyjar að dilla sér og á morgun syngur indjáninn Birgitta í Eurovision. En þetta eru hænuspor samanborið við þá byltingu sem átti sér stað í myndlist í gær. Ég málaði mynd á rúmum klukkutíma sem verður útskriftargjöf til systur minnar. Og þetta er ómengað hreint og fagurð meistaraverk þó ég, hinn hófsami, segi frá. Ásamt málverki laumaði ég 25.000 kalli í pakkann og græt nú sáran alla þá subway báta sem ég mun aldrei fá að kynnast sökum þessarar blóðtöku! Sumarstarfsmaður í sundlaug Garðabæjar kemur sterkur inn, gullfalleg ung stelpa sem fær hold mitt til að rísa. En að henni undanskylinni virðast eingöngu einstæðar mæður með babies og tólf ára stelpur sækja laugina! Erik hefur látið eins og hin versta dramaqueen undanfarna daga og fær drama-queen-bikar um jólin! Ég sötraði fáeina bjóra í gær, varð merkilega vitlaus af litlu áfengi. Ræddi við eina sænska sem einhverra hluta vegna skilur ekki dönsku! Olli Stebba löggu vandræðum með því að éta 1/3 af staurnum hans, henda 1/3 í götuna og kremja restina. Bauð honum í dag upp á Subway til sárabóta en hann sagði þetta vera ekkert mál og óþarfi að gera úlfalda úr mýflugu. Ja, ég gerði allavegana freyju staur að engu! Fór á VBS gamla vinnustaðinn í dag og hitti þar fyrir margt gott fólk auk þess að rekast á hann Ágúst taðskeggling, sem er kvenmaður í karlaveröld, og sá varla hvar ég endaði og hún byrjaði sökum ásta okkar á milli. Megi guð vera honum náðugur!
posted by Huginn 10:10 f.h.
|
miðvikudagur, maí 21, 2003
Mig langar til að þakka Erik Edward og Birgiri Keisara fyrir óeigingjarnt starf. Þeir munu vinna baki brotnu alla daga í allt sumar svo draumurinn minn megi verða að veruleika. Ég mun fá greiðslur frá ríkinu í sumar fyrir að vera í atvinnuleit í evrópu og þeir borga brúsann með sköttunum sínum! Takk takk litlu englarnir mínir... Í dag fór ég að vanda í joga og í þetta sinn þurfti ég ekki að sitja undir tá- og svitafýlu af gumma netta sem gerði þetta af einstakri upplifun. Ætlaði mér að synda en loft og vatn lyktaði af einhverjum viðbjóði sem verkamannaskríll var að sprauta á byggingu þarna við hlið sundlaugarinnar. Hætti í miðjum kliðum eftir 8 ferðir og dreif mig uppúr. Sat á súfistanum og ræddi um bakpokaferðalög við Val Grettisson sem hefur víst farið í mánuð og spólað þvert og kruss um evrópuna. Það var ágætt alveg. Fór í svokallaða ævintýraferð með lilla bró, spiluðum tölvuleiki í BT og fengum okkur ís. Annars eru stóru tíðindi dagsins útskrif systur minnar á laugardaginn. Afhverju hélt ég aldrei upp á stúdentsveislu? Gæti reyndar verið tengt ófáum léttrugluðum uppákomum sem ég hélt sem formaður nemendafélagsins sem endaði með brottvikningu minni eftir atburði á borð við Óðals-ferð, MK rútuferð með tilheyrandi viðbjóði, ósiðprúð bjórkvöld og teiti innan veggja skólans. En helvíti er nú farið að gefa í þessum veislum. Ég mun punga út einhverjum 25-30 þúsund kalli og afhenda systur minni sem reiðufé. Reyndar veitir henni af, hún þarf jú að byggja heilt everest inni í herberginu sínu úr fatahrúgum og ekkert sjálfsagðara að bróðir hennar ástkær standi á bak við þá aflraun. Jú, viti menn, hún þarf á þessu meira en ég, sýnist allt stefna í drjúgan ferðasjóð þrátt fyrir að ég hafi tapað einhverjum 300þús. kalli á hlutabréfabraski! Ef bíllinn selst á skítsæmilegum prís verður sjóðurinn vonandi góð milla! Það ætti að duga í fyllerí eða tvö...
posted by Huginn 1:20 e.h.
