Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

sunnudagur, júlí 25, 2004

Fórum aftur á verslunartripp í dag. Rúmfatalagerinn þar sem Erik verslaði sér gluggagardínur. Þar eru tvíburasystur að vinna og ein mjög svo getnaðarleg telpa og ræddum við við þær allar. Fórum svo aftur í Dýraríkið og hittum þar vinkonu okkar hana Kristbjörgu og Pollý páfagauk. Létum kristbjörgu vita að froskurinn nafna hennar væri sátt í nýja búrinu sínu. Keyptum svo gegnsæjan fisk (sjást bara beinin og höfuð) sem við skýrðum Berglind (kölluð begga) eftir öðrum starfsmanni verslunarinnar og tilkynntum henni það hátt og skýrt. Þær eflaust farnar að telja okkur létt geðveika!

Skoðaði í fyrsta skipti myndir af mér við fæðingu. Eða hið minnsta á ég engar minningar um að hafa skoðað þetta áður. Sá svo fæðingarvottorð, fæddur 1:06 13. desember. 55 cm á lengd og 4440 eitthvað á þyngd minnir mig. Já, en meinið er að ég hef ekki hugmynd um hvað krakkar eru venjulega o.s.frv. Þessar tölur hafa því litla merkingu fyrir mér...

Handrit af Mr.Muller 2 er tilbúið! Stórtíðindi! Eins og þeir sem þekkja til sló stuttmyndin Mr. Muller hressilega í gegn á sínum tíma. Reyndar komst hún aldrei í almenna sýningu(dreifingu) að undanskyldum matsal Flensborgarskólans. Veit nú ekki hvort það verði af tökum á þessarri grínmynd en sjáum til...

Sast niður með Stefáni Hjaltalín og Sissó í gólfskálanum Keili og sötraði einn bjór. Ræddum allt og ekkert. Stefán talaði nú mestmegnis um Hinn gyllta fingur í Kópavogi og ég lofaði í hástafi pöntunarlistana frá Rússlandi.

Þó yfirleitt leggist ég nú ekki svo lágt að ræða kúk og pisshúmor þá er ég tilneiddur nú. Horfðum á imbann hjá Erik í gærkveldi meðan hann var að setja nýja parta í tölvurnar sínar. Þá var Egill Ortexíusjúklingur búinn að bryðja trefja og önnur fæðubótaefni og ég hef ALDREI fundið verri lykt en þá er fyllti vit okkar allt þetta kvöld. Hann var með stanslausan VINDGANG og íbúðin lyktaði öll! Ég þurfti nokkrum sinnum að ganga út úr íbúðinni enda var mér orðið flökurt af þessu próteinfyllta gasi... Við allir að drepast en honum var skemmt og þóttist ekkert finna.

Þar sem hvorki vinna né kona heldur í mig hér á klakanum er ég aftur farinn að efast um ágæti þess að vera um kyrrt. Er að rissa niður handrit að ferðaþætti er ég kalla "Á farandsfæti - Um endilanga Ameríku" og yrði um klassískt flakk bakpokaferðalangs. Sennilega færi ég til Ameríku, byrja efst á Íslendingaslóðum (L'Anse-aux-Meadows þar sem Leifur Eiríksson nam land) og fara svo niður austurhluta Canada, USA, Mexico og South America. Reyna svo að púsla saman þætti um þessa ferð og selja. Líf bakpokaferðalangsins, samferðamenn hans, söguslóðir og frægir staðir og ólíkt fólk og lönd er verða á veginum.

Fórum með sokkabúxur og kerti til Önnu hans Helga. Meðgöngugjöf eins og hún kallaði þetta sjálf. Sokkabuxurnar virkuðu svo litlar og við efuðumst um að þær myndu passa svo Gummi fór og prófaði. Honum tókst að troða sér í þetta og við skellihlógum. Öjj, sé enn fyrir mér háruga karlmannsleggina! En hún var annars bara mjög ánægð með þessa hlýju og stuðning sem við sýnum henni! :)

Lalalabamba eitthvað...

posted by Huginn 4:02 e.h.
|

laugardagur, júlí 24, 2004

Í dag keyptum við Salamöndru sem við nefndum Kristbjörg í höfuð á starfsmanni Dýraríkisins. Þar átti ég líka mikið og innihaldsríkt samtal við Pollý, sem er páfagaukur og á það til að bíta ókunnuga. Starfsmenn voru ekki vissir hvort ég eða fuglinn væru vitlausari er ég tók páfagaukaröddina á chattið.
Settum "froskinn" í búr hjá Agli með 5 ljótu gullfiskunum hans. Þetta er vikulegt uppátæki frá og með þessum degi.

Keyptum líka vikulegu gjöfina handa Önnu. Þetta sinn var það "slímugt" kerti og sokkabuxur. hehe...líkurnar á því að sokkabuxurnar passi eru þær sömu og að Guðmundur fari heim með grannri konu. Engar!

Keppti tvo leiki í dag í Tennismótinu. Vann einn en tapaði einum tæpt 6-4 og gafst þá upp. Mikil spenna og hefði fengið annan gullpening ef ég hefði harkað þetta af en féll því úr keppni. Já, það liggur fyrir að ég og Árni skráum okkur á Íslandsmeistaramótið! Bara upp á flippið.

Þetta blogg mitt er orðinn slíkur skítur undanfarið útaf því að það er ekkert að gerast í lífi mínu að mér sjálfum er farið að blöskra.

Og andskotinn. Foreldrar 3 bræðra úr Túnhvamminum kenna mér um óverknaðinn sem átti sér stað í party sem var haldið um daginn. Mjög fyndið því ég er saklaus auðvitað. Var einhver að ibba gogg við nágrannnana og ég stóð og fylgdist með. Svo auðvitað þurfti nágranninn að lýsa óverksmanninum sem hávöxnum, grönnur, ljóshærðum bjána. hehe... Dómur er fallinn hjá settinu, ég er sekur! Þýðir ekkert að benda þeim á ljósið! Bara nett, þá sleppur hinn raunverulegi sökudólgur með að vera hent að heiman!! :) Hún reyndar kryddaði þetta aðeins, en þarna var ofvöxnum brjósthaldara flaggað í stöng en hún talar um nærföt og fleira. Henni fannst þetta víst bara fyndið líka... Hef nú líka spottað húmor í föðurnum sem hlær af mér inn á milli þess að vera að saka mig um "glæpinn"...

Ahh... fjölskyldan að fara út að borða. Ég sem var að háma í mig tvo borgara á Kentucky. Verð nú að vega upp á móti allri hreyfingunni! Rétt eins og Ingvar lýðs sagði um daginn þá er ég eins og tálkuð spíta, er í topp formi og allur bjórbelgurinn er horfinn! :(

Adios!

posted by Huginn 11:36 f.h.
|

föstudagur, júlí 23, 2004

Rosaleg átök! Keppti í Tennis í 5 og hálfan tíma í dag! Úrvinda og á að mæta aftur í fyrramálið. Leikar atvikuðust þannig að ég og Árni unnum alla leiki í fyrstu deildinni okkar. Þegar við áttum að spila gegn hvor öðrum hafði ég setið leik og Árni orðinn heitur og valltaði mér upp. Ég auðvitað spældur enda hef ég verið að vinna yfirleitt undanfarið. Hann bara var On-fire og mjög ferskur í uppgjöfunum. Það kom þó ekki að sök, ég hélt áfram í næstu deild. Þar rúllaði ég mönnum upp sem hafa af sportinu árs reynslu og eru undir stöðugri handleiðslu þjálfara. Fékk gullpening fyrir vikið! Nú á morgun er það þriðja deildin, úrslitaleikur sem ég keppi um annan gullpening og hvort ég komist áfram. Þetta verður nú að teljast gott samt hjá mér og Árna, komnir með sitthvorn gullpeninginn eftir 3 vikur í sportinu!

En, leikurinn er klukkan fríking 9 í fyrramálið. Ég sef yfir mig eða mæti svo sjúskaður að þetta verður hlátur fyrir andstæðinginn. En jæja, fer samt til að sigra!


posted by Huginn 5:41 e.h.
|

Rétt í þessu reyndi ég að hvetja systur mína til dáða og taka þátt í Idol keppninni. Hún syngur vel en hefur ekki sinnt þessu. Sagði að ef hún myndi taka þátt þá myndi ég líka taka þátt og guð veit að ég er SLÆMUR söngvari!

Í gær fór ég með Brósa á einhverja útihátíð í Hafnarfirði. Verið að kasta rjómakökum í gaur og fl. sem var nokkuð fyndið. Nylon stigu svo skyndilega á svið. Virkuðu nú ansi smágerðar þessar elskur. Fyrstu tvö lögin þeirra skáru í eyru, hávær og skræk. En svo komu þessi tvö "frægu" lög þeirra og það var ágætt. Þurfa bara að passa sig að velja lögin rétt...

Í dag er Tennismót. Ég er víst orðinn skráður meðlimur í Tennisklúbbi Kópavogs. Tek þátt í "aumingja" riðlinum sem er fyrir byrjendur. Þegar búin að fá áheit frá móður minni að ef ég vinni þann riðil (og fái gullpening) fæ ég að launum Tennisbol. Spurning hvort fleiri vilja koma með áheit? Ef ég vinn aumingjariðilinn þá kemst maður upp og keppir við betri gaura. The only problem is, uppgjafirnar mínar sökka og ég er með strengi í þeim vöðvum sem ég nota til þess!
Þarna er alveg upp í bestu leikmenn Íslands svo maður getur kannski lært eitthvað af þeim bestu!

Erik mættur á klakann. Hann og Ingvar komu í heimsókn í gær. Hundurinn gellti eins og geðveikur væri að þeim. Mikill varðhundur þó lítill trítill. Spaðinn sem hann keypti mjög nettur og léttur en mögulegt að hann sé fyrir yngri spilendur...kemur í ljós.


posted by Huginn 4:49 f.h.
|

mánudagur, júlí 19, 2004

Langt síðan ég horfði á 70 mínútur en þátturinn í kvöld var ansi kræfur. Auðunn fékk að kyssa Pink rembingskossi og í staðinn á Pétur að kyssa 50 cent. Gullið í þessu öllu var hinsvegar commentið sem Pétur lét falla rasandi. "Þú færð að kyssa skvísu en ég þarf að kyssa einhvern MANNAPA"! Ég ætlaði ekki að geta hætt að hlæja. Svo auðvitað reyndi hann að afsaka rasismann. Þetta var alveg til að toppa daginn og ég fer með bros á vör til hvílu. Mjög fyndið. Ekki frá því að ég öfundi þessa töffara aðeins, að hitta stjörnurnar og tala nú ekki um ef þeir fá orðið að kyssa telpur á borð við Pink sem var mjög fönguleg í þessu viðtali!

posted by Huginn 4:31 e.h.
|

Mo og Gummo kíktum í sund á laugardaginn. Syntum eitthvað en mestmegnis sátum við bara og nutum sólarinnar. Fórum svo með Helga tilvonandi faðir í Baby-Sam að skoða. Erum svoddan græningjar að við vissum varla til hvers helmingurinn af dótinu þarna er brúklegur. Ég hélt t.d. að smekkur væri derhúfa o.s.frv!

Fór út að borða með family á Italy staðinn. Ég, mummy and daddy og systir. Var væntanlega verið að halda upp á að systir mín komst í kennaraháskólann. Ég bara kann ekki að meta pasta-fæði. Samt skipti ég einhverjum tveimur réttum með mömmu en þótti frekar dapurt. Það var því samþykkt að kíkja næst á nýjan stað eftir að hafa komið þarna tvisvar í röð á skömmum tíma.

Síðan um kvöldið var Ingó að taka upp stuttmyndina sína hjá Agli. Ég lét kasta mér þangað með 6 bjóra í för. Kveikti neista í mönnum og áður en varði var Heimish farinn heim og kominn aftur með fullt af bjór, Gingang mætti á svæðið og gott ef Baldur var ekki líka þarna. Sötruðum þarna í rólegheitum, ég starði nú eitthvað á "Interview with a Vampire" sem ég hafði að mestu gleymt. Svo bara fórum við í bæinn...

Þar átti ég að hitta einhverja telpu sem ég hafði verið í SMS chatti við. Ákváðum að skipta allir um nöfn. Ég hét Gummi, Gulli hét Huginn, Heimish hét Gulli og Gummo hét Heimish. Þannig var það Gulli sem þóttist vera ég, fór til stelpunnar og kallaði hana röngu nafni. hahah.. fór víst allt í hundana þá strax og við yfirgáfum svæðið. Fljótlega fékk ég SMS á mjög neikvæðum nótum frá stelpunni en ég afsakaði það nú eitthvað. Á leiðinni niður laugarveginn hittum við einhverjar tvær stelpur sem voru túristar. Drengirnir héldu áfram en ég spjallaði við þær og endaði með því að ég og önnur sú þýska vorum komin á Celtic Cross að dansa. Fórum svo á Glaumbar og aftur vildi hún DANSA...jukk..gafst upp að lokum og kvaddi hana og kíkti á strákana. Eftir Glaumbar, klukkan orðin margt, var læðst inn á Boomkikker. Hitti æskufélaga úr Mosfellsbæ, jú, reyndar áður en ég fór á Boomkikker splæsti ég Hlölla bát á mig og tvær vinkonur systur minnar. Var mikið í einhverri slíkri heimsku þetta kvöld. Þegar við komum út af Boomkikker vorum við orðnir söngelskir. Ég hélt ræðu um útlendingavandann, gyðinga og svarta manninn fyrir eyrum á þriðja tug manns. Misjafnar undirtektir en við mörseruðum í burtu að lokinni ræðu. Gummi að angra einhvern róna sem reyndi að sofa. Drullu fyndið... Fengum okkur að éta rétt í 10-11 og ákvaðum síðan að leggjast til hvílu á grasblettinn hjá Kaffi París, sólin var svo gott sem komin upp og góður stemmari enn í hópnum. Leið nú ekki á löngu þar til Lögreglan var farin að atast eitthvað í okkur fyrir að liggja þarna. Ætluðum nú bara að hinkra eftir opnum, fá okkur måske einn bjór á Kaffi París eða svo... Einn sjóaður róni þarna að gefa okkur gullmola. Fór með mikið af vísum, söng þær og var hinn mesti skemmtikraftur. Lögreglan hinsvegar leiddi Gummo burt, en í bifreiðinni sat róni sem var að æla út um hurðina. Viðbjóður. Ég blótaði lögreglunni í sand og ösku. Meðan Gummo var í burtu komu 2 lögreglur, ein hugguleg telpa. Kom að mér og kraup og starði á mig. Ég sagði þá í sífellu við Gulla, "Gulli, djöfull er þetta sæt stelpa" og horfði á hana og svo útskýrði ég fyrir henni að ég hefði fullan rétt á því að liggja þarna í sólinni og hinkra eftir að Kaffi Paris opni. Að endingu skyldi þessi elska tilgang veru okkar þarna og fór. Gummi kom skokkandi stuttu seinna og róninn var þá einmitt í miðjum skemmtisöngi fyrir okkur. Lögðum okkur og þegar ég vaknaði hafði einhver séð auman á mér og fært mér hamborgara. Hamborgari beint fyrir framan nefnið á mér sem einhver hefur skilið eftir handa mér en ég snerti samt ekki. Fullt af túristum á ferð, sólin skein og París fullt af fólki. Biggi bók kominn að sækja okkur, ég tók lúður og flautaði yfir mannskapnum og við kölluðum FH til æfingar nokkur skipti. Fórum á Kenna(kfc), blésum í lúðurinn þar nokkru sinnum svo nötraði í byggingunni. Svo bara keyrðir heim og allir sammála um að þetta hafi verið létt geðveiki.

Sunnudagurinn bara rólegur. Ekki mikil þynka því drykkjan var hófleg daginn áður.

posted by Huginn 4:36 f.h.
|

föstudagur, júlí 16, 2004

Bróðir minn er víst með blogg... Þar sem ég er sokkinn á bottninn og orðinn leiðinlegri en allt leiðinlegt vil ég benda fólki á að kíkja inn á hann http://www.folk.is/bili.

Erik var rétt í þessu að hringja frá USA. Sprækur strákurinn að telja niður þar til ferðinni lýkur. http://darkdirksteel.blogspot.com

Gaur sem var á smágröfu í dag á sumarbústaðalandinu var allan tímann með einhverja pípu lafandi í kjaftinum án þess að reykja hana. Mjög skondið. Ég var í að leggja rör, grafa holur, moka skít upp úr fjósi bóndans og í holurnar, vökva tréin o.s.frv. (Moka skít, I love it!) 8 tíma turn og ég missti af sundferð með Helga og Regular tennis ferð fyrir vikið og með fullt af fallegum blöðrum og nokkur blóðug svöðulsár eftir vinnu síðustu daga. Og svo umbun fyrir vikuvinnu, jú, kippa af Víking bjór og ég brosi mínu breiðasta. Spurning um að innbirgja þessu áfengi á morgun?

Var að horfa á Whole Ten Yards eða hvað þessi hörmulega Bruce Willis "hit-man" mynd heitir. Sorp! Ég beið endalaust eftir einhverju smá tvisti sem kom svo sannarlega ekki.

Af Simba "the Ratdog" er það að frétta að hann kann nú að hoppa, sitja, leggjast og vera kyrr. Ældi reyndar ógeðslegri grænni slímu á landinu í dag og svo svaf hann í fanginu á mér og saman hrutum við og slefuðum á heimleiðinni. Ætlaði að kenna honum að "deyja" en móðir mín snappaði "Ekki vera með þessi fíflalæti!". Hef þó fengið leyfi til að kenna honum að snúast í hringi og elta skottið á sér sem gæti orðið mjög áhugavert...

Á dagskrá: Sund snemma á morgun í Bongó-blíðu!

posted by Huginn 5:10 e.h.
|

fimmtudagur, júlí 15, 2004

Lítill gulur miði liggur fyrir framan mig og angrar. Á honum stendur "Viltu vera sjálfboðaliði úti í heimi?". Meðal annars Indland í boði. Djöfull freistast ég af því að skoða þetta land sem hefur fengið mjög góð meðmæli ...

Fór með Árna á leik Víkings-Fram sem var mjög dapur. Reyndar nett að ég fékk lánað VIP kortið hans og fékk frýjan bjór í hálfleik. Sötraði aðeins fyrir leik og þá skyndilega kom hópur Íra syngjandi inn í dúndur fíling. Sungu svo hærra en allir aðrir og héldu uppi fínni stemmingu á vellinum.

Er að spila daglega Tennis 2 tíma í senn ca. Var að vinna í dag með pabba í húsi sem hann er að klára og á morgun fer ég út á land að gróðursetja á sumarbústaðalandi sem foreldrarnir keyptu nýlega. Verið að nýðast á mér! :)

Velt því fyrir mér nýlega afhverju strætóbílstjórar virðast vera mestu Hönk í heimi. Litlar stúlkur og alveg upp í fullvaxta konur með bústna barma hanga frammí og slefa yfir þessum blessuðu bílstjórum. "Uniformið" virðist ómótstæðilegt, sá um daginn gullfallega telpu þarna sem hélt ekki vatni! Hvað gengur að slíkri telpu?

Var að skoða Videóupptökuvél, Panasonic junk með 3CCD (3 litaflögur or something) sem á víst að vera voða fínt. Hef nú tekið þá ákvörðun að taka upp næstu ferð hvenær sem það svo verður að ég fari aftur "á veginn" (on the road). Gera þá heimildamynd um flakkið. Sé bara eftir að hafa ekki tekið upp ferðir okkar Gumma, bæði Austur-evrópu flakkið á sínum tíma og þá líka Arabaferðina sem hefði verið snilld á teipi!

Búinn að lesa allar bækur sem ég átti ólesnar og tók því tvær stórar þungar torlesnar viðskiptafræðibækur á bókasafninu sem ég mun drekkja sorgum mínum yfir næstu daga. Rifja aðeins upp.

Já, var að lesa blogg hjá Vilborgu sem commentaði hérna í síðasta þræði. Eitt kom fram þar sem við Gummi höfum verið að átta okkur á undanfarið. Við bara hreinlega nennum ekki að hafa fyrir lífinu. Engar sjálfsmorðshugleiðingar eða neitt. Við bara erum ekki að nenna þessu! Svo tilgangslaust á köflum og við eins kærulausir og uppstoppuðu bangsarnir mínir þessa dagana að þetta meikar ekkert sens að hafa fyrir öllu þessu helvíti. Afhverju á maður t.d. að vera að vinna eins og blökkumaður? Til þess að borga afborganir af bílnum og húsinu? Til að komast á fjagra ára fresti í vikuferð með fjölskyldunni? Mig skortir svoldið þessa sýn á tilgang gangverksins... eða öllu heldur, hvar fitta ég inn í þennan blessaða alheim okkar. Svo þegar ég fell inn í hugsanir um þróunarsögu mannsins, þó við séum nú lengra komin en aðrar skepnur erum við ekkert svo ólík. Líf okkar í raun snýst um að afla fæðu, ríða og eignast börn. Svo búið að flækja þetta með samfélagsskipun. Við fáum vinnu í stað þess að ráfa út á akur og tína eplið sjálf. Engu að síður erum við í einfeldni okkar bara að eltast við það sem kvatirnar hafa kennt okkur svo við komumst af. Fjölga okkur eins og kanínunar og flugurnar... Manni er oft spurn hvort maður nenni að taka meðalmennskuna á þetta. Brölta í gegnum þetta völundarhús... Gerast bara frekar Hobo (róni) og gefa skít í þetta?
Og hvað svo? Maður drepst bara og ekkert meir! (þó blessaðir guðhræddir prediki annað) Allt bú! Já, nei, auðvitað er fjör og stuð yfirleitt í lífinu. Hægt að njóta þess meðan það varir. En maður þarf að passa sig að láta ekki innprenta í sig hugmyndir um eitthvað bull. Staðlað, rótgróið og drepleiðinlegt líf og svo vaknar maður í besta lagi háaldraður og fer eina ferð til Bahamas. jæja... slíkar hugsanir er erfitt að festa á blað og læt ég þetta gott heita. Já, kannski að ég taki upp á því að hafa reglulega heimspekilega pistla.

Ég er reyndar "on fire" og læt því einhverja leiðinlegustu umræðu fylgja. Ég reyni hér að útskýra hversvegna verður ekki unnt að ferðast um tíma! Margir frægir vísindamenn hafa verið með þessa grillu í hausnum en einfalda rökhugsun tel ég nægja til að útiloka tímaflakk. Endilega spyrja mig nánar út í, rökræða o.s.frv. ef ykkur þykir þetta óskýrt eða rangt :)

Tími er í einfeldni sinni aðeins viðmið. "Mælieinin" mannsins á innbyrðis hreyfingu tveggja hluta samansettum úr efnum. Í okkar tilfelli er það jörðin sem snýst um sólina og þau áhrif sem mismunandi staða hennar hefur á birtu, aðdráttarafl o.s.frv. Alheimurinn er bara einn hrærigrautur efna. Tími er í raun ekki til nema í hausnum á okkur. Við getum borið saman "hraða" hreyfinganna og þannig myndað mælieininguna "tími". Þannig er í grunninn enginn tími heldur aðeins efni og virkni þeirra. Jafnvel Þó maður ímyndi sér að hægt sé að komast hraðar en ljósið þýðir það ekki að þú ferðist aftur eða fram um tíma. Hinsvegar myndi sú hreyfing hafa áhrif á umhverfið. Endurvarp ljóssins af slíkri hreyfingu á "efni" gæti vel orðið brengluð útaf hraðanum sem er þá meiri en kast birtunnar. Innbyrðis áhrif efnanna kynni líka að riðlast á því augnabliki o.s.frv. Það væri hægt að ímynda sér að ef einhver þekkti nákvæma hreyfingu efnanna og byggi yfir tækni til að færa þau aftur væri hægt að "spóla til baka". Slíkt væri auðvitað ekki tímaflakk í eðli sínu heldur sömu áhrif og ef klaki bráðnar og svo er hann frystur á ný þá ertu aftur kominn með upphaflegt ástand efnanna. Áfram er allt annað hið sama!
Það er hinsvegar mögulegt að með því að ferðast hraðar en ljósið geti maður horft á fortíðina. Komist framfyrir ljóskast hlutanna og séð þá gerast. Líkt og við gerum núna er við horfum á stjörnur er hafa måske sprungið fyrir löngu. Uss... ég er geðveikur... hehehe... man einmitt að þessa umræðu tók ég við Gumma og Bigga í flugvél frá Frakklandi. Bauð þeim þangað fyrir þónokkrum árum síðan og svo bara angraði ég þá massivt í flugvélinni með þessu röfli mínu.

Spurning hvort þetta sé ekki heimsmet í bæði leiðindum og löngu bloggi?
Adios!

posted by Huginn 5:12 e.h.
|

sunnudagur, júlí 11, 2004

Ég rakaði af mér skeggið í einhverju geðveikiskasti. Síðan tók ég af mér passamynd fyrir atvinnuumsókn sem ég ætla måske að senda út á einhver valin fyrirtæki. Það er komið að þessu, alvara lífsins að hefjast á ný!

Er með bólgin kjaft akkurat núna. Hefur komið ca. á 2-3 mánaðafresti að þessir blessuðu endajaxlar sem ég hefði átt að láta rífa úr mér á sínum tíma hafa eipað. Vildi bara ekki gera tannlækninum það til geðs að láta rífa þetta úr enda ráðleggja þeir öllum slíkt til að fá sem mest af peningum helvískir!
Bólgna því upp þegar seinni tveir reyna að komast upp, eru komnir hálfa leið en virðast ætla að rembast og rembast þar til þeir ná markmiðinu... Vaknaði tvisvar í nótt útaf "constant pain". Get ekki tuggið núna svo ég gleypti nánast brauðsneyðar í heilu lagi áðan!

Ætla að kaupa mér sumarkort í Tennis og sjá svo til hvað ég nota af því. Ef ég skyldi fara eina stutta 1-3 vikna lokaferð þá bara verður það að hafa það og ég missi út einhvern tíma. Stenst bara ekki unað Tennisins og að sprikla loksins aðeins í salnum þarna...

Horfði á Porn Star með Ron Jeremy í gærkvöldi. Skemmdur gaur í athyglissýki en þvílíkt magn af konum sem hann hefur sængað hjá! Væri maður ekki kominn með leið á þessu? Ný ókunnug kona á hverjum degi...

Heimsóttum Önnu eiginkonu Helga með gjöf í dag. Ætlum að gera þetta að reglulegum atburði, (kíkjum næst með gjöf þegar Gummi kemur af sjónum). Höfum verið í léttu flippi og látið hana skila kveðju til starfsfélaga síns sem á að vera fögur ung kona en ég ekki séð alveg nógu vel ennþá. Bara upp á flippið, reyna að hafa gaman af þessu tilbreytingarlitla lífi.

posted by Huginn 11:18 f.h.
|

miðvikudagur, júlí 07, 2004

Tennis alla daga út vikuna. Ég og Árni félagi erum að fá leiðsögn klukkan fimm alla daga hjá pottþéttum þjálfara í Tennishöllinni. Jafnvel að við kaupum svo sumarkort og stundum þetta það sem eftir lifir sumri.

Metallica tónleikarnir. Fínt fyrir utan meðan maður sötraði og angraði fólk. Sáum meðal annars um að opna og loka hliðinu þar sem stjörnurnar mættu útaf einhverju klúðri í gæslu. Vantaði bara fólk til að sjá um hliðið. Sáum Lars Ulrich og opnuðum fyrir hinum og þessum öðrum.
Ég verð að viðurkenna að tónleikarnir sjálfir voru vonbrigði. Fór fremst í svitabað, sá þar frændur tvo úr Mosó. Svo bara endalaus bið eftir hljómsveitinni og þegar þeir loksins byrjuðu heyrði ég ekki mikið í söngnum. Illa stillt eða hljómburður lélegur. Fór út og var bara mjög lítið stemmdur. Ákvað að gefa þessu annað try, fór inn í þvöguna og þetta var bara ekkert að gera sig fyrir mig. Endaði svo á hliðarlínunni þar sem heyrðist betur. Rennblautur af svita og það rigndi úr loftinu líka! Ahh, menn sem hrósa þessu ættu að prófa alvöru tónleika/útihátíðir. Þvílíkt sound á t.d. Roskilde! Þetta kemst bara ekki í námunda við það og því var ég mjög svekktur.

Danskur maður sem sendi á mig skeyti og segist koma heim eftir 1-2 daga og þá fæ ég á hreynt hvort ég skelli mér með honum til Ameríku. Hann er með bíl sem hefur verið gerður upp fyrir svona ferð og lofar góðu.

Hef ákveðið að kaupa mér íbúð. Komið gott hérna heima með settið yfir sér öllum stundum. Þá er bara að tæma bankabókina og láta vaða. Kaupi eflaust íbúð með 3 herbergjum og leigi út tvö og bý til hippa-kommunu. En þetta þýðir auðvitað að ég fer loksins að vinna aftur!

Fórum á FH leik, reyndar komum í hálfleik og sáum mark KR. Sá að það er miklu meiri stemmari á boltanum ef maður er drukkinn. Edrú er maður lítið stemmdur fyrir hróp og því náðist aldrei upp sami andinn og á Skaganum um daginn þó svo sannarlega hafi verið flautað og kallað eitthvað!

Svo stari ég líklega á Shrek2 í kvöld...

posted by Huginn 3:03 e.h.
|

laugardagur, júlí 03, 2004

Í gær, föstudag, horfði ég, Gummo, Helgi og Anna á myndina "Run Ronny Run". Myndin er um low-life white-trash Ronny sem kemst aftur og aftur í kast við lögin. Kom sterk inn. Svartur húmor. Eða var ég bara kominn með næturgalsa?

Kíkti á Metallica heimildarmynd áðan til að hita upp. Var fín. Svo "Big Fish" hjá Bigga netta sem er "Forrest Gump" wannabe. Ekki nógu góð en átti nokkur góð atriði svo hægt var að hlægja...

Ahh, þreyttur og leiðinlegur en á morgun er það Metallica! Ætlum að sitja fyrir utan frá ca. 5 og sötra bjór og fylgjst með fólkinu koma ef veður verður ekki eitthvað helvíti. Fólk ætti að geta séð okkur þarna rónalega nokkra í hóp þegar það mætir og rætt heimsmálin við okkur.

Fórum á fimmtudag að sækja eitthvað fyrir móður mína. Ég, Egill og Gauti. Þurftum að bíða í 30-40 mínútur því það kom í ljós að móðir mín var ekki búin að ganga frá þessarri blessuðu pöntun. Já, svosannarlega ekkert einsdæmi!

Ég stóð í þeirri trú að ég væri kominn heim frá Arabalöndunum en svo sá ég konu með slæðu og tvo krakka með Mið-austurlanda look og klippingu. Allt að fyllast af útlendingum hérna á Íslandi! Tölur sem ég skoðaði fyrir tveimur árum síðan um fólksfjölgun sýndu að helmingur fjölgunar er tilkominn vegna aðfluttra útlendinga! Það þýðir auðvitað að ef það er reiknað út í hið óendanlega að í framtíðinni verði helmingur þjóðarinnar af íslensku bergi brotinn og helmingur af erlendu. Nema auðvitað að slíkt gerir ekki ráð fyrir blöndun sem er óhjákvæmileg. Ekkert að blóta þessu, þetta er bara óhjákvæmlegt en samt umhugsunarefni. Litla Víkingagenið okkar blandast og í fjarlægri framtíð måske bara einn kynstofn? :)

....

posted by Huginn 7:56 e.h.
|

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Ég var rétt í þessu að framkvæma "tilraun dagsins". Egill var svo ljúfur í gær að gefa mér 5 mánaða snakk sem hann átti uppí skáp. Vildi losna við þetta og einhverra hluta vegna tróð þessu upp á mig, segist ekki borða þetta sjálfur. Þrír pokar, einn kannast ég nú sjálfur við og hann er endalaust gamall. Svo átti ég rúmlega mánaðargamla "voga ídýfu" sem er búin að vera opin allan þann tíma. Var að japla á þessu, einn snakkpokinn reyndar ekki ætur, át nokkur stykki og gafst upp, lynt og viðbjóðslegt. Svo sósan, þvílíkt eftirbragð! Majonesið eða hvað er í þessu er handónýtt! Tilraunin er nú ekki flóknari en svo að nú bíð ég og athuga hvort ég fái verk í belginn.

Er að stara á leikinn með öðru auganu. Ekki nóg að gerast svo ég bara lét 90 mínúturnar nægja með bæði augu... Væri nú fyndið ef Grikkir tækju þetta og þá er komin lokaeinvígi við Portúgal. Ná þeir þá að sigra þá aftur eða hefna Portúgalar?

hmm... það er nú eitthvað að gerjast í belgnum... jújú, verður áhugavert að fylgjast með framvindu.

Þvílík snilld sem ég fann í gær. Gaur sem er að fara heimsreisu. Búinn að innrétta bíl og alles. Ég sendi honum auðvitað skeyti til að forvitnast. Slóðin á þetta "project" hans er http://landy-rtw.com/. Væri nú til í að taka fyrsta hlutann með honum, Norður Ameríkuna, og sjá svo til. Hann var einmitt að missa ferðafélaga og óskar eftir einhverjum til að krúsa með sér.

Ái, ég sver það, maginn strax farinn að kvarta! En hann er nú ýmsu vanur eftir rottufæðið sem maður lét ofan í sig í Egyptalandi. En ávallt mjög fljótur að láta vita ef matur er skemmdur...

Jú, Grikkir voru að skora! Og já, ég hendi þessu helvítis snakki!

posted by Huginn 1:43 e.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco