Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

fimmtudagur, maí 27, 2004

Mættur í draugalegan Seyðisfjörð og þoka liggur yfir öllu. Í dag leit ég inn á bónda og ræddi sauðfjárrækt. Hár hans var ljost og stóð í allar áttir. Frakki í vinnu við að mála og sletti hvítri málningu útum allt hús. Taladi her vid farandsverkamann snidugan (Gudmundur Karl). Tok mig rumar 20 min ad skrifa tetta i hundgamalli tölvu!

posted by Huginn 2:35 e.h.
|

miðvikudagur, maí 26, 2004

Bruna nú um fallega Íslandið mitt á glænýrri Corolla! Búinn að keyra elskuna einhverja 750 km núþegar. Skellti mér í þessa stuttu hringferð með einhverri ferðaglaðri telpu frá Kanada sem vantaði ferðafélaga. Það hefur gengið ágætlega, byrjuðum á Gullfoss og Geysir og síðan gist í Áningu. Vorum fyrir þetta búin að fara ásamt Gumma netta í Bláa Lónið og það var víst á sama tíma og Pixies voru þarna en við áttuðum okkur auðvitað ekki á neinu. Þar var litli bróðir minn að verða geðveikur að grýta drullu í okkur öll. Fór síðan upp á hálendið og í Landmannalaugarnar en var ekkert spenntur fyrir að dýfa mér í þetta þörungaríki og snéri því til baka og niður í Vík. Gisti þar fyrir Flugleiðapunkta sem var þó erfið fæðing og djöfulsins Flugleiðir Íslands skítakompaní, maður þarf fyrst að borga eitthvað þjónustugjald og síðan eitthvað til viðbótar. Tilboð frá þeim um að leigja bíl var t.d. þannig að maður var ekki tryggður!! Skítakompaní! Nýjir staðir sem ég hef skoðað er t.d. "Kerið" á leiðinni til Selfoss. Landmannalaugar hafði ég ekki séð áður og hafði mjög gaman að keyra í sand og drulluvegunum þangað á "smábíl". "Hof" þar átti að vera einhvert blót gamalt tileynkað Þóri Þrumuguði en engar leyfar þess fann ég. Sá "Kirkjugólfið" hjá Kirkjubæjarklaustri. Nokkrar nýjar rollur hafa líka verið á veginum, engu vitrari en fyrirrennarar þeirra. Núna mættur í Höfn, þreyttur eftir mikla keyrslu og ætla að taka lífinu rólega í kvöld. Verð á þessum þvælingi fram til 6. júní. Guð einn veit hvað ég geri þá.

posted by Huginn 11:16 f.h.
|

mánudagur, maí 17, 2004

Ég í eyrðarleysi mínu var rétt í þessu að senda bréf á McDonalds. Bara einhver biluð hugmynd sem ég fékk:


Hello Marketing division!

I have been traveling all around the world, always eating at McDonalds. It´s the place for backpackers for sure! I was wondering if you like to inprint that idea more into the mind of young people, it gives McDonalds also a fresh image of travelling and being located all around the world!

For example, we would travel around the world for some period, always eating at McDonalds, wearing some cool T-shirts with "McDonalds - All around the world" and trying different meals of course though Big-Mac wouldn´t be let down!

Taking picture in different areas of the world with sub-pics of cool places from that area and much much more is possible to extract the idea further... Could be a good material for advertisement campaign.

Have some badly taken pictures at http://ferdalag.blogspot.com of me and from my last trip.

Cheers,
Thor (Huginn)

Mikið tjútt um helgina. Föstudaginn sátum við hjá Helga töffara og drukkum bjór ég, Gummi, Ingó, Helgi og Anna í fyrstu og svo bættust við fleiri góðir menn (Baldur Jamaika, Hilli, Gingang). Kíktum allir í bæinn, röltum niður laugarveginn vel drukknir og héldum áfram að drekka. Mikil og sársaukafull þynka sem fylgdi daginn eftir. Reyndar fyndið, þegar öllu var búið að loka og alveg undir morgun stóð ég í strætóröð á heimleið kemur hinn róninn, Gummi, trítlandi að mér. Algjörir rónar að hittast manna síðastir á leið úr bænum. Næsta dag var erfitt að byrja en ..hey... ég er svo vitlaus... þetta var laugardagskvöldið sem við vorum hjá Helga, drukkum þar yfir Eurovision og kíktum svo niður í bæ. Föstudaginn vorum við bara heima hjá Gumma og kíktum rétt á Hansen, Öngruðum vinkonur Önnu litlu og kíktum svo downtown í laugavegstrítl. Hittum félaga í bænum og svona og svo tókum bussið heim. Laugardaginn var Eurovision partý (uff, komin í marga hringi hérna).