|
þriðjudagur, maí 20, 2003
Ég naut fullkominnar einveru með sjálfum mér í dag. Ég vaknaði einn, ég fór að útrétta einn og samkvæmt reynslu síðustu vikna og mánaða fer ég að sofa einn! Það er eins og heimurinn hafi snúist á hvolf. Ég elska ekki einusinni skeggið mitt lengur! Óskar VBS fyllibyta er hættur að sumbla og ég ákvað að liggja nakinn úti í garði í sólbaði! Já, jafnvel að ég hafi samband við einn af fjölmörgum geðveikum kunningjum og geri eitthvað, í félagsskap einhvers, í kvöld. Já, var nú búinn að lofa Huldari "film-maker" að kíkja í bíó, væntanlega hringi í hann. Ég er að átta mig á þeirri staðreynd að mái er að líða undir lok og aðeins fáeinir dagar í brottför... en að öðru, hef eiginlega verið með samviskubit að fjalla ekkert um gamla akstursníðinginn sem ég lenti í um daginn. Það var þannig að ég og kunningi vorum að fara í ríkið, ætluðum að sækja bjór og svo McDonalds og fara upp á Esju í brjálæðu roki og njóta afurðanna. Þá skyndilega í miðju símtali hjá mér er klesst lauslega á mig. Ég löngu orðin vanur smá strokum og hættur að nenna að fara út og gefa fólki sjens svo ég bara keyrði aðeins áfram og hélt bara áfram að tala í símann. Þá bara keyrir sami bíll á mig aftur! Ég hreinlega trúði þessu ekki fyrr en ég stóð út úr bílnum og sá bílstjórann. Þetta var vel á 100 ára gömul kona, augljóslega sjóndöpur og viðbragðslítil. Hún blés kinnunum inn og út í sífellu líkt og hún hefði tapað allri glóru fyrir góðum áratug síðan. Ég fór og leit á rispurnar en veit ekki fyrr en hún reykspólar yfir kantinn og í burtu upp hverfisgötuna. Gamla konan stakk mig af! ...og ég ætlaði ekki að geta hætt að hlæja. Þetta veitir mér enn mikla ánægju og skrifa ég nú með bros á vör. Þetta stoppaði okkur þó ekki í því að fara illa til fara, húfulausir í joggingalla upp á Esju í skítakulda og éta ískaldan McDonalds og súpa á bjór. Frábær dagur og gott að hafa getað deilt þessarri endurminningu með ykkur.
posted by Huginn 11:45 f.h.
|
mánudagur, maí 19, 2003
Kauphöll Íslands riðar til falls! Þetta ætti ekki að koma þeim á óvart sem þekkja til markaðarins. Það vill svo skemmtilega til að ég, "market-maker" verðbréfamiðlari, hætti einmitt að starfa síðustu mánaðarmót. Orð mín hafa nú ræst, þegar ég sagði að "Hrun blasir við markaðnum þegar ég hætti". Þessi félög sem nú afskrá sig hafa séð fram á að velta myndi verða nánast engin eftir að stórlaxinn Huginn hvarf af markaðnum. Ég er ómissandi!
posted by Huginn 1:07 e.h.
|
Ááii, hálsinn á mér! Þessi joga er farinn út í öfgar þegar kellingin lætur mig lyfta búknum upp með hausnum! Og til að auka á vesæld mína mættu tvær gellur ekki í joga tímann í dag. Ég var í sundi að taka eftir nýjum margblettum víðsvegar um líkamann og einn var blóðþrútinn, stór og sællegur. Í sundi voru einungis gamlir kallar á nærbuxum í stað sundskýlu svo ekkert augnakonfekt fyrir litla prinsinn í dag. Núna eru tæpar þrjár vikur í brottför og ég hef akkurat ekkert skipulagt mig. Á eftir að útvega mér bakpoka, fara yfir ferðaplan og svo mætti lengi telja. En þess í stað hef ég ákveði að eyða deginum í afslöppun til að verðlauna mig fyrir átakanlegt fyllerí helgarinnar. Núna verður ekki snert hann bakkus nema kannski 1. júní áður en ég fer út vilji svo til að Erik Edward standi fyrir innflutningspartý. Gummi netti heldur því fram að ég sé barnanýðingur þar sem ég í sundi aðstoðaði lítinn strák við að reima skýluna. En það sem hann veit ekki er að fyrir þetta fer ég til himnaríkis og hann til helvítis!
