miðvikudagur, apríl 28, 2004
Var að koma úr forinni. Enn og attur dreginn í að moka skít uppí hesthúsi. "I love it" sem snillingurinn úr Dalalífi. Já, þarf nú að horfa á þá mynd attur og svo klassíska aumingjahúmor myndina Dumb & Dumber og ég tala nú ekki um snilldina -> Torrente 1og2. Svartur unaðslegur húmor! Þar áður eyddi ég kvöldinu í að hjálpa föður mínum að tína rusl burt frá húsi sem hann reisti. Þannig nýtist viðskiptafræðin mér þessa dagana...
Ég skal játa mig sekan fyrir þá er unna, dá og elska eyrðarleysið að ég hef syndgað. Sótti um vinnu! Hef ekki íhugað slíkt í háa herrans tíð en svo bara sá ég fyrir mér Sun-shine-lolly-pop útivinnandi í sumar. Að sjálfsögðu ekkert sem viðkemur menntun minni enda slíkar vinnur strit. Ég sótti um flokkstjórastöðu í Vinnuskólanum mánuði of seint. Það var jú gert til að tryggja að ég fengi ekki vinnuna og nú hef ég friðað samviskuna. En jæja, kannski fyrir einhvert óskiljanlegt kraftaverk að maður fái þetta job. Þyrfti eiginlega að tæma bankabókina, gefa einhverju líknarfélaginu, og þannig neyða sjálfan mig til að slíta þessu ágæta fríji mínu. Orðið vanabindandi. 1. mái verður tíminn búinn sem ég ætlaði að chilla og þá er spurningin. Á ég að fara að vinna og taka lífinu aftur alvarlega eða á ég að framlengja tímabilið um eitt ár??
Jaa.. stefni nú að því að sötra næsta föstudag og djamma næsta laugardag. Vinna upp fyrir rólegheitin. Í gær, þriðjudaginn, fór ég, Gummo, Erik og Hallur á upplestrarkvöld á Jóni Forseta. Mjög nett, Thor Vilhjálmsson er slíkur karekter að ég var hlæjandi mestallann upplesturinn. Hélt fyrir andlitið og reyndi að forðast það að springa úr hlátri og fá athygli. Kallinn er rosalegur... mun jafnvel kíkja á fleiri kvöld í von um að hitta á fleiri sérstaka kalla. Horfði á brósa í dag í fimleikum, jamm... drengurinn er í fimleikum. Reyndar fínasta snilld, teygjur, hopp og skopp og snéri sér á slá þarna hring eftir hring... komst í góðan fíling sjálfur.
posted by Huginn 4:38 e.h.
|
laugardagur, apríl 24, 2004
Líf mitt hefur náð nýjum hæðum í leiðindum. Mestmegnis eyrðarleysi er hrjáir mig og svo slæmt hefur ástandið verið að ég hef notað tímann til að laga til! Endalausum tíma ver ég nú í tölvuveri háskólans ruslandi á alnetinu.
Hef slegið evrópumet í veikindum, verið með einhvert smákvef og hellur fyrir eyrum í góðan mánuð núna með hæðum og lægðum. Horfði á Hellboy með öðru auganu í gær og þótti skítsæmilegt til að drepa tímann. Sá líka einhverntímann um daginn myndina Moosetown sem var skítamynd með gaurnum úr "Everybody hates Raymond!". Sá síðan 50firstdates með Adam Sandler sem var ágæt en takmarkað grín í henni. Aðallega fín vellumynd til að stara á með kvenkynd.
Sendi inn smásögu í örsögukeppni Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík. Sú var um Jón Bónda frá Hvirflu og var líka enn ein leiðin til að drepa tímann.
Ó guð, svo var það kökuboð Egils stælta. Þvílík snilld, óæt algjörlega önnur kakan sem leit vel út. Hann hafði sturtað einhverju heilsudufti í þetta. Síðan var einhver skítsæmileg þarna, tjaa.. ég hakkaði hana í mig svo hún var nú fín alveg. Þakkir til Egils fyrir að hafa staðið sig sem skyldi. Nú hef ég fjárfest í Pickwick Tepakka og mun fljótlega bjóða til teveislu.
Sátum á Súfistanum og drukkum í okkur kúltur um daginn. Fín eru nú kvenfljóðin mörg hver á þessum stað, sér í lagi afgreiðslustúlkan. Enn ósigraður í sjálfseinvígi um að neyta ekki áfengis fyrr en einhverntímann í maí og skella mér þá á Háskólaball og skoða greindu kyndurnar.
