sunnudagur, nóvember 30, 2003
Kalkúnapartý Eriks på laugardag
Fríður hópur mætti í gómsætan kalkún hjá Rikka kallinum sem má eiga það að hann kann að elda. Sagan segir að ég hafi látið illa en minnst man ég sjálfur. Færði Erik gjöf, "farands-Huginn" og "farands-gumma". Tvo jólakalla sem ég hafði búið til í jólaföndri stórfjölskyldunnar hjá ömmu fyrr um daginn. Þá mun hann ekki sakna okkar meðan við störfum í þágu bágstaddra í Sviss. En varla að hann sakni okkar mikið eftir hegðunina í partýinu. Komum með miklum látum inn, Birgir kenndur við Vesti og mar í andliti, fékk strax klíju af mér og lét það óhikað í ljós. Var ei bjór sýnilegur er ég mætti en það breyttist fljótt. Þegar bjórinn þraut hófst gegndarlaus tekíla drykkja. Staupað sig með hálfri flösku og var orðinn snarruglaður og margsinnis reynt að fela flöskuna! Fólk að reyna að spila "Partýspilið". Fólk í veislunni; Helgi og Anna sem er óð í að bjóða mér ókeypis kakó á súfistanum, Ingvar og Margrét sem gekk í kvennabandalag með mér, Gummo og Rebekka sem einnig var í kvennabaráttunni og heyrði mig segja "Gummi er að fara að riða Rebekku" þegar verið var að fara yfir hverjir ætluðu í bæinn. "Ég heyrði þetta, þú talar svo hátt" sagði skvísan. Já, ég var orðinn drepleiðinlegur enda vissi ég minnst! Síðan einstæðingar, Egill fagri rokkari er fór ekki sömu hamförum og í síðustu thanxgiving veislu þegar hann kláraði hálfan kalkúninn einsamall. Biggi var ekki sáttur við brandarabókina sem ég hafði með mér þetta kvöldið og mun ég þurfa að vinna sáttir við húmor drengsins á ný. Tannstöngullinn, sem Erik var búinn að teipa saman frá síðasta skeipi á mér, brottnaði hjá Rikka kallinum. Gummi tók "Tits-twistið" á E og Erik eipaði, sparkaði og kýldi strákinn og sagðist vera búinn að fá nóg. Helgi flúði víst líka helvítis ofbeldi þetta kvöld, aðrir fóru sökum hversu leiðinlegur drengur ég var. Eftir þetta skeip Eriks fór ég og Hallur niðrí bæ, drukkum fáeina bjóra, ráfuðum milli staða og ég kynnti telpur fyrir Halli. Fór síðan heim að lúlla einsamall í taxa um sjöleytið í morgun.
Strípilingur í sundi
Vika er liðin frá því að við sáum gaurinn kippa í í sundi. Fórum attur í laugina og gaurinn er mættur eldhress. Hlógum eins og fífl en mér tókst einhvernveginn að týna lyklinum og var að leita að honum þegar ég lyfti upp einhverju grænu laki þarna. Gaurinn hljóp til og sagði "Þetta er mitt" en tooo late! 6-7 tippahringir hrundu útum allt golf og ég gekk í burtu hlæjandi eins og mesta fífl. Djöfulsins viðbjóður er þetta! Svo þegar við erum búnir í lauginni komum við aftur inn, gaurinn sitjandi með græna lakið sitt nakinn í stólnum, með uppsett gleraugu að lesa moggann! Hvað gengur þessum manni til???
posted by Huginn 1:27 e.h.
|
föstudagur, nóvember 28, 2003
Usss.. hvað líf mitt hefur verið leiðinlegt undanfarið! Nákvæmlega ekkert tilefni til bloggs í heila viku! Myndir frá hvalapartý og fánabrennu eru komnar inn á netið en verða einungis birtar útvöldum. Myndir af mér sem klæðskiptingi munu líklegast koma inn næstu daga. Ég er búinn að finna fína kuldaskó fyrir actionið í Sviss er kosta 14.000! Helvítis tölvan, glæný, er með einhver leiðindi. Ekki hægt að spila nýja leiki útaf skjákortinu, óþolandi! Erik hinsvegar staðið sig mjög vel í því að redda glænýjum leikjum sem bíða eftir að verða brúkaðir er þetta kemst í lag...
Vaknaði eldsnemma í morgun (8:00) án vekjaraklukku og undirbjó bróðir minn lítinn fyrir stærðfræðipróf! Ótrúlegt að hafa innbyggða vekjaraklukku, sagt í gærkvöldi að ég ætti að sjá um gaurinn en yrði vakinn. Það gleymdist svo en þrátt fyrir allt vaknaði ég eldhress, og nóta beiðni, ég hef sofið til 12 alla daga undanfarið! Í gær fór ég í sund og slapp alveg við strípilinginn sem angraði mig síðast.
Það verður dottið í það um helgina, á laugardaginn! Étið kalkún að amerískum sið þó flestallt sem kemur þaðan sé skítur lætur maður það eftir sér... Verður líklegast síðasta, ja, hið minnsta næstsíðasta djamm fyrir brottför.
Fataði mig upp áðan og prófaði að ganga úti í kuldanum í flíspeysu, vettlingum, húfu o.s.frv. Hanskarnir voru ekki að gera neina hluti. Þarf jú að fara að ákveða hvað ég tek með í þetta trip!