posted by Huginn 9:18 f.h.
|
sunnudagur, maí 18, 2003
Og Icelily spyr um stærð rúmsins; Jú, það er 183 * 213 "nákvæmlega" og ekkert mál að leyfa þér að prófa! Ætlaði nú að forvitnast um telpuna á tenglinum en það er eitthvað bilað. Prófa síðar...
posted by Huginn 10:44 f.h.
|
Puff, engin þynka? Er líkaminn loksins farinn að sætta sig við misnotkunina? Ég vaknaði í sófa hjá Gumma netta með annan prins liggjandi á golfinu fyrir neðan mig. Hringdi í Erik Edward og vakti til að fara með okkur á McDonalds sem var ljúfur biti. Minningar gærdagsins fóru svo að sækja á okkur. Ég hafði verið að dansa við stelpu og bókstaflega flogið á hausinn! Hendurnar eru sundurskornar eftir að við breyttum miðbænum í stríðs-zone sem hófst með því að kunninginn tók "drullu" þungan sívalning og grýtti í mig. Þeirri árás var að sjálfsögðu svarað. En að þessu undanskyldu þá var þetta mjög gott djamm. Skemmtilegt, spjallað við margan manninn og reyndar nokkrar fallegar telpuhnátur. Systir mín hitti mig í bænum og vill meina að ég hefði verið verulega ölvaður. jæja, svo var ég að dansa "grúúví" við einhverja telpuhnátu þegar ég áttaði mig á því að vinkonan væri betri gripur og fór þá að færa mig milli kvenna. Það hefur nú eflaust lagst misvel í þær vinkonur... Núna er verið að grilla svo ég ætla að snáfa niður í mat!
posted by Huginn 10:40 f.h.
|
föstudagur, maí 16, 2003
Hvaða fallega mynd er þetta af ungum dreng með undursamlegt rauðmorkið skegg? Ef ég væri kvenmaður myndi ég ekki halda vatni yfir þessum litla prinsi, það er deginum ljósara :) Ekki var nú mikið varið í föstudagskvöldið en á morgun fer ég í afmæli hjá kunningja og þá verður nú sötrað og leitað á kvenpeninginn. Í höfðinu bergmálar málsháttur sem ég fékk í páskaegg um daginn "sá er sæll er sínu ann" held ég að það hafi verið. Veit nú ekki tilhvers í andskotanum ég var að draga þessar upplýsingar upp í dagsljósið en ætli ég geri ekki passlega ráð fyrir því að lesendur vefsins séu eyrðarleysingjar og aumingjar líkt og ég sjálfur og séu í miðjum kliðum við að sanka að sér ónothæfum og gagnlausum upplýsingum. Ég er farinn í háttinn í tómlega ofvaxna rúmið mitt. Nær væri að verma beddan með tveimur nöktum prinsessum. Komi þær ekki sjálfviljugar dreg ég upp veskið!
posted by Huginn 7:27 e.h.
|
Ég var rétt í þessu að snæða Dominos margarítu og brauðstangir ásamt unaðslegum trópí. Ég sast svo á dolluna og losaði mig við kolsvartan eingetinn son minn sem ég drekkti í klósettinu. Það var honum og öllum öðrum fyrir bestu! Hverskonar líf er líf svarta mannsins? Annars sit ég nú á bókasafni Hafnarfjarðar eins og sannkallaður róni, með sjúskað hári eftir göngu upp í hesthúsahverfi og aftur niðrí bæ, lykta sem hrossatað og hef illgresi framan í mér. Verður lífið einhverju betra??
posted by Huginn 10:14 f.h.
