laugardagur, ágúst 28, 2004
Benidorm eftir 1 og hálfa viku!
Byrjaður að aðstoða pabba við að reisa sumarbústað rétt hjá Laugarvatni. Hamra, bora og allur pakkinn! Sveittur verkamaður og líklega að hjálpa honum alla næstu viku. Glæsilegur bústaður þegar þetta verður ready og kalla ég þetta "Vota-kot" enda mun ég vart dvelja þarna án þess að hella í mig óhóflegu magni af gleði-vökva.
Sátum í kvöld, ég, Gummo og Erik og chilluðum. Ákváðum að Aðdáendaklúbbur Dagbjartar hefði þarft verk að vinna. Fórum því með 22 kerti og tendruðum fyrir utan biðskýlið þar sem rúta Álversins stoppar. Settum þar orðsendingu til stelpunnar og teiknuðum fallegt hjarta. Kertunum var svo raðað hjartalaga í kring. Svo kom rútan aðeins of snemma og ég og Gummi fórum skellihlæjandi í skjól en Erik rétt svo náði að kasta sér inn í einhvern runna. Stelpan var víst hæstánægð með þetta og starfsemi klúbbsins. Reyndar 20 mínútum síðar gerðum við þá skissu að vera á trítli og hún keyrði framhjá og sá okkur svo þetta var ekki eins vel heppnað og leit út fyrir í fyrstu...
Síðasta Fimmtudag kíktum við Erik stutt á Hansen. Þar voru Benidorm menn mættir og ferðin rædd. Mjög rólegt kvöld. Aðeins kíkt inn á Aróma. Þar þráaðist ég við og vildi meina að tveir tvítugir drengir væru bara 15 ára (ég vissi ekki betur) svo lág við að þeirra tannstöngull gæfi sig. En að lokum vorum við orðnir góðir félagar. Drakk 8-9 bjóra og vaknaði svo átta morguninn eftir til vinnu og ekki vitund þunnur. Hef tekið eftir þessu undanfarið að þó ég drekki upp undir tíu bjóra þá verð ég ekki þunnur að ráði. Ekki fyrr en ég fer í meira magn..
Labbaði niður Laugaveginn með Ís í hendi á fimmtudag. Bara að chilla og skoða mannlífið. Renndi yfir alla Lonely Planet Madrid bókina en ég og Baldur ætlum þangað á eitthvað flakk fyrstu 3 dagana af Spánarferðinni. Brjóta þetta aðeins upp! Baldur þekkir víst einhverjar endalaust fagrar Senjórítur þarna!
Fór með brósa á golfmót í morgun, skítakuldi, vindur og smá úði og ég stóð þarna með honum í tvo tíma. Fékk nú allavegana appelsín og súkkulaði í laun fyrir. Svo er ég núna að skoða sett í Hagkaup, 19.990 og lítur ágætlega út. Topp Flight merki... þekkir einhver til, hvort þetta sé brúkanlegt? Ja, þarf nú örugglega golfsett fyrir næsta sumar en geri passlega ráð fyrir smá iðkun í framtíðinni. Maður getur ekki talist vera í Bizniss nema vera í golfinu!
posted by Huginn 7:36 e.h.
|
mánudagur, ágúst 23, 2004
Búinn að bóka flug út til Spánar! Núna er leitin að Hóteli á góðum prís og ef einhver þekkir til eru comment um slíkt vel þegin. Verðum á Benidorm en ég að íhuga að kíkja á Madrid fyrstu dagana. Flogið út áttunda og svo kem ég heim tveimur vikum síðar og fer þá líklegast beint til US og Kanada. Skrautlegt verður það! Enn óákveðinn hversu lengi sú dvöl varir.
Vann mér inn aðra bjórkippu áðan í tennis gegn Árna. Strákurinn náði sér ekki á strik í dag og var þetta frekar ójafnt. En þetta gerist reglulega, okkur fer fram í rykkjum og núna hallar á hann enda ég kominn með uppgjafirnar í lag!
posted by Huginn 4:04 e.h.
|
sunnudagur, ágúst 22, 2004
Stór plön!