Hallur mættur hress og kátur að vanda, erum nú þrír hérna á bókasafni Hafnarfjarðar, ég,gummo og nýliðinn. Ég spurði hann:"Hvað liggur þér á hjarta í dag Hallur?". Hallur: "Éggg... bara veit þa ekki".
Spurning vikunnar: Hvað sænga ég með mörgum telpum í Sviss, og ef engri, hverjar eru þá líkurnar á því að ég fari í kakóið á gumma?
posted by Huginn 8:28 f.h.
|
sunnudagur, nóvember 23, 2003
Runk í sundi
Hvert stefnir þetta samfélag! Var í sundi áðan með Gumma. Gekk inn í garðabæinn til að liðka fótlegginn eftir gifsið og hentum okkur í garðabæjarlaugina. Þegar við fórum inn sat einhver gaur á bekk þarna í mesta chilli, með hangandi besefann hálfa leið að sturtugolfinu. Ég hristi eitthvað hausinn og tók svo lookið á typpið á manninum til að staðfesta furðulega sýn. Hann var með hringi á typpinu, 1,2,3 eða guð má vita hve marga, gaf mér nú ekki tíma til að skoða þennan viðbjóð. Stuttu seinna geng ég framhjá á leið í sturtu og þá dinglar beinstífur böllurinn milli lappanna á kvikindinu og hann ný búinn að sleppa gripnum. Hann var að fróa sér og sá mig koma og sleppti takinu. Ég reyndi bara að gleyma þessum viðbjóði, fór inn í sturtu og brúsaði (bruse bad) mig (gummi var farinn út í laug). Svo þegar ég kem út úr sturtu situr gaurinn þarna ennþá, nú með böllinn uppi á öðru lærinu og heldur utan um hann hálfan að fikta eitthvað í sér. Þvílíkur viðbjóður! Og gaurinn var búinn að smeygja smokki yfir helvítið! Ég fór út, synti lítið og héngum þarna í góðan klukkutíma. Þegar við komum aftur þá var þessi vængefni gaur enn sitjandi þarna, typpið reyndar komið í slaka en sama viðrina lookið á fíflinu. Þegar ég commentaði við starfsfólkið að einhver viðbjóður hefði verið að "kippa í" sagði kellingin:"nú, bara stuð þarna uppi". Hvað varð um viðleitni í átt að banna slíkan sora? Og þessi gaur er líklga sá sami og hefur verið að strokkann í suðurbæjarlaug og fær ekki lengur að koma þangað! Usss.. maður á ekki að þurfa að horfa upp á svona viðbjóð, ef ég fengi að ráða léti ég svæfa kvikindið!
Með hausverk í Trivial og Actionary
Enn þunnur og með hausverk þegar ég og gummi kíktum til Iðunnar í spilakvöld. Rebekka beauty hans gumma mætti, dagny og Iðunn, Ómar, einhver gaur er ég kann ekki að nefna á nafn og svo auðvitað ríðuleg Kristín sem ég loksins áttaði mig á að væri systir Salóme. Hef nú ekki séð mynd af Salóme en geri þá passlega ráð fyrir að hún sé enn ein gellan! Óeðlilega margar fagrar konur í einum vinahóp! Drápuði ljóti vinkonurnar? Eða er þetta standard look í mosfellssveitinni?
Við strákarnir sigruðum auðveldlega í Trivial þrátt fyrir að hefa veitt þeim þriggja köku forskot (Ómar byrjaði einn og var að skíttapa þegar við komum). Kötturinn var snarbilaður, meyddi Kristínu sem vildi ekki leyfa mér að kyssa á báttið! Svo bauðst hún til að sýna mér ör á brjóstinu tvö ein inni í herbergi síðar um kvöldið þegar hún var búin að sötra hálfan bjór! Mæja kíkti í heimsókn, og um tíma hætti ég að geta einbeitt mér að Trivial heldur starði þess í stað á barm stelpunnar sem var BERsýnilega beita kvöldsins enda telpan á leið út á djammið.
Ómar var mjög sprækur, sannaði það að þó menn einangrist og eyði 10 tímum daglega við tölvuna og stundi óhóflega sjálfsfróun geti þeir verið fínustu náungar! Mjög hress! Æjj, kötturinn ásækir mig, afhverju er Iðunn ekki búin að senda hann út í sveit þar til hann fer að haga sér? Eða gríta honum út um annarrar hæðar gluggann?
Fór reyndar í gær á Singapore, kínverskan veitingastað, með familiunni. Nennti ekki inn í Reykjavík enda faðir minn eitthvað slappur. Nú er stefnan sett á Bingo Bingo!
posted by Huginn 12:45 e.h.
|
laugardagur, nóvember 22, 2003
Guten morgen! Æjj, er nú tussulegur núna eftir bjóra gærdagsins. Þetta blogg mun slá öll met í að vera leiðinlegt sökum þess.