|
Spjallboxið er lifandi vitnisburður um það að ég á geðveika vini. Og reyndar líka hve Erik netti er nettur! Annars hef ég takmarkaðan tíma í dag fyrir netið, þarf að fara í sund og ljós núna! Já, verið að undirbúa húðina fyrir eintóma misnotkun í útlandinu. Síðan tek ég á móti hópi ungra drengja klukkan 14:00 og læt þá hlaupa í hringi í um hálftíma þegar ég losna við þá attur. Þetta er eina ábyrgðarhlutverkið sem ég hef tekið að mér í langan tíma og er satt best að segja kvíðinn. Hvort ég í raun valdi því að taka að mér nokkurn skapaðann hlut... Ég er vakinn í kringum 3-4 sinnum hvern einasta morgun! Fólk er að læsa sig úti, fólk er að fá lánaðann bílinn, fólk er að garga fyrir utan hurðina! Svo vakna ég upp fyrir allar aldir (11:00-12:00) eins og lúbarinn biskup og hefði allt eins getað sleppt því að fara í háttinn! Annars vil ég bara hvetja þá áfram í lífinu sem þurfa að vakna til vinnu hvern einasta dag... hlýtur að vera sérstök tilfinning að eyða 2/3 af deginum í að láta sér leyðast. Tilfinning sem ég hef nú gleymt með öllu!
posted by Huginn 4:36 f.h.
|
miðvikudagur, maí 14, 2003
Hvað er eiginlega klukkan? Ég geri orðið engan mun á nóttu og degi, þetta rennur allt saman í eitt stórt feitt chill! Er að farast úr eyrðarleysi akkurat núna. Hef verið að velta því fyrir mér hvort fyrir finnist kvendýr homo sapiens sem ber þrjá kosti; greind, fegurð og að vera áhugaverð. Margar hafa jú fegurðina, sæmilegur fjöldi kvenna eru skemmtilegar og/eða áhugaverðar á einhvern hátt en hvar er greindin? Ég óska hér með eftir því að einhver hugsandi vera (þá karlmaður auðvitað) bendi mér á konu sem uppfyllir þessa kosti, jafnvel þó það væri ekki nema bara greindina. Þá er ég auðvitað ekki að tala um greind, samanber bókagreind, heldur raunverulega greind. Þar sem kvenmaðurinn getur hugsað og skapað sjálfstætt, þar sem kvenmaðurinn getur tekist á við mig í hugarleikfeimi á öllum sviðum og haft mig undir! Nei, fjandinn, þetta voru bara draumórar sem best er að grafa og gleyma. Ég er greinilega kominn með svefngalsa og ætti að eyða þessu út en vegna kæruleysis ætla ég að birta þennan viðbjóðslega hugrenning minn. En víkjum að öðru, það ku vera einhver mella sem skrifar undir mörgum nöfnun í chat-boxinu! Hef reyndar ekkert meira um það að segja...
posted by Huginn 6:34 e.h.
|
Asskotans misnotkun! Ég var látinn strauja rétt í þessu eigin klæðnað! Hvar er réttlætið í þessum grámyglaða bölvaða heimi? En Jogo yfirvegun og andleg sjálstjórn hjálpar mér við að takast á við slíka misþyrmingu. Ég fór í 3 tímann í "krippalo" joga í dag og lærði ankannarlega samfarastellingu. Þetta endar með allsherjar orgíu þarna í tímunum ef fer sem horfir, hún stynur líka í takt við þessar hreyfingar kellu-anginn. En það eru nú reyndar 1-2 mjög fallegar stúlkur þarna að sprikla. En hverju breytir það, maður má bara horfa, ekki snerta! andskotinn að geta ekki verið í frumskóginn hlaupandi um nakinn og fá að ráðast á fyrsta kvonfang og taka það með valdi. Heimur versnandi fer! Jibbí, hingað hefur slysast inn ung dama að nafni Rakel sé ég á spjallinu, henni er hér með boðið í faðmlag í heimahúsi undirritaðs...
posted by Huginn 10:28 f.h.