ójá, kvenkyndur, það er einmitt orð vikunnar.. rifjaðist upp fyrir mér þegar ég heyrði þetta hve mikið ég hlóg þegar ég heyrði þetta orð fyrst. Sveinn nokkur nasisti sem vann með mér og öðrum félögum í unglingavinnunni á sínum tíma notaði þetta óspart um konur. Það var gert í fúlustu alvöru.
posted by Huginn 10:13 f.h.
|
mánudagur, apríl 19, 2004
Erik lenti í smá rimmu hér á bloggi Rebekku við hana rokkuðu Betu. Ég lagðist undir feld og sendi inn mína túlkun á vandanum og hver lausnin skyldi vera (verðið að lesa um erjurnar fyrst eiginlega til að skilja svarið sem ég sendi);
"Ég mæli með sáttadrættinum góða milli Eriks og Betu Rokks. Ríðið þessar erjur úr ykkur og þú Beta mín færð þá að sjá hinn nýja betri Erik... Verð nú reyndar að segja fyrir mitt leiti að öll þessi ímynd þín Beta hefur ekki verið heillandi... Man nú ekki hvað blessuð bókin þín hét en það virkaði asskoti illa á mig... einhvernveginn fengið á þig þá mynd að þú sért að reyna að busla þér til frægðar með þessu bloggbrölti og bókinni... ahh..veit ekki... en hef nú ekki hitt þig í eigin persónu síðan vitinn góði var minn samastaður. Jaa..vona bara að Erik serði þig hressilega og allir sáttir."
Hva, er þetta ekki fínasta lausn? Hafa ekki allir tekið einn stuttan og allt verið samt á ný? Ég verð nú að viðurkenna að ég get verið sammála Betu þegar hún talar um grúppuna Evanescense. Hef sjálfur legið og hlustað á nýja diskinn þeirra og fíla þá asskoti vel. Passlegir tónar fyrir mitt leiti þó margir hardcore hausar félagarnir munu nú líta slíkt hýru auga helvítin af þeim! Þeir eru líka Hommar!
Hef ekkert haft fyrir stafni undanfarið... reyndar smásagnasamkeppni um góða glæpasögu og ég geri mér vonur um að sníða eitt sorglegt stykki og senda inn bara til að vera með. Leit í sundlaugina í dag og starði á ungar fagrar meyjar... ræddum mikið um lífið og tilveruna og það kom í ljós að við erum tímaskekkja í öllu gangverkinu. Allir félagar okkar og fyrrum bekkjarvinir komnir með kellingu, barn og hús eða hið minnsta eitt af því áður upptalda. Sjálfur hef ég nú varla verið við kvenmann kendur og ekki laust við að strákurinn fari nú að íhuga sinn gang. Nee... lýg því.. ætla mér að flytja inn eina rússneska fljótlega -> http://www.anastasiaweb.com/top1000-48.htm eða kannski ætti maður að fá sér eina frá Ukrainu? -> http://www.woman.kiev.ua/. Nee... ætli maður gefi því ekki aðra tilraun með blessaðar íslensku telpurnar? Maður er víst gjaldgengur fyrir þær rússnesku alveg upp í fimmtugsaldurinn svo ég þarf ekki að örvænta strax!
posted by Huginn 1:13 e.h.
|
föstudagur, apríl 16, 2004
Var að koma af blessuðum Maccanum. Big Mac Supermáltið og helvítin eru farin að rukka fyrir tómatsósuna! Ég mun ekki ganga frá bakkanum mínum þar til þeir láta af þeirri iðju.
Horfði á Bachelor fyrsta skipti í þessarri seríu í gær og djöfull er kvenfólk vitlaust fólk. Allar þrjár láta manninn leggjast ofan á sig í von um að hann giftist þeim. Og gaurinn lítur út eins og svín! Jæja... svona er þetta víst...
Fór uppi hesthús með móður minni að moka skít. Helvíti hressandi að rúlla með hverja hjólburuna á fætur annarri troðfulla af hrossataði. En þetta væri nú vart frásögufærandi nema fyrir þær sakir að ég uppgötvaði svolítið. Það er nýbúið að innrétta setustofuna í hesthúsinu og þetta er 100% snilldarstaður fyrir Partý. Ef ekki væri fyrir áfengisbann mitt myndi ég halda þarna þrusu partý! Jaa.. næsta djamm verður svona... Partý í hesthúskaffistofunni er rúmar ca. 15 manns (má svosem troða 25!) með fínu klósetti og alles! Síðan rúllar maður út þaðan og kíkir á háskólaball... Þar auðvitað vænlegast að stíla inn á Hjúkkuböllin.
posted by Huginn 9:11 f.h.
|
mánudagur, apríl 12, 2004
Latur við að blogga undafarið. Át mitt páskaegg eins og góðum sæmir í gær og horfði á stelpumyndina "How to lose a guy in 10 days". Hlóg eins og versta telpaeinn inni í herbergi og þótti leikkonan mjög fín að undanskyldu brjóstaleysinu (FLATBRJÓSTA!). Væri samt ekkert að því að fá að setja í...