Ég og Gummi sátum í mestu makindum í gær á bókasafni Hafnarfjarðar þegar boð bárust um að kíkja í pizzu. Ég, Rebekka, Kristín, og Gummo kíktum á Eldsmiðjuna. Linda mosfellssveitungur kíkti svo aðeins seinna. Pizzan var sorgleg, hálfmáninn hans gumma enn sorglegri en klósettin voru víst asskoti spennandi að sögn stelpnanna. Steingleymdum að skoða þau! Umræðuefni kvöldsins var stærð handa, olnboga og annarra líkamsparta auk fittness og ljósaumræðu. Þótti mér vaxa brjóst í þessum samræðum, svo kvenlega leið mér. Renndum svo upp í keiluhöll, en þá var víst 2 klukkutíma bið eftir braut! Það lagðist nú illa í mannskapinn, svo við fórum öll í bíl með Kristínu inn í mjódd. Þar var keilusalurinn lokaður vegna keilumóts! Jaa, ekki kom það að sök því Búálfurinn, rómaður bar og veitingastaður í hjarta breiðholts, var skammt undan. Þar fengum við okkur einn kaldan, ræddum við Unnar fyrrum bónda. Asskoti ferskur, síbjóðandi öl á mannskapinn þó enginn þægi boðið. Mæli svo sannarlega með því að fólk kíki á Búálfinn við tækifæri! Síðan fórum við í afmæli hjá manni er nefnist Guðmundur og ég þekki akkurat ekkert. Frír bjór var nóg til að gera upp vinskap. Stelpurnar færðu afmælisbarninu asskoti fína gjöf, frímiða í húsdýragarðinn! Hann ljómaði allur af gleði strákanginn. Úlli fékk kossa frá stelpu-þrennunni og fleiri fagmenn voru mættir; Baldur Chocko, Einar snillingur, Ginggang, Svenni og fleiri. Hitti Benna feita, sem var með þrjár kellingar upp á arminn! Lifandi sönnun þess að til eru konur sem gefa ekki "rat ass" í útlit drengja! Um þetta leiti gerðist Kristín fjölþreyfin, enda orðin edrú. Ég þoli illa snertingar frá fólki sem ég þekki ekki svo ég kipptist til og engdist í kvöl við hverja snertingu. Ég bjó víst í skamman tíma við hliðina á stelpunni í mosfellsbæ, hefði betur lagt einhvern grunn þá! Stelpurnar misskyldu eitthvað er ég var að svekkja mig yfir því að nenna að detta í það, að ég væri fúll yfir því að þær væru að fara. En vitaskuld var missir af þeim en ég er nú ekki svo skemmdur að fara í fílu þegar þær fóru heim að lúlla. Lindu sáum við reyndar seinna um nóttina í villtum ástarleikjum á Gauknum. Ræddi við Ásgeir, nágranna hér í klausturhvamminum, um bílaflotann sem hann hefur átt í gegnum tíðina og þegar við ætluðum að opna ísbúð í sjoppu sem var farin á hausinn. Hittum Óla af golfvellinum sagðist ætla að bjóða okkur til köben. Hann á rúmlega 100.000 vildarpunkta. Að sjálfsögðu vorum við til í 2-3 daga fyllerí í danaveldinu. Hringdum en söluskrifstofurnar voru ekki opnar og þannig datt smá kraftur úr þessu. Fórum allir á Celtic en svo virtist Óli linast í þessu. Jaa, kannski seinna... Heilsaði upp á Pál Ólafs á Ölstofu Kormáks. Hitti Brynjar, tvífara Halls, á Ölstofunni. Hef hitt hann áður og hann er rosalegur. Algjör snilld, lookið og taktarnir eru hrein snilld. Síðan kom einhver hugguleg stelpa upp að mér brosandi á celtic cross og var eitthvað að fíflast í mér. Ég vissi auðvitað ekkert en svo kom í ljós að ég hefði hitt hana TVISVAR áður á fyllerí! Kallaði mig alltaf "víkinginn" útaf skegginu sem ég var með þá! Sátum og spjölluðum í góða stund. "vinirnir" hennar voru voðalega súrir að það skyldi annar strákur mættur inn á "svæðið" þeirra, þó þeir þættust bara vera vinir hennar hló ég á fullu af þeim, sagði beint við þá að mér væri skítsama þó þeir væru svekktir yfir komu minni. Mér gat ekki verið meira sama. Kvaddi stelpuna pent, hún sagði að við myndum rekast á hvort annað aftur, en svo reyndar kallaði hún á mig aftur í stutt spjall seinna. Norska telpan kom þarna og spurði mig hvort ég vildi hittast á laugardag (í dag) með einhverju blikki. Nei, ekki sjéns að ég sé að fara að drekka í kvöld! Hitti Bjarna frænda úr mos, bauð honum upp á bjór og var á fullu að commenta á kollvikin sem voru massiv í takt við faðir hans! Jæja, planið frammundan; Býð familíu á Apótekið í kvöld sem ég hafði lofað þegar ég græddi fína summu á hlutabréfum fyrir ca. mánuði og svo mormónakirkja á morgun og bingo bingo!
posted by Huginn 5:34 f.h.
|
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
Ég mun fljúga út til London 15. desember kl: 9:00 (lenda 12:00) og þaðan áfram til Zurich klukkan 13:55 með British Airways. Kem heim 24. mars í sömu vél og Gummi, þá mun vera komið miðnætti og farið beint í háttinn. Næsta dag mun ég vakna fílefldur og fara á kvennaveiðar! Heildarpakkinn, fram og til baka með millilendingu í London kostaði 33.500 kr.
Kvennastörf í lífi mínu:Þarf núna að fara á "fataveiðar". Á góða úlpu, en þarf vindþéttar og vatnsheldar utanyfir buxur. Vantar líka síðar nærbuxur, örþunna en hlýja vettlinga, fagra húfu. kíktum í 66 gráður norður áðan en asskotans verðmiði á hlutum þar. Síðar nærbuxur kostuðu 5000 kr!!! Væntanlega hægt að kaupa sambærilegan skít á 1/5 af því einhverstaðar!!