Man ekki hvort ég hafi nefnd Bingo hjá Krossinum. Sátum með tveimur nett-skertum félögum þar við borð og fífluðumst mikið í þeim. Gummi vann eitthvað eldunartæki. Hægt að sjá mynd af þeim á http://www.krossinn.is

Leit rétt til Bigga áðan, en fyrr í kvöld kíktum við á Hansen án þess að sötra neitt. Kláraði bók, Lovestar, sem var frekar dræm þó átti hún fáein ljós augnablik...

posted by Huginn 6:06 e.h.
|

sunnudagur, maí 09, 2004

Tónleikar á krossinum í gær. Þar kom Árni Johnsen með skítsæmilegt uppistand en frekar dapurt undirspil. Náði þó smá stemmara. Síðan KK sem er fínasti tónlistarmaður! Gunnar í krossinum hress að predika þarna rétt milli atriða. Í lokin stigu á svið "Krossarar" og "djömmuðu" að eigin sögn. Voða stuð, gella þarna ein svo ég fór að spjalla við konuna við hlið mér sem er ein af kjarnanum í starfi trúfélagsins. "Heyrðu, mig langar til að spyrja þig, er þessi gullfallega stelpa þarna lengst til hægri lofuð?" Hún var bara hress og sagði svo ekki vera. Þá kom trompið" "Já, vinur minn er nefnilega helvíti heitur fyrir henni" og ég ætlaði að benda á Erik en benti á Gumma. Drullu nett, hann leit á móti og hún trúði öllu saman. Síðan fór hún að rabba við mig eitthvað meira og eina sem ég gerði var að hrósa í hástafi telpunni á sviðinu (sem var líka á plakati sem var dreyft um allan bæ sem auglýsing fyrir þessa tónleika). Eftir tónleikana fór hún að vilja kynna okkur fyrir stelpunni og þá sérstaklega Gumma. Helvíti fyndið... svo reyndar rétt á eftir tónleikana meðan fólk var enn í sætum vildi hún fá okkur upp á svið!! Ég sagði hratt og örugglega "Róleg,, alveg róleg!" "Við erum komnir til að kynnast Jesú, erum ekki alveg vissir, erum bara að stíga eitt skref í átt að drottni" og þá vildu þær endilega fá okkur inn í eitthvað herbergi og biðja fyrir okkur, dóttir Gunnars mætt í spjallið og allir í voða fíling og við skellihlæjandi. "Nei, við verðum að sannfærast í hjarta, ekki bara orði" sagði ég og þær voru bara sáttar og vildu endilega sjá okkur á fleiri samkomum. Ætluðum að mæta í dag en vorum of latir. Fullt af föngulegum kvenmönnum þarna. Ráfuðum þarna rétt um og kíktum svo á Egil.

Er að fá tvo kafla úr ævintýrasögu sem ég er að skrifa birta í veftímariti er nefnist "Verðandi" og fer til allra útgefenda. Nee.. varla að það komi neitt úr því en samt ferskt að troða slíku rusli upp á fólk...

Hef undanfarið áttað mig á því að ég er fingurbrotinn..eða svona... hreyfi helvíti alveg en eitthvað brotnað uppúr því það er komin kúla þarna sem er bara fyndið.
Læt mynda þetta til gamans og sé þá væntanlega einhverja beinflís þarna...

Gaf blóð, fór sér ferð með múttu til að standa í því, bara til að leggja sitt af mörkum og hvet ég alla til að gera slíkt hið sama þó ekki nema fyrir góðar veigar sem maður hlýtur að lokinni blóðgjöf. Lagði mig 3 þennan daginn útaf aumingjaskap og blóðleysi.