Á miðvikudaginn/fimmtudaginn (man ekki alveg) kíkti ég á Hansen, ætlaði mér fáa en fékk mér marga. Sötraði, gekk á timburdrumb á Hansne, mjög fyndið, svo ég ákvvað að skalla drumbinn aftur til að endurupplifa gleðina. Já, þarna vorum við nokkrir félagar, mo, Helgi, Úlli, Baldur, Erik, Heimir og Biggi bók. Redduðum bróðir Helga til að skutla okkur í bæinn blindfullum. Kíktum á Celtic Cross, þar var Jói skeipari ferskur og fleiri félagar. Allir ráfuðum við í leit að Sugababes kellingunum inn á Prada. Mikið snobb og lítið gaman, og ég held ég hafi verið að rugla í einhverju fræga fólkinu þó ég geti lítið munað. Dansað eitthvað og Hallur átti svo sannarlega moment kvöldsins (sem ég sá ekki en heyrði frá Erik deginum eftir). Hann var að dansa við kellingu, fór að henni og hún var að nudda sér utan í klofið á honum, sneri sér svo við og ætlaði að smella einum kossi en dauðbrá og hrökk undan. Algjör snilld. Kíktum svo á Viktor einhverjir, farið að týnast og ég ráfaði einn inn á Nasa þar sem ég keypti einhverra hluta vegna tvo aðgangsmiða, samtals 2000 kall, inn á þann bannsettan staðinn. Lítið að gerast, hitti síðan bókina (Bigga) og við kíktum á Nonna bita sem var ferskt og saman smalaði heimir okkur og allir kíktu í leigara... skulda víst einhverjum enn fyrir minn hlut úr því ævintýri...
Þynkan daginn eftir var töluverð, Tók því það kvöldið í chilli. Litum til Bigga ég og Erik og Egill, gummi og Hallur voru þar mættir. Eitthvað hafði fokið í Keisarann því plön um tölvuleikjaspil breyttust. Gummi drukkinn, Hallur var Hallur... tjaa... og ég veit ekki hvað og hvað! Fór allt hreinlega úr böndunum þarna... menn veltust um í vitleysunni þar til loks var hægt að draga Gumma og Hall út og bjarga því sem eftir lifði nætur.
Laugardagurinn var sötr. Var fastur heima og ekkert far að hafa og tók leigubíl á 1200 kr!!! innanbæjar í ca. 4 mínútna akstur. Geðbilun! Venjulega 700 kallinn kannski innanbæjar en álag viðbjóðs saug mig blóðþurran peningalga séð auðvitað. Heima hjá Gulla var Metallica undirbúningsparty. Fínasta partý nema menn drukku of mikið. Vorum farnir að slamma þarna, einhver stytta brottnaði. Glas helltist niður hjá gumma svona 5 sekúndum eftir að ég varaði hann við því að slíkt gæti gerst með þetta liggjandi milli lappanna. En nei, enginn hlustar á ljóshærða fíflið... Síðan vorum við orðnir helskemmdir, allir sötrandi á vodka, slurkandi því niður. Einhver bardagaatriði voru æft þarna í saklausu gríni... síðan slitnaði beltið mitt og ég lét Úlla berja mig með því. Það myndaðist stemming og ég fór úr að ofan og lét hýða mig til að upplifa þjáningar föstudagsins langa svo rauður var ég orðinn á bakinu og vildi meira en Úlli WIPMASTER hætti í góðmennskubrjálæði. Síðan kíkt niður í bæ, vel drukknir, man síðan bara eftir að vera kominn inn á Viktor með að ég held dyraverði ofan á mér. Hafði eitthvað lent í einhverjum félaganum þarna. Sagðist vera rólegur en hafði greinilega fengið högg og orðinn reiður. Því er ég hafði ný lokið við að lofa öllu fögru gekk ég beint upp að gaurnum og gaf nokkur högg þar til Dyraverðirnir tóku mig aftur niður. Djöfull, þessi hegðun hefur valdið því að ég mun ekki drekka áfengt í einhvern tíma. Það sem ég hef lengi vitað, að drykkjan er of mikil, er núna orðið of ljóst til að ignora. Tek mér frí hérmeð. Ráfuðum síðan inn á Gauk á Stöng og eitthvað fleira. Fór snemma heim þetta kveldið.
Sunnudaginn um kvöldið hengum við heima hjá Rikka og spiluðum tölvuleiki í Xboxinu hans. Mjög fínt þynkuprogram. Var síðan læstur úti og enginn heima þegar ég kom heim, með hálsrýg og fleiri kvilla klifraði ég upp húsið og braust inn. Horfði á "Swat" og eflaust einhverjar fleiri myndir.
Jæja,,, nú þarf maður að finna sér einhverja aðra félagslega iðju en drykkjuna. Einhverjar hugmyndir? Ætli maður fari ekki bara að kíkja á trúarsamkomur mormóna í garðabænum??
posted by Huginn 6:47 f.h.
|
miðvikudagur, apríl 07, 2004
Í dag mokaði ég skít úr kanínubúri bróður míns meðan kanínurnar runkuðu sér á löppunum á mér. Sit hér með Eriko í University of Iceland íhugandi hvort ekki væri rétt að fara á Sugababes tónleikana á morgun og ná sér í eina spræka? Hvort ég eigi að kíkja á Hansen í kvöld er færir mér fyllerí fram á morgun... Måske er hugsunum mínum betur sleppt og ég hangi bara heima næstu daga líkt og ég hef gert síðustu daga.
posted by Huginn 12:16 e.h.
|
mánudagur, apríl 05, 2004
Tíminn flýgur áfram og fátt er gert. Á föstudaginn kíktum við félagarnir á myndina "City of Gods" heima hjá Keisaranum. Asskoti góð aðstaða til að horfa á ræmu. Myndin fín, portugölsk, og allir voða sáttir og föðmuðumst við og kvöddum með kossum eftir þetta kvöldhangs. Steingleymdi Hansen síðasta fimmtudag en þá brilleraði Hallur víst í Karoke. Kíkti hinsvegar á laugardaginn til Árna félaga og við sötruðum bjóra, kíktum á Ölver. Þar lentum við á rabbi við gaur sem hafði verið í 5 ár í frönsku útlendingahersveitinni. Fullt af léttklæddum konum allt í kringum hann, þær sækja víst í þessa harðgerðu nagla en ekki okkur mjúku típurnar! Síðan kíkti ég í bæinn, með Heimi og rákumst á Rebekku og við þrjú ráfuðum eitthvað á milli, Sólon og fleiri staðir. Síðan undir morgun, held það hafi verið 7, tókum við taxa heim. Klassískt íslenskt fyllerí, gerðist fátt eða jafnvel ekkert. Bara svona sötr... var ótrúlega rólegur þrátt fyrir að hafa ekki snert áfengi í góða 2 mánuði. Þolið virtist bara hafa aukist við slíka hvíld og fann lítið á mér. Jæja, er að ljúka við 3 kafla í skáldsögunni, rúmlega 5000 orð komin í þann kaflann, drepleiðinlegt helvíti sem ég mun fjölprenta og gefa öllum í jólagjöf þetta árið. Kíktum í heimsókn til Egils sem var að vanda búinn að hella uppá og framreiða köku. Hann fær mínar þakkir fyrir kvenlegheitin.
Er hætt að sýna Alias þættina?? Voru ekki í kvöld, hef bersýnilega misst af allri seríunni...
posted by Huginn 5:52 e.h.
|
fimmtudagur, apríl 01, 2004
Var að bæta inn nokkrum myndum úr síðasta þriggja mánaða ferðalagi.
MYNDIR
Skrifað á ensku enda sendi ég þetta á félaga sem maður hefur kynnst á förnum vegi. Er núna að ljúka við tonn af uppsöfnuðum kvöðum meðan á ferðinni stóð. Keypti mér bók "svo fögur bein" af forvitni við hvað skyldi gera þetta verk svona geisi-vinsælt. Er byrjaður að lesa þessa skáldsögu og ágætt framan af. Reyndi að baka pizzu áðan sem endaði með ósköpum, brunnið að hluta en hrátt að hluta hvernig sem það getur nú gerst! Kaupi þær framvegis tilbúnar enda var þetta jafnvel dýrara en að panta tilbúna pizzu. Ogjá, ég er að rembast við að skrifa skáldsögu, hef ekkert betra við tímann að gera. Líka eitthvað sem ég hef tekið í mig og langar að ljúka við eina leiðinlega sögu einfaldlega til að hafa afrekað slíku verki. Jafnvel þó þetta verði rusl er þetta bara eitthvað sem ég í þrjósku minni ætla að reyna að gera! (væntanlega verð ég búinn að gefa þessa heimsku hugmynd upp á bátinn innan tíðar.)
posted by Huginn 4:07 e.h.
|
|
Myndir
Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco
|