Svo þarf maður að fara að kaupa jólagjafir, helvítið það! hef undanfarið tvö-þrjú ár gefið dýrar jólagjafir í kjarna-familíunni enda var ég með asskoti fín laun. Núna hinsvegar er ég að fara út og er að spara og eiginlega ekki með neinar hugmyndir að gjöfum. Ætli ég verði ekki að fara í almennilegan búðarleiðangur (eins og versta kelling) í fyrsta skipti síðan á síðustu jólum!
Gríðarleg spenna var í síðustu getraun! Íbúafjöldi Árhúsa árið 1992 var 204.139! Framreiknað til dagsins í dag samkvæmt líkani sem ég setti sjálfur saman þá er íbúafjöldinn akkurat 271.248 í dag! Til að sannreyna þetta tók ég einnig opinberan (en rangan!) íbúafjölda árið 2003 sem er víst 220.700 dróg frá svarta, gula og samkynhneigða og bætti við munaðarlausum, rónum, hundum og öðrum ótöldum og fæ þá út töluna 271.243. Þessi munur er innan skekkjumarka og verður því að teljast gilt svar.
Gild svör voru eftirfarandi:
Melurinn 500.000 + 1,5 milljón svína
Leedsarinn 291.000
Atli 250.000
Sló 270.000
Úlfar 252.000
Þetta gerir hana salóme sigurvegara og fær hún rembingskoss að launum! Ég mun veita henni verðlauninn að henni óspurðri við fyrsta tækifæri...
Ég hef tvisvar flogið næstum því á hausinn í hálkunni. Væri nú skítt að brjóta á sér löppina aftur áður en hún nær að gróa að fullu! Það eru engin tíðindi úr mínu lífi, hef verið mjög rólegur. Kíktum reyndar til Birgirs í gær, sátum þar í dagblaðaþöktum sófanum (hann er að mála) og blótuðum allir í kór Erpi gerpi... Hallur situr við hlið mér og spyr hver þessi Birgir er... Ég sagði honum að það væri bölvaður hommi! Hann segist fíla það! Einnig var ákveðinn fögnuður að fá Sveppa og Audda til baka í 70 mínútur, eða öllu heldur fögnuður að hin viðbjóðslegu vonnabe chockos með marglitaðan hársvörðin hurfu úr þættinum. Fórum inn á videoleigu á heimleiðinni en vorum einfaldlega búnir að sjá allt bitastætt þar svo leiðir okkar skildu... ég fór heim og sinnti minni netfíkn og gummi fór að kippa í.. Kristín ofurbeib og dúlla var á netinu en eitthvað enntist hún nú stutt á rabbinu, enda ég leiðinlegur maður með einsdæmum.
Og Hallur sem hefur setið mér við hlið núna í klukkustund og þagað fær að eiga lokaorð bloggsins í dag "Hallur: Ég elska gumma! Ég gekk með hendina í jakkavasanum og hina í buxnavasanum að lookinu áttina að rakarastofunni. Huginn: hvað varstu að gera með hendina í buxnavasanum? Hallur: Ég var að kippa í.
posted by Huginn 8:46 f.h.
|
þriðjudagur, nóvember 18, 2003
Ég vaknaði klukkan sjö í morgun! Það ættu að vera lög sem bönnuðu slíkan ósóma! Ég er laus við gifsið og sprækur sem lækur! Reyndar gleymdi ég að taka með mér TVO skó upp á spítala og labbaði því á bláum örþunnum plast hlífðarskóm út í bíl sem ég hafði lagt einhverstaðar í rassgati! Ég er enn með steinaför á iljunum!
Í gærkveldi horfðum við (Mo, Gummo, og Rebo) á uppáhaldsmyndina hennar Rebekku , Charlies Angels 2, og slíkur viðbjóður hefur ekki ratað inn um augntotur mínar lengi. Allt þetta "girlpower" ímó rugl var ekki að ná til mín og helskemmd atriðin inn á milli fengu mig spakan manninn til að vera rasandi. Myndin hafði víst valdið mikilli lukku í saumaklúbbi vinkvenna Rebekku og þær allar tekið Kung Fu æfingar milli atriða! Rebekka fékk sjokk þegar ég sagði henni "sannleikann" um stráka "vinina". Að þessir svokölluðu kunningjar hennar lumuðu allir á eldheitum fantasíum um hana! hehe.. hún féll í smá tilvistarkreppu í framhaldi enda sá hún sannleikann í þessarri speki. "Þannig eru strákar, að undanskyldum mér og gumma auðvitað" voru sakleysisleg lokaorð ræðunnar. Hehehahaha... eða eins og svo margir... muhahah muhahah!
Á sunnudeginum, eftir að hafa sofið svo gott sem allan daginn, ákvaðum við að fara í bíó. Að sjálfsögðu var það sama teymi og venjulega! Drengjaliðið var skipað af Guðmundi Jaka, einnig nefndur litli bangsi útaf bleika litla fílsunganum sem hann sefur með á næturnar, var enn þunnur og vitlaus og leiddist mjög í bíó. Hann var búinn að halla sér svo hressilega ofan í sætið að einungis höfuðið lá á setunni, restin af fílefldum búknum lág einhverstaðar á golfinu! Rebekka ljómaði af hamingju, líkt og nýgiftar konur vilja oft gera. Henni þótti Matrix Revolutions einnig slök og grétu þau hjú hátt saman. Æjj, þau eru svo samrýmd! Kristín kom valhoppandi inn í bíó og fór þannig út einnig. Mesta furða að hún skyldi ekki taka einhverjar fimleikaæfingar í sætinu! Jaa, krúttleg og hress stelpa en ég strengdi heit í gær. Rebekka segir að allir þessir "ómerkilegu" vinir hennar hafi reynt við Kristínu og hinar vinkonurnar! Mér varð ljóst að við karlmenn erum nú asskoti einföld kvikindi, alltaf sami prósessinn.. megum ekki líta á fagran kvenmann án þess að slefa eins og móður Snati. Til að vera ekki útreiknanlegur, fávís og mesti fábjáni="klassískur karlmaður" ákvað ég að láta slíkt eiga sig. Þetta heit hafði reyndar ákveðin tímamörk sem voru að renna út núna rétt í þessu, svo mér er jú aftur í sjálfsvald sett hvort ég láti til skara skríða! hehe.. æjj, ætli sagan um að læknirinn hafi misst mig í golfið sé svo sönn eftir allt saman? Heilaskemmdirnar eru svo sannarlega til staðar!
Kannski að ég kíki á einhvert sprell hjá nordklúbbnum í kvöld, verið að kynna dagskrá vetrarins, getur verið að þar leynist eitthvað áhugavert og svo er Leifur kallinn að biðja mig um að kíkja á Nasa á miðvikudaginn á uppistand. Líklega skelli ég mér þangað!
Spurning vikunnar (bannað að fletta upp!): Hvað búa margir í Árhúsum, danmörku? Sá sem verður næst réttu svari (og mig grunar ekki um svindl!) fær svellblautan franskan koss frá mér óháð kyni!
posted by Huginn 1:58 f.h.
|
sunnudagur, nóvember 16, 2003
Þynka, þynka ! Djöfull var Úlli nettur, hringdi ca. 5-6 í morgun blindfullur. Strákarnir uppí bústað, og einhver nefndur svenni var að rústa öllu. Ætli Hilmar "hross" verði sáttur við það? Ég hef endanlega eignað mér titilinn "húsdýralover" og eigi enga von á betrumbótum! Jú, måske að fögur prinsessa geti leitt mig frá þessum afbrigðilegu hvötum!! Var að sötra heima hjá Ingó með Palla Chocko og Gummo í gær. Einnig mættu á svæðið kærasta Ingó og vinkona hennar. Ég reddaði systur minni og kærasta hennar til að koma á tveimur bílum og skutla öllu liðinu í bæinn! Ekki frá því að Palli Chocko hafi verið að reyna við systur mína inn á milli staðhæfinga frá Gummo um að systir mín væri komin með beikon á lærin! Á Celtic hitti ég hóp Írlendinga, sem var að fíla að ég breytti framburðinum hjá mér og talaði eins og Íri. Hlóu dátt! Líka hana Bryndísi Níelsen, asskoti hress og kát stelpa! Já, Leifur snillingur og félagarnir voru þarna, ég reyndar fittaði voða illa inn í lítið herbergið þar sem við komum okkur fyrir svo ég var á sífellu rölti. En svo tók fljótlega "húsdýragenið" í mér við og ég þurfti að velja á milli tveggja viljugra... Vonandi fæ ég högg á höfuðið og gleymi öllum þessum hræðilegu minningum! Reyndar rakst ég svo á eina fagra sem ég hafði verið að spjalla við á Hansen á fimtudaginn, sem nú var drukkinn og virtist hafa fílað samtalið ágætlega, en "it was too late!", ég var þegar búinn að "skuldbinda mig"! En bauð henni hinsvegar frítt í taxa heim í fjörðinn enda ein og yfirgefin. Tja.. spurning hvort það sé bingo í kveld... æjj, ég er svo mikið fífl !
posted by Huginn 3:41 f.h.
|
föstudagur, nóvember 14, 2003
Já! var að áskotnast mynd af mér og litla brósa (drengurinn með hendina í klofinu!) að spila heimatilbúið ævintýraspil. Ákvað að skella henni hérna inn sökum eyrðarleysis og aumingjaskapar...
posted by Huginn 11:54 f.h.
|
Fékk bréf frá Rithringur.is þar sem ég hafði sent inn nokkrar umsagnir um frumraunir ýmissa rithöfunda. Ekki sparaði ég lýsingarorðin:
Blessaður,
Rithringur.is fer yfir allar rýnir nýrra meðlima og þess vegna kíktum við á þína áðan.
Þessi umsögn er *hóst hóst* dálítið niðurrífandi! Okkur á Rithringnum langar að minna þig á að það er erfitt fyrir fólk að leggja fram efni, litla rithöfundaegóið okkar er ekki ýkja sterkt og þarf ekkert sérstaklega mikið til að brotni pínulítið. Þú hefðir nú getað orðað þig örlítið betur.
Það eru þarna setningar sem eru tja, nokkuð niðrandi eins og t.d „Afspyrnu tilgangslaus saga." og „En ágætis skrif bæta ekki um hundleiðinlegan söguþráð" Hvað með að reyna að vera pínulítið meira uppbyggjandi? Þetta setningar eru líka mjög gildishlaðnar.
Tja, ef þeir vilja að ég ljúgi hrósi og vitleysu í saklaus börnin þá get ég líka gert það!
posted by Huginn 7:44 f.h.
|
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
Djöfull er ég hífaður núna! Var að dæma ræðukeppni og ókeypis bjór var í óhóflegu magni! Usssss....! Hitti fyrir frænku gumma, einnig brynju sem virðist hress. Uss,, Hallur mjög hress í kvöld, lét hann haltra í takt við mig sem var MJÖG fyndið! Sendi einnig skilaboð úr símanum hans, ca svona "þú ert hommi" á nokkra útvalda! Hmm.. var að fá mynd af 18 ára netgellu senda, asskoti eru þær margar þarna á netinu skyndilega sem ekki þjást af offitu! Æjj..svo birtist ég líklega í sjónvarpinu, nývaknaður og sjúskaður, í þættinu maður á mann hjá Sigumundi Erni. Helvítið bað mig um að segja eina setningu um ingibjörgu. Það gerði ég en þá sagði fíflið, "hefurðu ekkert meira um þetta að segja"... ójú! ég bætti við heilum helling en hann hafði bara sagt að ég þyrfti að rumska út úr mér einni setningu! Jæja,, en ég var nýmættur úr góðu yfirlæti fulltrúa norskra kvenna á íslandi. Æjj,, fínt að vera á leið út í heim, þá þarf ég ekki að standa í þessum "samskiptum kynjanna" rugli. Frjáls sem fuglinn! Nee.. svo auðvitað fer að líða að því að maður þurfi að finna sér góða telpu, hehe.. uff.. ég er of drukkinn, fer fljótlega að segja frá leyndarmálum o.s.frv. Uss, Sviss 18 desember, rosalegt, og svo bara veit ég ekekrt hvað skal gera við lífið, þarf að finna mér eitthvað mission! Uss hvað þetta er orðið leiðinlegt blogg! Dr. Hilmar kominn með trúlofunarhring..ég hló dátt af stráknum.. uss.. æjj.. ég nenni ekki að röfla meir ...
posted by Huginn 5:38 e.h.
|
þriðjudagur, nóvember 11, 2003
Hó, ég er svo hjartanlega sammála þér Helga, við Kristín ættum að skella okkur á deit saman! :) En jæja, ég var að gramsa í gömlum vísum/ljóðum sem ég orti sem 16 ára pjakkur. Greinilega vel skemmdur í þá daga og góð ástæða fyrir því að ég hætti að semja! Örstutt um hann Bakkus!
Bakkus
Einu sinni enn
og aldrei aftur,
áfram ég renn
og orðinn fylliraftur!
Svo var ég nú eitthvað að velta upp trúnni!
Himnaríki og helvíti
Ef sanngjarn og góður
hví refsar hann mér þá?
af heiminum ég verð óður
þessum grimma stað, ég lifi á.
Ég dreg mínar lötu lappir
áfram hvern ljótan dag
ég gretti mig og hveina,
á guði ég hef lítið lag.
Það er ekki mér að kenna
þó enginn vilji góður vera
það er þessi borgarspenna,
það er alltof mikið að gera.
Með guði við stigum fyrstu skrefin
Þau voru örugg og trygg
en svo kom fjandans guðs efinn,
og í sæng með djöflinum, ég nú ligg!
Tímalaust ljóð um stríð!
Stúlkan
Opna augun, uppá gátt
svo björt og góð
leitandi að heimsins sátt
á stríðinu, orðin móð
Trítla yfir götuna
ég er að fara fyrir mömmu
að sækja vatn í fötuna
vatn fyrir hana ömmu
Vatnið lekur hægt
kannski það sé búið
afhverju getur stríðinu ekki lægt
eða við, einhvert burtu flúið
Vatnið komið, fatan þung
sprengjan springur, ég dett niður
og ég sem var svo ung
Afhverju gat ekki verið friður?
Og svo reyndi ég nú að vera "rómantískur" í ÞÁ daga!
Yngismær
Litla ljúfa snát
vertu nú, ljúf og kát
Komdu með mér, komdu
komum upp á fjall
uppá heimsins hæðsta stall.
Dönsum allan daginn
daginn út og inn
lofum ljósið bjarta
lofum frið um sinn.
Þú snoppufríða hnáta
sestu hjá mér smá
Viltu vera hjá mér
kjöltu minni á.
posted by Huginn 7:17 f.h.
|
mánudagur, nóvember 10, 2003
Fór með fríðu föruneyti í Bingo í gær. Enginn fékk Bingó! orðið svoldið þreytt í annað sinn að fá ekki að heyra öskur frá einhverjum í hópnum. Þarna var Erik, er kallaði saklausa gamla konu "helvítis mellu". Úlfar var fagmaður og einblíndi á spilamennskuna. Ég starði til skiptis á bingóspjaldið og á kristínu er sat á móti, hress og sæt telpan sú arna. Hún var nú nokkrum sinnum sæmilega nálægt, eða allvegana nær okkur hinum, að fá bingó. Svo Rebekka auðvitað líka. Mér er spurn, eru allar vinkonurnar úr mosó svona afspyrnusætar? Rebekka og Kristín báðar föngulegar! Verð nú að fara að einblína á mosó í kvenmannsleytinni ! Jæja, og svo Gummo, hann og Erik hættu ekki að hlæja að einhverjum gömlum konum. Voru víst með fáranlegar myndir og ein tók eitthvað evil look! Horfðum á Hulk sem fær falleinkunn! Obsalega langdregin og illa nýttur efniviður. Hefði mátt gera frábæra mynd en var rusl! Einhverstaðar hafði ég heyrt að hún væri tölvuleg, fannst það nú ekki, vel gerð að mörgu leiti en náði sjálfsagt engri fullkomnun. Átum hrúgu af salgæti, Æðibita, pringles, stjörnupoppkorn, piparbrjósykur og sötruðum á pepsi. Fer til gumma núna að stara á Survivor, svo þátt um norður kóreu, svo 60 mínútur ruglaðar, svo Alias, svo måske ræmu... jaa, útursteykt prógram! Ævintýra-skáldsagan er ég rembist við að skrifa er farin að taka á sig smávægilega mynd, aldrei að vita nema manni takist einhverntímann að klára þetta, fínt að gefa litla brósa þetta sem auka jólagjöf ef mér tekst að sjóða þetta saman fyrir jól!