|
mánudagur, maí 12, 2003
Djöfulsins harka! Ganga, hlaup, jóga, sund, meiri ganga, fótbolti og svo hóstakast sem reynir jú á líka! Ég hef aldrei lifað heilsusamlegra lífi en akkurat núna í eyrðarleysinu, og er að koma heim til mín eftir miðnætti! Hvar hefur þessi paradís verið allt mitt líf? Annars fátt að frétta, ég fór á kosningatrítl, reyndar einhver ergja í mér þar sem helvítin í framsókn keyptu sér 8-10% á lokasprettinum með auglýsingum sem þeir dældu í fáfróð íslensk ungmenni! Þannig byrjaði þetta sem 10 manna partý heima hjá mér sem breyttist í skrílslæti áður en ég vissi af, öskrandi og gargandi héldum við á leið niður í Samfylkingarpartý í Hafnarfirði, þar byrjaði ég sallarrólegur á því að grípa sígarettu úr munni einhvers, kasta henni í jörðina og traðka á henni. Vildi með þessu væntanlega kenna manninum góða siði. Eftir þetta var haldið í kosningateiti Frjálslyndra þar sem fyrir mér varð einhver mesta gella landsins sem kom einmitt í djúpu lauginni fyrir fáeinum föstudögum. Það var rætt við hana, vinurinn gaf henni rós frá mér og svo ætlaði ég að gefa henni aðra rós en þá var sú hangandi dauð! Heppnin eltir mig ekki uppi! En eftir þetta skoðaði ég jesúmynd á barmi kvennmanns, heilsaði nú upp á jesú kallinn og slíkt hið sama gerði kunninginn, komst á sjens hjá henni en klúðraði þar sem hann er svo nettur! Ég var sorglegur á hinn bóginn, ekkert að gerast, hitti reyndar viðskiptafræðing sem vil hitta mig á kaffihúsi fljótlega en hvað veit ég í minn haus, já, akkurat ekki neitt! En ætli maður láti ekki til leiðast, hef ekkert betra að gera en er nú eitthvað að hitta aðra en hvað sakar það að skoða úrvalið áður en maður festir ráð sitt? Jæja, þó er nú enn of rólegt í kvennamálunum, en þetta er svona upphitun ætla ég að vona. Annars er planað á morgun að hlaupa, kíkja jafnvel í fyrsta skipti á ferlinum í ljós til að undirbúa húðina fyrir ferðalag suður á bóginn en þetta kemur allt í ljós á morgun!
posted by Huginn 6:33 e.h.
|
föstudagur, maí 09, 2003
Ég vil vinsamlegast biðja Erik um að hætta öllum perraskap á síðunni!
posted by Huginn 10:42 f.h.
|
Ekkert nema púl í allan dag. Vakna eldsnemma eða um klukkan 11:00. Þá fer ég beint á hlaupabrautina en sökum veikinda og aumingjaskapar kemst ég eingöngu fáeina hringi og mása mikið. Þarf augljóslega að koma mér í form. Þaðan held ég í föruneyti með "netta" og förum í sund. Syndi 14 ferðir en ákveð að taka ekki minna en 20 ferðir næst. Í gufunni hreinsaði ég nef og kok og þótti góður fyrir vikið. Er reyndar með hellur og hef verið í allan dag en það sparar mér athygli í alla vitleysuna í kringum mig. Þar eftir er farið á Subbway og morgunmatur snæddur um 14:30. Vondur var hann í þetta sinn en ég þambaði tvo stóra Trópi! þá var bara setið í hálftíma og svo þurfti ég að fara að stússast í fjölskylduhátíð Samfylkingarinnar. Að blása upp blöðrur er það eina sem mig rámar í. Svo er ég núna loksins kominn í smá break en á að mæta á helvítis fund klukkan sex! Spurning um að gleyma því, jáá, ég fæ ekki upp eina ástæðu afhverju ég ætti að mæta. Og jú, keyrði fram hjá unga íhaldinu í hafnarfirði sem var aðopna skrifstofuna sína og rak út fingurinn og bibaði sem óður væri. Þeir skyldi boðskapinn og voru aðeins hálfir menn eftir. Núna sit ég upp í Háskóla Íslands með tveimur feitum drengjum og íhuga hvurn andskotann ég eigi að gera. Hvort ég eigi að bera út samfylkingarblöðin sem ég átti að klára í síðustu viku eða hvor ég jafnvel bíði með það fram yfir kosnignar, væri svoldið kómískt. Jafnvel að ég bara geri ekkert í tilefni að því að það er kominn laugardagurinn og vinnu lauk jú stundvíslega klukkan 17:00?
posted by Huginn 10:42 f.h.
|
fimmtudagur, maí 08, 2003
Eftir að Davíð Oddsson (nickname: bláa höndin) tók mig tali (persónulega!) hef ég ákveðið að láta af skrifum um pólítík! Ég biðst velvirðingar á að vera til. Þar sem ekki neitt hefur rekið á daga mína hef ég frá engu að segja. En talandi um pólítík, ég hitti einhvern furðufugl áðan sem sagði mér að Vinstri grænir styddu Talibana. Ég þurfti að láta hann endurtaka þetta 8 sinnum fyrir mig áður en ég kveikti á perunni. Þá vildi fuglinn meina það að þeir styddu talibana þar sem þeir væru á móti stríði. Jaa.. þetta var hressilega leiðinleg saga hjá mér! Svo fyrir ykkur börnin, þá er ég að skipuleggja fjölskydluhátíð Samfylkingarinnar í Hafnarfirði sem er á morgun og þar gefum við pylsur, drykki og bjóðum upp á skemmti- og tónlistaratriði! Allir velkomnir, líka íhaldsdjöflar! Sumum fylgjendum íhaldsins sem hafa ekki skoðun á pólítík og kjósa þessvegna Sjálfstæðiselítuna eru svo hræddir við breytingar að þeim væri nær að loka sig ínni í skáp yfir kosningarnar og koma út að þeim yfirstöðnum, eins og maður lokar hundinn inni á gamlárskvöld því hann verður snælduvitlaus yfir öllum látunum í rakettunum. Jæja, þetta voru mín síðustu skrif um pólítík og ég biðst enn og aftur velvirðingar á tjáningarfrelsinu Dabbi minn miklu kóngur!
posted by Huginn 2:25 e.h.
|
Mandla, æjj,, Er þetta hún Ásta vinkona sem ég gleymdi að gefa möndlur áður en ég hætti :/ andskotans vesen var það. Svona er ég heimskur drengur. En ég svík nú ekki gefið loforð og mun því koma með möndlu við fyrsta tækifæri, eða öllu heldur 19. maí þegar nýja gellan byrjar að vinna, þá mun ég koma nýrakaður og sætur og smella einum blautum frönskum kossi á dömuna. Svo aldrei að vita hvað við gerum í lokuðu fundarherberginu! Afhverju Samfylkinguna, jú, það skal ég segja þér. Fyrsta og ríkasta ástæðan liggur í skattalækkunartillögunum sem eru hófsamar en þó skynsamlegar. Þar er ekki verið að ausa milljörðum í þá sem nóg hafa milli tannanna í dag (þó ég hefði nú hag af því að skattprósentan yrði lækkuð meira) þá er verið að afhenda öllum hnífjafnt! 10.000 kr. nákvæmlega sem hver íslendskur launamaður fær í sinn vasa. Þarna sker Samfylkingin sig úr frá öðrum flokkum og ég sem réttsýnn maður sem trúi á það að samfélagið þurfi að bjóða öllum mannsæmandi lifibrauð og lífsskilyrði hugsa ekki bara um sjálfan mig því þá myndi ég sem (eða var hið minnsta) hálaunamaður kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Ingibjörg gengur lengra en Davíð Þursi í hugmyndum sínum um frelsi atvinnulífsins þegar kemur að stjórnmálamönnum. Afskipti ríkisvaldsins fari eingöngu í gegnum til þess gerðar stofnanir eins og samkeppnisstofnun en ekki sé um að ræða árásir forsætisráðherra og annarra stjórnmálamanna á einstök fyrirtæki. Þetta er réttsýn og skynsamleg hugsun. Þó get ég viðurkennt að sjávarútvegsstefna Samfylkingarinnar er ansi völt, og þannig vil ég núverandi kerfi með einhverjum leiðréttingum enda var þetta gríðarlegt óréttlæti á sínum tíma þegar kvótinn var afhentur greifum og þá sérstaklega þegar síðar var samþykkt framsal kvóta! En nóg af pólítik! Úldna hér að innan að hlusta á sjálfan mig ...
posted by Huginn 10:29 f.h.
|
Núna geta þeir fáu gestir sem hingað koma smellt inn fúkyrðum til mín í gegnum skilaboðaskjóðu. Ætli ég reyni ekki að setja fleiri spennandi fídusa inn fljótlega til að endurspegla í verki eyrðarleysi mitt. Hef ekki löngun til að skrifa meir..
posted by Huginn 6:59 f.h.
|
miðvikudagur, maí 07, 2003
Æjj, ætlaði að fara að skrifa en þá kom kall náttúrunnar og ég er að fara í stuttan bíltúr með stelpu. Djöfull er ég búinn að fá leið á öllu kosningasullinu, 2 fundir á dag! Verið að þræla litla stráknum út. En þetta þýðir að ÞÚ lesandi góður, þó ekki sé fyrir málefnin heldur bara þær þjáningar sem ég hef þurft að ganga í gegnum, þá verður þú að setja X- við Samfylkinguna á laugardaginn 10 maí... æjj, fjandinn, þetta var plebbalegt ... bú!
posted by Huginn 2:38 e.h.
|
Þetta er rosalegt. Hérna sit ég og er að sækja um joga tíma. Ekki víst hvort það sé laust en ef svo er þá mun ég fíla mig sem heimsklassa ballerína og trítla hérna út á tánum. Þetta morgunbrölt mitt tengist því að ég er að fara erlendis og þarf að tryggja mér ákveðin réttindi ef ég finn enga vinnu þar... mikil snilld að hljóta greiðslur fyrir það að hanga úti og finna enga vinnu. Hef í raun ekkert fleira að segja nema þessa stundina berst ég í bökkum við að halda horrennslinu frá hormottunni (skegginu) þar sem flensan hefur hrjáð mig af miklum krafti undanfarna daga en þó þannig að ég er á þeysingi út um allt en helst höfuðfatið sem er hrjáð, sjúskaður í kringum augun og horrennsli eins og áður sagði. Jæja, nú er ég búinn að fá leið á þér lesandi góður...ef vera skyldi að einhver læsi þetta þar að segja.
posted by Huginn 3:47 f.h.
|
þriðjudagur, maí 06, 2003
Dagurinn í dag hefur verið eins og dagurinn í gær... rólegur. Ég hef farið einu sinni út úr húsi á stuttan fund en passaði mig á því að fara rakleytt heim attur til að sinna minni nýtilkomnu netfíkn sem þarf stöðuga aðhlynningu. Reyndar plan að kíkja til kunningja er ber skegg sítt og fagurt en þó ekki sjón að sjá m.v. illgresið er vex framan í mér þessa dagana. Þar mun ég reyna, annan þriðjudaginn í röð, að angra hann yfir Boston Public og blóta sápuóperum til helvítis. Svo þarf ég að vakna á morgun, það setur allt plan á annan endan, ég var búinn að skipuleggja svefn alla vikuna og svona fyrirvaralitlar breytingar eru til þess að kollvarpa andlegri heilsu minni. Ég mun berjast gegn breytingum á tilveru minni með klóm og kjafti eftir 10. maí, því þá á ekkert, já EKKI NEITT að koma í veg fyrir algjörlega litlausa daga, dag eftir dag eftir dag... akkurat ekkert á dagskrá.
posted by Huginn 1:45 e.h.
|
mánudagur, maí 05, 2003
jaa, sko strákinn, þetta skíta blogg virðist loks hafa virkað en fyrsta tilraun mín með bloggsíðuna nettastur.blogspot.com er enn eitthvað bjagað og spurning hvort ég hafi klúðrað þessu svo herfilega að slóðin sú arna sé töpuð að eilífu. Það ku ekki leggjast vel í hann Gumma netta sem átti réttmætt tilkall til nafnsins og nettleikans heilt yfir! Andskotinn... hvað á ég að gera af mér í nótt að undanskyldri laumu-næturdrykkju og að kippa í? Skyldi það verða heimildarmynd um Hitler eða "Passion Desert" ljósblá kvikmyndi frá um 1980 sem ég keypti á 790 kr. í fyrradag og er þegar farinn að naga mig í handabakið fyrir. Þar sem ég er hættur að vinna og fæ enga feita tjékka lengur um hver mánaðarmót verður skipuð þriggja manna nefnd til að samþykkja einróma alla eyðslu frá minni hendi frá og með þessum kolsvarta viðbjóðslega degi. Fyrr skal ég skítur vera (tilvísun í ákveðið litarhaft manna) en að leyfa mér munað næstu daga og vikur þar sem pening þarf að spara fyrir útlandið sem hefst líklega 30. maí en gæti þó dregist þar til 15 júní ef Veritaz lofar. Ef vera skyldi að þú sért í sakleysi þínu að ráfa inn á þessa síðu og hefur einhverra hluta vegna álpast til að lesa þennan texta ertu vinsamlegast beðinn um að fara! Annars bið ég þig bara vel að lifa!
posted by Huginn 6:10 e.h.
|
Andskoti er nú gaman að vera kominn með blogg, mig langar helst til að falla á kné eins og lítil smástelpa og byrja að væla.
posted by Huginn 5:58 e.h.
|
|
Myndir
Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco
|