Ævintýraferð með brósa, kíktum í Keilu og einn helvítis leikur, tíu umferðir, kostar 600 kall á mann! Djöfull, var þetta ekki þrjúhundruð kall eða eitthvað? Jæja, spiluðum billjard og þythokkí og ég vann í öllu...hmm.. er ekki venjan að lofa þeim litlu að vinna? Eða á maður að beita á hann öfugri sálfræði, láta hann þurfa að leggja harðar að sér til að ná meiri árangri...

Tók skeipið í sundlauginni... einhver krakki búinn að vera erfiður við bróðir minn og fleiri í skólanum. Vandræðakrakki, búið að færa um bekk áður og er í einhverri greiningu. Fylgdi bróðir mínum eftir heim og ég talaði við hann og sagði að hann ætti að hætta þessarri vitleysu. Að þeir ættu bara að l´ta hvorn annan í friði enda búnir að slást eins og hundur og köttur undanfarið. Það virkaði ekki betur en svo að klukkutíma síðar þegar ég sæki bróðir minn er hann nýbúinn að gera einhvern andskota við hann og kyrkja með töskunni. Fékk þetta staðfest af öðrum krökkum og f´´ekk einfaldlega nóg af þessu rugli. Reif krakkann yfir eitthvað grindverk þarna og tók inn í sundlaugina í leit að kennaranum. Var brjálaður af reiði yfir þessarri endalausu heimsku og ætlaði að ræða þetta við sundkennarann... að hann þyrfti að hafa betri aðgætur á þeim og skamma þennan vitleysing. Fann engan kennara svo ég setti hann á bekk þarna og hundskammaði. Krakkinn forhertur virtist lítið kippa sér upp við hávært gargið sem allir aðrir stöðnuðu við og störðu á mig. Annarr umsjónarmaður þarna líka að skamma hann eitthvað en þetta er nú varla það síðasta af þessum krakka... skólinn er að reyna eitthvað en þetta endar bara með því að ég fari með krakkann til móður hans (veit hvar hún vinnur) og ræði málin (hún er víst að taka kæruleysið á þetta, skilur bar ekkert í því að skólinn hringi í sífellu í hana??#$%) .. er að taka svokallað fíflið a þetta... en jæja... Ég finn einhverja lausn á þessu!

Horfði á Buffalo Soldiers eða hvað þetta nýja grínverk heitir. Sorglegt, eitt atriði sem var kómískt en restin frekar döpur..og endirinn...puff... ég mála fallegri málverk! (það segir mikið um endirinn!) Horfði svo á Dumb and Dumber sem hefur lengi verið snilld ímínum huga en var bara döpur gömul kvikmynd...eða svona... ágæt en ekki sprenghlægileg eins og öll hin skiptin sem ég hef horft á hana... er þetta ekki bara orðið ég sem er orðinn svona kröfuharður? Tjaa.. þótti nú Dawn of the Dead vera snilld svo ég er ekki alveg að fella allar myndir...

Er að fara að mála næstu daga með þeim er ég kalla "faðir minn" ....

posted by Huginn 1:53 e.h.
|

fimmtudagur, maí 06, 2004

Já Dísa, drífum bara í þessu, sendu mér póst og við skellum okkur á deit! ...og já, Steini njáls! Ef Dísa klikkar tek ég það sem býðst og mæti í karla "lestina"!

Fór í klippingu sem heppnaðist frekar illa. Og djöfull... 10 mínútur í stólnum og rukkaður 2900 kall, þetta var bara rétt að snyrta hárið og þykir mér feitt okur. Ætlaði síðan að raka hökutoppinn af en hætti við á síðustu stundu.
Þannig var mál með vexti að ég var að kíkja í atvinnuviðtal. Sótti í gríni um framkvæmdastjórastöðu þjónustustofnunar og var boðaður í viðtal. Var val milli þess að fara í jakkafötum, nýsnyrtur án hökutopps eða gefa bara skít í þetta. Fórnaði viðtalinu fyrir snilldar hökutoppinn og er því jafn ljótur og ég var í gær...