posted by Huginn 10:43 f.h.
|
laugardagur, nóvember 08, 2003
Halelúja! Var að koma af samkomu í Krossinum og ég brenn af gleði ! ATH! Það var krökkt af gellum þarna og því góð ástæða fyrir alla unga drengi að finna sér guðhrædda og góða konu þarna! Erik frelsaðist !Hann gekk upp og játaði syndir sínar og varð eftir í faðmi Gunnars forstöðumanns, grátandi ! Og það er karlakvöld frammundan fyrir menn sem vilja fara að giftast. Ójá, takið eftir, ekki fyrir menn sem eru komnir með kellingar heldur þá sem vantar kellingar! Og þeir sem lesa á milli línanna vita að þetta er plögg fyrir karlanna í söfnuðinum sem vilja fá eina af þessum gyðjum upp í sína sæng! Væri snilld að mæta þarna og spjalla við strákana og svo er óvissuferð á laugardaginn. Mig grunar að farið verði rakleytt upp í kirkju og maður giftur einhverri af þessum sætu stelpum! Amen! Og þó dagurinn hafi þegar gefið mikinn ávöxt er enn margt óunnið. Erum uppi í háskóla að gramsa á veraldarvefnum en förum síðan eftir snæðing á Subway, í Bingo Bingo !! Slagorð staðarins er: "Að spila bingó vinnur á móti hrörnun heilans", og vel veitir af!
Sendið inn hugmyndir að ferskum og "temmilega" steiktum hlutum sem þessi brenglaði vinahópur getur tekið sér fyrri hendur. Allar hugmyndir verða íhugaðar og líklegast framkvæmdar!
posted by Huginn 10:20 f.h.
|
föstudagur, nóvember 07, 2003
Hér sit ég í tölvu á heimili Helga, er gekk að eiga Önnu dóttur hafnarfjarðargullí... ég er nýflúinn í tölvuskrattann þar sem drengirnir eru að prufukeyra einhvern leik í Xbox. Var að koma úr bíó (kvikmyndin Runaway -sjá síðar). Einhvernveginn atvikaðist það að fögur vinkona hennar Rebekku var líka í bíó, sem gefur mér tilefni til að perrast aðeins hérna! :), héreftir nefnd með dulnefninu Kristín :) Það hefði ekki þurft mikla sturlun til viðbótar minni eigin til að ég hefði látið til skara skríða! Sat við hliðina á stelpunni, hefði nú átt að slá hana létt á bossann eða hreinlega taka utan um hana og kyssa og gera allt vitlaust.... ahh, hefði verið til að bæta upp lélega myndina að fá báðar stelpurnar til að sparka í mig og brjóta hina löppina! En það væri þess virði... og þá ekki bara fallegur bossinn heldur líka sú gleði sem fylgir uppþotum af slíkri stærðargráðu... "But back to reality"! Ég át dominos pizzu nr. 2 í dag rétt í þessu! Erum að fara að stara á mynd og ég heyri drengina hugsa... ætlar Huginn að hanga þarna í tölvunni endalaust?? Er hálf daufur eins og sést á þessum sorglega texta úr þreytu... Runaway fær ekkert fyrir frumleika, ég skrifaði handritið í huganum fyrstu mínúturnar og myndin fór nákvæmlega eins og ég bjóst við. Lét þó ósagt að kalla upp hvað myndi gerast í myndinni því þá hefði ég verið leiðinlegi gaurinn sem hefði skemmt alla myndina og Kristín hefði væntanlega skyrpt á mig? En það var horfandi á þetta, fáein kómísk atriði, en það sem gerði þessa ferð góða, (að undaksyldum kvenlegum anganum af Kristínu vitaskuld) voru endalausar klósettferðir Rebekku! nee, ég lýg því, þær voru ekki nema 4 og hver ferð tók ekki nema korter og stelpan missti af öllu og ætlar víst á myndina aftur á morgun! Nei, ég hafði einstaklega gaman að sjá hvernig stelpurnar lifðu sig inn í myndina, hentust til og frá í sætunum og engu líkara en þær væru hluti af öllu saman. Gat varla hætt að kætast yfir þessum tilþrifum. En jæja, það þarf víst fátt til að gleðja þjáðann manninn...
posted by Huginn 5:35 e.h.
|
Hann er ekki á þeim brókunum að gefast upp endajaxlinn helvítið af honum! Er stökkbólginn, gat vart sofið eina nóttina, enda átökin yfirþyrmandi á meðan hann treður sér upp við hlið þétts tanngarðsins.
Hef loksins hafið þýsku-sjálfsnám til að vera undir byltinguna búinn. Byltingin er handan hornsins, þar sem viti bornir menn munu rísa upp og segja "hingað og ekki lengra!". Kall almúgans er orðið yfirþyrmandi, mér er ekki unnt annað en að svara kallinu, rísa upp úr forinni og berjast! Skjótur sigur mun hljótast og þýskan mun verða móðurmál allra landa!
Æjj, svo er það helgin, ætli maður stari ekki á video og slappi af líkt og vel barinn harðfiskur sem hangir sér til þerrunnar. Prófaði að starta bílnum og keyra í götunni áðan og þrátt fyrir gifsið reyndist það vel. Veit einhver hvort ég væri talin í órétti ef ég lendi í árekstri og er í gifsi?
ahh.. síminn að hringja niðri, nenni ekki að "hlaupa" niður... hvað gerir maður þá? bíta á jaxlinn? Ég hef nú ekki getað lokað trantinum almennilega fyrir bólgum síðustu dagana svo ekki stoðar það nú mikið!!!
Vil nota tækifærið og óska Guðmundi til hamingju með trúlofunina. Þetta er ótrúlegt og hve fljótt þetta hefur gengið í gegn lemur skítinn úr mér og gott betur... hehe.. nei, ég reyndar lýg þessu en látið þetta samt berast!
Æjj, og auðvitað föstudagsspurningin; Og bannað að fletta þessum skít upp! Hvað heitir höfuðborg Sviss? Og til að líkja eftir læriföður- og meistara mínum Dr. Hilmari barnaníðing þá hef ég 30 krónur í verðlaun sem hægt er að vitja á skrifstofutíma hjá Rauða kross íslands, Reykjavíkurdeildinni...
posted by Huginn 9:43 f.h.
|
þriðjudagur, nóvember 04, 2003
Hef verið í stanslausum SMS skrifum við norskan smáhval er ég hitti á Celtic cross. Hún virðist vera með sæmilegan húmor þau skiptin sem ég næ að lesa frammúr bjagaðri íslenskunni... Í dag kíktu til mín Mormónar tveir, einn frá Californíu og annarr frá Utah. Ég get svarið fyrir það að ég gæti, með óbilandi sannfæringarkrafti mínum, leitt slíka auðtrúa menn frá trúnni á 2-3 fundum ef ég vildi. Þeir göptu oft af spurningunum og voru farnir að efast í trúnni eftir að ég leiddi þá um sannleikann um Jóseph Smith, mormónabókina (sem ég á by the way enda oft búinn að fá svona gutta í heimsókn) og Jesú krist. Þeir vilja endilega fá mig á sunnudaginn í mormónakirkjuna í garðabæ og svo báðu þeir um að fá að koma aftur að ræða trúmál í næstu viku. Þeir ætla víst að leita svara við fáeinum spurningum sem ég kastaði fram... Sá eineigði hefur heldur betur fengið að kenna á eyrðarleysinu, ég læt hann ekki í friði enda fátt annað hægt að gera sér til dundurs hérna í kofanum. Spurning um að draga eitthvert húsdýrið heim af netinu? Það eru eingöngu 25-45 dagar í brottför til Sviss ef ekkert klikkar! Engin jól, engin áramót hér á klakanum fyrir mig.. en verður gaman að prófa áramót á nýjum stað í fyrsta sinn!
posted by Huginn 1:04 e.h.
|
sunnudagur, nóvember 02, 2003
Hitti enn einn fræga manninn í gær. "Barði goes Europe" sem var skítamynd en samt nett fyrir þær sakir að þar fylgdist maður með gaurnum að ferðast á suma af sömu stöðunum og ég hef sjálfur farið á. En gaurinn var nú voðalega lítið málgefinn líkt og í myndinni, og ég angraði hann hressilega og það gera víst fleiri... hann orðinn eitthvað þreyttur á því. Var einmitt drukkinn á leið á dansgolfið með Rebekku, fótbrotinn maðurinn..hehe.. djöfull er ég ruglaður en þetta var eitthvað flipp bara. Var búinn að lofa að láta sopann vera en svo bara er ég búinn að mygla hérna heima svo lengi að ég freistaðist, fór niður í alþýðuhús og sötraði þar (og hélt þrumu ræðu sem var fest á filmu) og síðan á Samfylkingarballið sem var sorg. Engir þar, tónlistin hætt um eitt leytið og ég fór þá að rabba við einhvern prest sem reddaði okkur fari niður í bæ. Voru með massa rugl í honum, hann var laumuperri kíkjandi á kellingar og alles og þar fór trúin ! Já, hitti Braga fastagest á Celtic, sem er mikill pimp og fórum í brjóstaskoðun á Hildi og vinkonum. Þær voru að reykja ófrískar og ég commentaði á það! Þá sagði ein í sinni heimsku "Ég reykti nú allan meðgöngutímann með stelpuna mína og það er ekkert að henni" æjj, ég missi alla von, alla trú á mannkynið! Hlustaði á fjöldan allan af vitskertu fólki, málhöltu og leiðinlegu þetta kvöldið. Og viti menn, gáfaðasti maðurinn sem ég hitti þarna um kvöldið var Kani! Rabbaði við hann lengi, orrustuflugmaður í US hernum og við ræddum Irak og fleira fram og til baka. Svo kom einhver norsk kelling, með smá utan á sér, og að mig minnir þóttist rekast í mig eða eitthvað og byrjaði að spjalla við mig... ætli ég hafi ekki sóað góðum 2 tímum í þær samræður við hana Glo vinkonuna, snerti hana eitthvað en fékk nú ekki að kyssa hana en númerið fékk ég...ehh... veit nú ekki hvað verður gert við það en ég hef svosem ekkert betra að gera en að contacta þetta með sms... hmm.. ahh... sorglegur er ég.. aumur í fætinum eftir allt þetta trítl í gær...
posted by Huginn 9:33 f.h.
|
|
Myndir
Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco
|