Spaino í 2 vikur og Kanada í 3 vikur. Klára "ferðasjóðinn" og hætta svo þessarri vitleysu :) Félagarnir margir að skipuleggja hópferð til Spánar þar sem stefnan er á MIKIÐ chill og pöbbarölt. Sjálfur myndi ég vilja eyða nokkrum dögum í Madrid og þar í kring. Jæja, þá er væntanlega að bloggið verði meira krassandi á næstunni!
posted by Huginn 4:41 e.h.
|
Ég var að skila mér heim fyrir ca. 10 mínútum. Rosalegt djamm og var temmilegur allt kvöldið sem telst nú til afreka!
Sátum á Arnarhóli með kælibox og bjóra og sötruðum. Ég var í því að lyfta krökkum upp og svo taka grátandi krakka niður af styttunni. Svo ég hætti að hjálpa þeim upp enda þýddi það bara vesen. Eitthvað um túrista þarna líka.
Ég hljóp niður einhvern risavaxinn Corolla bjór þarna. Mjög nett.. var manaður út í þetta og starfsmenn barsins ekki sáttir. Svo fórum við inn á einhver lítinn pub og viti menn, þar hitti ég stúlku minna drauma. Tinnu Marínu..hehe.. hún er reyndar mjög sæt og ég tók hálftíma dans og chat við hana en svo bara allt í einu kveð ég pent og fer mína leið með félögunum. Hvurn andskotinn gengur að mér? Afhverju lét ég ekki á þetta reyna?
Fór á Pravda. Hitti þar Stebba og Ragga og fleira fólk. Þetta kvöld var mjög ferskt. Svo inn á "Hressó" og hitti vinkonu mína Mýslan (með tengil hér á síðunni). Eitthvað taldi ég hana vera með viðhald þarna svo ég var farinn...
Svo auðvitað Viktor. Þar er alltaf gott að vera. Húsdýramarkaðurinn í sinni bestu mynd. Ég reyndar var ekkert að fíla mig þar svo ég fór. Hitti Laufeyu sem var endalaust hress og fagra KR vinkonu hennar Petru. Já, hefði nú betur verið aðeins ferskari, orðinn frekar drukkinn og illa talandi svo ég var nú ekki efni í mikið... jæja...
Svo hugsaði ég með sjálfum mér að taka trompið á Menningarnóttina. Gingang hringdi og var að fara heim og ég reyndar ætlaði að joina en eitthvað klikkaði svo ég bara ákvað að taka almennilegan róna á þetta. Sólin var komin upp og ekkert nema leggimann í stöðunni. Labbaði því upp á Arnarhól og tók leggimann á þetta þar til ég var vakinn... mjög ferskt... faðir minn skilur ekki þetta "tendancy" að leggja mig úti í náttúrunni. Hristi hausinn þegar ég sagði honum frá þessu. Afhverju er ég að fíla það að leggja mig downtown?
Át rétt í þessu tvær upphitaðar osta-skinku-brauðsneiðar og tvö egg. Mettur og sáttur með lífið á leið í háttinn... En vá hvað ég hitti mikið af fögru kvenfólki í gær án þess þó að gera nokkur skapaðn hlut! :)
posted by Huginn 4:57 f.h.
|
föstudagur, ágúst 20, 2004
Erum farnir að leggja undir á Tennisleikina. Í dag var það kippa af bjór og bíð ég spenntur eftir að sjá hvernig bjór Árni færir mér. Reglurnar eru einfaldar, sömu tegund má ekki gefa tvisvar og skila verður bjórnum ekki síðar en þarnæsta skipti sem hisst er eftir viðureignina...
Djöfull eru Dominos pizzur mikill skítur. Rusl algjört, engin litbrigði heldur nagar maður í þetta eins og hverja aðra brauðskorpu!
Líklega kíki ég bara á netið á eftir, spila svona multiplayer stríðsleik á netinu með tugum manna sem er nokkuð nett nema ég er enn frekar mikill "sökker" í þessu. En það breytist fljótt!
posted by Huginn 1:08 e.h.
|
Sund, sund sund, það er prógram upp á hvern dag. Ég og Erik kíktum svo á Hansen í gær. Fínt sötr og svo rétt farið yfir á Aróma. Spjallað á sænsku/dönsku við einhverjar sænskar en kvaddi svo pent. Vildi jú æfa mig aðeins...
Það sem er þó skondnast við þetta er sagan af Erik litla eftir að við kvöddumst. Hann fór heim til sín og sast á dolluna, þegar því var lokið þurfti hann að æla. Svo man hann ekki meir en vaknar einhverjum stundum síðar allsnakin (með nærbuxurnar á hælunum) hrískjálfandi á köldu baðgólfinu. hahaha.. þvílík snilld, ég sé þetta fyrir mér! Hann liggjandi but-naked með nærbuxurnar lafandi þarna. Var drengurinn að leika við félagann og sofnaði út frá því?
Ísland-Ítalía, jaa.. ítalir gátu ekkert af því að dæma sem ég sá af leiknum. En vonandi að af þessu verði framhald og okkar lið komist nú á skrið, en ég reyndar stórefast um það!
Tomorrow- Menningarnótt! En núna er Tennis og Sund, hreyfa af sér þessa 9 bjóra sem rötuðu ofan í mig í gær...
posted by Huginn 10:04 f.h.
|
fimmtudagur, ágúst 19, 2004
Keypti mér nýjan Tennisspaða í gær. Landsliðsþjálfarinn kom og spurði mig hvort ég vildi kaupa spaða sem hann hafði nýlega keypt en þurfti ekki að nota. Sá væntanlega að ég var að nota algjört "pís of shit". Svo ég skellti mér á gripinn. Windson Hammer 4, er víst klassa spaði notaður af "elítunni". Kostaði mig 9000 kr. og er bara nokkuð sáttur. Prufukeyrði gripinn á móti Erik í gær, hann reyndar glettilega góður miða við að hann hefur tekið sér langa pásu á spilun en féll auðvitað að lokum! Fór í tvær sundferðir í gær! Eina um daginn og svo eina sveittur eftir tennis til að skola mig rétt...
Hef af og til trítlað heim frá Sporthúsinu(kóp). Dággóðurs göngutúr! Gekk heim á þriðjudaginn og gerðist voðalegt náttúrubarn. Ekki nóg með það að mávarnir ráðast alltaf á mann á Arnarneshæðinni þá var ég að reyna að gefa villtri kanínu gras og svo tínandi ber og japlandi á. Trítlaði yfir garðabæjarhraunið mestmegnis utan stígs svo það var up&down alla leið. Já, tekur líklegast um 30+ mínutur að labba heim í hvammana(hfj).
posted by Huginn 5:55 f.h.
|
miðvikudagur, ágúst 18, 2004
Jæja,, það er búið að leiðrétta þetta kortarugl. Færslurnar fóru allar tvisvar í gegn. Uff, leist heldur ekkert á blikuna! En samt sem áður, 2700 á Kebab húsinu verður að teljast ágætustu innkaup!
posted by Huginn 5:41 f.h.
|
mánudagur, ágúst 16, 2004
Djöfull, ég var að skoða færslur á korti sem ég nota eiginlega aldrei og viti menn. Eyddi 10.000 krónum á tveimur stöðum á Laugardagskvöldið. Uss..rosalegt. og rúmlega 5000 kr. á kebabhúsinu?? Ég man auðvitað ekkert, var svo drukkinn og skemmdur. En mig grunar að þetta sé eitthvað rugl, sömu færslur tvisvar, samtals 4 færslur á fríking Kebab húsi!! Hversu skemmdur verður maður? Ef einhver man þetta betur en ég þá vinsamlegast "give me a call".. mjög forvitinn hvað gerðist þarna. Hef væntanlega verið útataður í sósu eins og versta svín ef ég hef verið að troða öllum þessum bátum ofan í mig!! Svo bíð ég enn eftir að vita hvað hitt kortið segir... tekur lengri tíma með kreditkortadraslið I guess... þetta hefur væntannlega verið 20.000 króna djamm, þetta minnir mig bara á góðu gömlu tímana þegar ég var að strita fyrir launum og eyddi slíkum summum á hverju fyllerí án þess að blikna. En djö.. hefði nú betur eytt þessu á bar úti og fengið margfalt magn Mjöðurs ofan í mig fyrir þessa summu.
Var að fá bréf frá dönskum gaur sem ætlar að keyra um Ameríku á innréttuðum 4wheel kagga. Mjög nettur bíll og þá sleppur maður við gistingu. Hann er eitthvað félítill en segist ætla að leggja í hann einhverntímann næstu þrjá mánuðina. Ég gæti hæglega joinað held ég... en æjj... var nú að enda við að sækja um tvær áhugaverðar stöður í dag og ætli maður bíði ekki bara og sjái hvernig sú rimma fer.
posted by Huginn 5:22 e.h.
|
sunnudagur, ágúst 15, 2004
Það sem átti að vera róleg afmælisveisla hjá Halli félaga okkar endaði í allt of mikilli drykkju. Pakkaði inn "kristal" klukku og límdi á tvo sleikjóa og kerti sem ég tendraði fyrir utan og svo sungum við afmælisönginn þegar hann kom til dyra.
Hann veitti vel af áfengi og menn freistuðust. Brunað heim til mín og sótt Vodka og svo til Gumma að sötra. Ingó pikkaði okkur svo upp og aftur heim til mín að sækja meiri Vodka og svo sötrað. Komum ekki í bæinn fyrr en hálf þrjú. Ég var alltof ölvaður :( Ónefndur drengur fór á peep show og svo héldum við á Celtic. Æjj, svo kom þarna tími, kannski 30 mínútur, sem ég var svo ölvaður orðinn að ég hreinlega gat ekki talað skýrt. Var í símanum og bara réð ekki við að halda uppi samræðum ;/ uss... bara smá bömmer í manni útaf slíkri heimsku...
Grillað síðasta föstudag í góða veðrinu. Svo kom stríðnispúkkinn upp í okkur þar sem við fréttum að Dagbjört sem á sinn aðdáendaklúbb væri í sundi. Létum kalla hana upp og hún kom í símann. Rikardo bauð henni í Grill en hún þakkaði pent fyrir sig og sagðist vera nýbúin að borða. Mjög fínt, ég torgaði 3 stykkjum af kjöti á "Egilsmáta"... það er, kjöt með hrásalati einu saman... hollt og "próteinríkt" skylst mér.
Var mjög gaman í Tennismótinu. Ég var að gera grín að andstæðingunum sem voru miklu betri. Þann besta sakaði ég um að vera hræddur við að mæta okkur og svo framvegis. Menn hlógu bara og höfðu gaman af. Náði svo "Ás" sem er uppgjöf án þess að andstæðingurinn nái til boltans. Rakkaði þá andstæðinginn niður og sagði að það eina sem ég hefði séð hreyfast voru undrandi augun er rétt sáu boltann þjóta hjá. Annars töpuðum við stórt en náðum nú að skora stig og stig.
posted by Huginn 10:22 f.h.
|
miðvikudagur, ágúst 11, 2004
Fer líklega í klippingu á morgun. Tek þá bara aftan af hárinu en læt toppinn vera enda stefnan að safna síðu... "Eiparinn" þarf samt að fara þangað til toppurinn er orðinn lengri blehh... nenni ekki að ræða þetta, sé til á morgun!
Hef hritað niður uppkasti af grein sem ber fyrirsögnina "Hertökum Jan Mayen!" og er eilítið út frá hugmyndum Gummo um að fara þarna og gera tilkall til landsins, stinga íslenskum fána niður og lýsa yfir sjálfstæði frá Noregi. Eitthvað svona... auðvitað bara að grínast með þessum skrifum en ég er farinn að hata Normenn fyrir ódrengilega framgöngu í garð okkar þegar kemur að fiskimiðum... þeir hafa nú leyst Dani af sem féflettu okkur svo öldum skipti með einokunarversluninni. Eru þetta frændur vorir, er svífast einskis og blóðmjólka okkur fyrir fáeina ríkisdali?
Það var varla spilandi Tennis í dag útaf hitanum. Vorum bara að æfa okkur en töpuðum báðir stórt í fyrstu umferð Íslandsmeistaramótsins. Ég á leik á morgun og tapa honum án efa! Þarf nú að fá mér nýjan spaða og ná almennilegum tökum á uppgjöfunum, þá erum við farin að tala saman!
Djöfull er mér farið að hlakka til Menningarnætur. Sitja úti á bekk í Reykjavík og fylgjast með fólkinu og sötra bjór. Vera með klaka og kæla bjórinn. Þessi hiti hefur auðvitað hvetjandi áhrif líka! Höfum lengi ætlað að fara fyrr í bæinn, en alltaf erum við að mæta á djammið seint (um 2 síðustu skiptin) svo þetta ætti að breyta því loksins!
Brósi hélt upp á afmælið sitt í dag og ég át yfir mig af kökum! Lág svo afvelta að hlusta á spænskar spólur sem eru versta kennsluefni sem ég hef nokkru sinni komist yfir! hmm... þó hafa bæst við fáein orð. Le maleta=taskan. Padro=Faðir. Hijo=Sonur Hija=dóttir. Con=með. sin=án? hmm... er að rembast að muna fleiri... Senjor, Senjorita, Blanko, negro (þaðan kemur orðið negri væntanlega?), Habla=tala, erste=þessi,.. æjj, man ekki meir...Passaporte=vegabréf, camo=rúm? Bano=bað? La vestido=kjóllinn?
Stórtíðindi frammundan með stofnun félags. Er að vinna í pappírum að beiðni félagsmanna. Hvernig er aftur latneska máltækið? "In vino Veritaz"?
posted by Huginn 3:44 e.h.
|
mánudagur, ágúst 09, 2004
Það er naumast að maður er með eftirsótt blóð. Rétt liðnir þrír mánuðir síðan ég gaf blóð sem er lágmarkstími milli gjafa og þá er hringt og byrjað að angra mig! Ætli maður skelli sér ekki í næstu viku í blóðgjöf og máltíð með djúsi...
Keppi á morgun í Íslandsmeistaramótinu. Uss, þetta er elíta tennisins og ég hef rétt um 1 mánuð að baki. hehe, mér verður valtað upp en þetta er jú gert til gamans, prófa að spila á móti þeim bestu!
Svo keppum við Árni í tvímenning á móti þeim allra bestu á föstudag. Þá er besti spilari landsins og einhver annar að mæta okkur.
Jaa.. Helgi, það er frítt inn á slíka viðburði, hægt að sitja í grasinu og horfa á, erum á spila á morgun kl. 7 í Tennishöllinni í Kóp. og okkur verður valtað upp! (Sitthvor einmenningsleikurinn)
Við erum að öllum líkindum lélegustu menn mótsins enda allt gaurar þarna sem eiga sjéns í titilinn... aðrir taka ekki þátt í svona stórmóti...
Ég enn með rusl spaða og uppgjafirnar ekki orðnar tipp!
Djöfull geta sumir pólitíkusar verið erfiðir og stundað mikið "orðaþvaður"! (http://www.xf.is/) Þar sem þingmaður Magnús Þór Hafsteinsson vitnar fyrst í rök sjálfstæðismanna og segir þau röng. Svo segir hann hið andstæða vera ÓUMDEILANLEGT. Skilur maðurinn ekki merkingu orðsins? Óumdeilanlegt þýðir að engir geti deilt á slíkt! En bersýnilega eru þeir á öndverðu meiði og því UMDEILANLEGT! Bannsettir bastarðar oft á tíðum!
Og já, eitthvað stjórnmálaefni sem ég get tekið mig til að skrifa um í blöðin? ..er að íhuga að dunda mér við slíkt núna.
posted by Huginn 6:23 e.h.
|
sunnudagur, ágúst 08, 2004
Erum félagarnir uppi í Háskóla að sörfa netið. Keyptum áðan nýja "Kristbjörgu". Fiðrildafiskur sem er hressilega ljótur og verður settur í búrið hjá Agli á eftir. Fiskurinn er nú hér í háskólanum með okkur í poka að stúdera heiminn. Í dýrabúðinni fékk ég Pollý páfagauk til að setjast á öxlina á mér, verða víst 70-80 ára svona fuglar, djöfull ætla ég að fá mér eitt slíkt kvikindi einhverntímann.
Horfðum á "Shawn of the Dead" í gær á risaskjá í bíóhúsi Birgirs. Skítamynd en hægt að hlægja aðeins...
posted by Huginn 7:28 f.h.
|
laugardagur, ágúst 07, 2004
Ehmm... Loveparade virðist vera að slá í gegn og nokkrir félagar mínir gerðust "gay" og mættu. Má þar nefna Helga homma og Egil aftanídjöful. Nei, hefði svosem ekkert á móti að kíkja á þetta, sjá "showið"... en nennti því ekki þetta árið frekar en öðru.
Sleppti Tennis í einstaklingskeppni í dag en við Árni fórum eilítið halloka úr þessu í gær. Unnum fyrsta sett en svo bara spiluðum við hræðilega, aldrei spilað tvímenning áður svo við vorum alltaf rangt staðsettir og töpuðum næstu 2 settum. Reyndar hinir spilað í 2 ár en við með 1 mánuð en breytir ekki því að þetta hefði átt að vinnast!
Fórum með postulíndúfu til Önnu sem óléttugjöf þessa vikuna. Rituðum á hana "Vonardúfa - Tákn eilífrar vináttu" eða það var það sem átti að skrifa en svo fór það eitthvað í rugl.. svo nöfnin okkar. Stendur á stofuborðinu þeirra og ef dúfan brotnar, brotnar vináttan!
Það eina sem liggur fyrir hjá mér er að ég fer að kaupa íbúð bráðum. Var jú búinn að setja markið á 27 ára aldurinn svo það er ekki ólíklegt að ég skelli mér á eina slíka í janúar á 27 aldursárinu.
Biggi var óhemju nettur í dag! Drullu nettur alltaf!
Næstu helgi keppi ég í Íslandsmótinu í Tennis. Uss, ég verð flengdur!
Hef sofið alveg herfilega mikið og fast. Dreymt margt t.d. að Davíð látist óvænt núna næstu daga og margt fleira crazy. Svaf t.d. í 12 tíma í nótt!!
Og svo að lokum.... hef verið að íhuga að safna hári en þetta er bara orðið svo mikið "kraðak" á kollinum... margir orðað það við mig að kíkja í klippingu. Spurningin er, á maður að láta klippa sig eða vera harður og safna síðu?
posted by Huginn 1:04 e.h.
|
miðvikudagur, ágúst 04, 2004
Ginggang og Hilli Foli í kvennaleit á djamminu... Damn, hvar gerir maður linka í þessu "stupid" bloggi... jæja, ég læt reyna á html kunnáttu mína Mynd hér
posted by Huginn 9:32 f.h.
|
þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Sá hjá einhverjum sem kallar sig "Hagnaðurinn" liðinn "Celeb spotting". Þá mundi ég eftir að ég sá litlu börnin í Nylón áðan. Voru tvær í sporthúsinu og ég að ýta í Árna og segja honum að biðja um eiginhandaráritun... Svo sér maður nú fleiri "stórstirni" þarna, meðal annars fyrrv. ungfrú ísland ólétta og Auðunn blöndal ágætasta mann af Popptíví...
posted by Huginn 6:25 e.h.
|
Var að elda áðan. Auðvitað hef ég ekkert farið að kaupa matvæli yfir helgina og ískápurinn tómur, brauðið orðið grænt og ekkert til. Það var því úr að ég hitaði spagettíhringi sem ég fann og spagettí, bræddi síðustu ostsneiðarnar yfir með einhverri sósu og át soðin egg með... djöfulsins viðbjóður var þessi máltíð! Enn með myglubragð...
Fékk boð um að kíkja í starfsviðtal. Mjög áhugavert starf og góður "skóli" en auðvitað fylgir því einhvert böl. jújú, Borgarnes takk fyrir! Samt, ég er að freistast, mikið um hagkvæmnisútreiknigna o.s.frv... allt einföld líkön geri ég ráð fyrir svo þetta er bara öflun gagna og úrvinnsla. Þetta er Hagþjónusta fyrir Landbúnaðinn svo maður væri vel settur ef maður slysast inn í pólítik einhverntímann, stóru vandamálin (kostnaðarlega séð) eru jú tvö, Heilbrigðiskerfið og Landbúnaðurinn. Jæja, en nú er ég orðinn leiðinlegur... reyndar líka orðinn sibbinn... bæti nú úr því fljótlega.. En jæja, yrði nú aldrei í þessu starfi nema þá kannski 2 ár eða svo.
Ekkert heitt vatn í þessu húsi! Engin sturta! Eru kannski einhverjir ógreiddir reikningar í þessum blessuðu óopnuðu umslögum öllum ... tjaa, þeir fá mig ekki til að bugast! Hef tekið kaldar sturtur um víðan heim oftar en einu sinni og oftar en tvisvar já! Reyndar skalf ég og orgaði en það er önnur saga...
Eitthvað hefur Tennisfimnin hrokkið aftur og ég á í mestum vandræðum. Unnum sitthvorn leikinn í dag en breytir því ekki að Árni er bara orðinn betri en ég. Þarf að herða mig!
Í dag var stúlka sem er væntanlega Íslandsmeistari í Tennis og einhver nokkuð góður drengur að spila á vellinum við hliðina. Og ég átti í miklum erfiðleikum með að halda einbeitningu. Minnti mig svoldið á það þegar ég og Gummi fórum í léttu gríni á Jóga námskeið og konan stundi alltaf svo getnaðarlega að við lágum útí horni í krampa. Þarna í dag voru til skiptis unaðs stunur þeirra á milli svo ég þurfti nokkrum sinnum að gera hlé á spilamennskunni. Gæti alveg hugsað mér að kíkja á einvígi tveggja kvenna þarnæstu helgi á Íslandsmeistaramótinu. Ég og Árni munum taka þátt bæði í einmennings og tvíliðakeppninni að sjálfsögðu!
Fór áðan í bíó á myndina "The Village". Þetta kemst ekki í návígi við að vera hryllingsmynd. Mestanhluta er þetta ást og drami og hefði ég betur verið með fallega stelpu mér við hlið á þessarri mynd! Hryllingsatriðin hefðu þá komið að góðu, hún skotist í fang mér og kabumm, sigurinn unninn! En nei, ég er víst seinheppinn í meiralagi... :)
hehe,, hef verið að horfa á bjánalegt myndband með spænskukennslu. Er kominn með nokkur orð... hmm.. nei, man ekkert núna í augnablikinu.. en allavegana, þetta er það bjánalegt að það er ekki einusinni íslenskur texti, þau tala bara og tala og ég skil ekkert. Svo af og til kemur einhver íslensk rödd og stynur einu orði út...
Svo bara Gay Pride næstu helgi. Verður maður ekki að fara og kíki á lessurnar? Aldrei að vita nema þær verði fáklæddar... Eða er þetta kannski bara "exscuse" í litla hommanum í mér sem vill sjá sætu stæltu strákan?
posted by Huginn 5:59 e.h.
|
mánudagur, ágúst 02, 2004
Ég og Erik tókum Gauja gokke heimsku á bíóferð áðan. Kíktum fyrst og snæddum American Stæl en svo í bíó á myndina "The Village" Vorum búnir að kaupa miða og komnir inn þegar okkur var bent á að myndin væri ekki sýnd í dag heldur á morgun! Okkur hafði líka fundist frekar furðulegt að þarna voru ekkert nema smástelpur og krakkar að kíkja á "New York minute". Þetta sýnir að maður er ekki enn vaknaður til lífsins eftir helgina.
Í gær horfði ég Gummo og Erik á Fahrenheit 9/11. Bush hressilega fyndinn með sín heimskulegu komment. Annars engin snilld. Frekar döpur tenging hans á fjölskyldu Osama bin Ladens og Bush feðganna. Eru þeir allt í einu orðnir ábyrgir fyrir misgjörðum hálfbróðir viðskiptafélaga sinna? Það er ansi langsótt! Líka stórar ættir þarna, menn eiga margar konur og systkynin ekkert of náin. En auðvitað er ég þegar uppi er staðið sammála að stríðið við Írak er viðbjóður og ætti Bush að sæta dauðadómi fyrir athafnir sínar. Bölvaður bjáni!
Fór í sund í dag og það einn! Var bara að hressa mig aðeins við, synti einhverjar ferðir og svo bara afslöppun. Tvennt sem var þó furðulegt að sjá í lauginni. Eitt var það er mér sýndist vera kona í karlaklefanum. Ber á ofan með kvenmansbrjóst og andlitið einhverstaðra mitt á milli. Var ekki viss en brá samt þegar ég kom inn í klefann. Vorkenni blessuðum "drengnum" eflaust ekki meira en 13 ára og svona ýturvaxinn... Hitt var einn sérvitringur sem við þekkjum. Hef rekist á hann nýlega því hann heilsaði mér með orðunum "Þakka þér fyrir þ. daginn". Síðan fór hann að synda og djöfulsins snilld. Einhver útgáfa af bringusundi og sagði Erik mér að þeir hefðu mælt tímann sem það tæki að fara frá einum bakka til hins næsta og það væru rúmar 2 mínutur! Ég hélt fyrst að hann væri að synda á staðnum en eftir að fylgjast í þó nokkurn tíma með honum tók ég eftir að hann hreyfðist hægt og bítandi smá áfram...
Erik fór í heimsókn til systur sinnar að bardusa eitthvað í kjallaranum og hún kallaði niður til mín. Kíkti þá upp í stutta heimsókn og allir þurfa einhverra hluta vegna að segja mér að mín fyrrverandi sé búin að eiga krakkagrísling. Veit ekki hvaða tendency það er en ég fæ að heyra það úr öllum áttum líkt og ég hafi mikinn áhuga á blessaðri rauðkunni. nei takk!
Verð að viðurkenna að ég hef smá bömmer þrátt fyri að helgin hafi verið frábær. Eins og ég get nú verið heilbrigður drengur inn á milli þá heldur fólk sem hefur bara hitt mig blindfullan að ég sé eitthvað geðveikur :) Hehe.. En jú, ég hefði verið betur geymdur á "Vífilstöðum" eða vog þessa helgi!
posted by Huginn 1:06 e.h.
|
sunnudagur, ágúst 01, 2004
Rosaleg Verslunarmannahelgi! Hálf skjálfandi núna útaf uppsafnaðri þynku eftir rosalegt magn af áfengi. Á fimmtudaginn taldi ég ofan í mig 15 bjóra og hin kvöldin voru þeir fleiri ásamt vodka drykkju. Fór á FH leik á fimmtudaginn en fyrir leik sátum við á pöbbnum. Svo eftir leik plataði ég lögregluna til að skutla okkur niður á Hansen. Margt skrautlegt sem gerðist þetta kvöld, meðal annars stóð Gummo og meig út um gluggann á Hansen. Ég keyrði um með hann í innkaupakerru og við spreyjuðum jólasveinaskegg á Hall. Uss, þetta er ekki heilbrigð hegðun. Hlógum allt kvöldið. Gummi svaf svo uppí hjá mér því hann nennti ekki að labba heim til sín. Hef verið hálf aumur í bossanum síðan.
Föstudagurinn... hmmm.. á í erfiðleikum með að rifja þetta upp. Ég hélt partý hérna heima og nokkrir fagmenn kíktu. Erik ældi úti í garði með einhverjum mestu óhljóðum allra tíma. Svo auðvitað bara rennt í bæinn. Ég fór inn á Pravda og spjallaði þar við einhverja telpu sem ég kallaði "Lína langsokkur" og var að rugla endalausa vitleysu. Talaði við hana eins og hún væri lítið baby. Fór svo á Dubliners með strákunum og þar sá ég glös fljúga um loftin og smallast eitt á fætur öðru á veggjum staðarins. Vaknaði einhverra hluta vegna í 101 Reykjavík næsta morgun og sat í sólinni og naut tónlistar götulistamanna. Át Subway og chillaði í 1-2 tíma í menningunni.
Laugardagurinn. Aftur teiti hér heima. Lagaði til um daginn, reitti gras handa the rabbits og gerði klárt. Mjög sprækt partý, tók svoldinn tíma að komast í gang og var búinn með 8 bjóra og enn bara nokkuð dofinn eftir ofdrykkju daganna á undan. En svo kom Vodki með og maður kættist. Egill eldaði sér kótilettu í miðju partý og Páll ákvað að kíkja í heimsókn og ítreka trú sína að ég væri sekur um nágranna-angrið þarna um daginn.
Kíktum niðrí bæ og vildum athuga nýja Peep showið sem hefur vakið landsathygli elítu karlmanna. Einn drengurinn fór inn en við hinir létum nægja að horfa á barm afgreiðslustúlkunnar. Fór svo inn á Hverfisbarinn, var reyndar að stríða einhverjum tense gaur í röðinni. Kleip í magann á honum og sagði "Nei, þú ert ekkert feitur" með massa rödd eins og ég væri að gefa í skyn að hann væri chobbi bastarður. Varð svoldið reiður en ég hló bara. Inni á hverfisbarnum rakst ég á fagran bloggara. Svo eitthvað kíkt á Viktor en vorum bara stemmd á að slutta þessu "snemma". Gripum því Hlöllabáta og svo farið í Hafnarfjörðinn. Þynkufæðan í dag var MacDonalds og svo spurning hvað maður dundar sér í kvöld, en allavegana ekki meiri drykkja í bili, líklegast fram að Menningarnótt eftir ca. 3 vikur.
posted by Huginn 10:10 f.h.
|
|
Myndir
Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco
|