Nú er bara beðið eftir Eurovision helginni. Ekki að ég hafi mikið gaman af sönglinu heldur svo mikið að gerast þessa helgi að maður verður nú að taka þátt! Um helgina ætlum við strákarnir á tónleika hjá krossinum því stórstirnið Árni Johnsen þjófur með meiru mætir. Verður snilld... "Guð blessi Johnsen þjófinn!"

Annars ekkert að frétta, hef ekki drukkið minn skáldamjöður of lengi og því strand í mínum aumkunarverðu skrifum.




posted by Huginn 9:40 f.h.
|

sunnudagur, maí 02, 2004

Mikið tjútt þessa helgina. Föstudaginn kíkti ég til Gingang sem átti afmæli. Sötrað þar og svo skutlaði blessunin systir mín okkur í bæinn. Celtic Cross er official meeting point orðið þegar maður kíkir í bæinn, fínt að hittast þar (hoppa út í hverfisgötu) og þar er líka mikið af hafnfirðingum og fleira ´folki sem maður þekkir. Það var kíkt á Viktor og einhverja fleiri staði. Boomkikker, þar sem áður var strípistaður, var loka áfangastaður og þar hitti ég Kolbrúnu, stelpu sem ég hafði hitt í Slóvakíu í sumar. Síðan laugardaginn, attur byrjað á Celtic Cross, síðan Grandrokk og ég kastaði inn smásögu í samkeppni þeirra en eigi litla von á verðlaunum enda um 100 sögur sem hafa borist inn í keppnina samkvæmt barþjóni. Sátum og spjölluðum við Lesbískar vinkonur mínar (hafði víst talað við eina þeirra fyrir löngu síðan á netinu og hún þekkti mig líka frá Flensborg). Rakst á Kristján og Hemma og var pólítíkin rædd og kom til tals að ég tæki 2.sæti á lista sem kendur er við tónlist og bauð fram fyrir einhverju síðan í sveitastjórnarkosningum hér í Hafnarfirðinum. Var minna drukkinn laugardaginn, bara í léttum fíling endaði ég á því að skoða mannlífið undir morgun. Einhver með blóðugt andlitið varla stóð í lappirnar að angra enn einn blindfullan gaurinn í leit að slagsmálum. Djöfull voru margir handónýtir drykkjumenn á ráfi þarna. Nokkuð um sætar stelpur jafnvel einar í chilli þarna. Tók síðan leigubíl með hafnfirðingi sem pikkaði um bólfélaga sinn. Sú stelpan spurði mig hvort hún ætti að fara með mér heim... gat núekki rænt telpunni frá hinum gaurnum svo ég svaraði því ekki. Fór í Bingó núna áðan, Erik var mjög sáttur þegar hann vann kvenmanns náttföt. Þau eru í stíl við rauða varalitinn sem hann á. Ég vann rakspýra og eitthvað túpudrasl.

Skuggaleg saga af Pufder gangi ónefnds aðila innan vinahópsins...uff... massa hommastemming greinilega í partýinu þegar við vorum farnir þarna á Laugardaginn. Uss... ég trúi ekki að ég eigi hommavini... jæja, kannski að það sé þá hægt að nota þá sem beitu til að lokka stelpur að okkkur?

Hehe... menn gerðu grín að mér fyrir klæðaburð... mjög kærulaus þessa dagana á klæðnað og var í ógeðslega hallærislegum hvítum strigaskóm á djamminu báða dagana. Það kom þó ekki að sök.

Í gær var Erik kominn með konu upp á arminn, fengum nú allir að þreyfa aðeins á barminum sem var ýturvaxinn. Hún rakkaði mig og Gumma hressilega niður, sagði að við værum bara eymingjar og að Erik væri alvöru karlmaður með meiru. Já, falleinkunn sem hún gaf okkur en við hlógum eins og geðveikir menn og ekki hefur það hjálpað mikið til.

Jæja, þá er komið ár síðan ég ákvað að hætta að vinna og taka chill pill á lífið. 1.maí 2003 - 1. maí 2004. Rosalegt líf! En á morgun lýkur þessu, ári síðar! Mun ég fara með föður mínum í sjálfboðavinnu í einhvern tíma.

posted by Huginn 11:43 f.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco