laugardagur, janúar 29, 2005
Þetta er ekkert bara gulu-sprautan! Hef ekki sofið almennilega í 5 nætur. Fyrstu þrjár útaf hitaköstum svo ég þurfti að vinda af mér bolinn. Núna síðustu tvær eftir að hitinn fór útaf hálsbólgu og höfuðverk. Já, það tvennt leysti hitaviðbjóðinn af. En svona er lífið, alltaf gaman að vera veikur.
Næsta Laugardag, 5.febrúar að ég held, er Þorrablót í Kaplakrika sem stefnt er á og nú mun ég sverja við Veritaz að drekka sæmilega hóflega og haga mér vel, lappirnar á mér þola ekki meiri heimsku. Reyndar eru þær fínar aftur en nenni bara ekki altaf að vera að togna útaf einhverju rugli...
Hef ekki getað spilað Tennis í viku útaf veikindunum... dapurt
Búinn að klára bók er kallast "Sólaskinsrútan er sein í kvöld" og var asskoti torlesin og lítil ferðasaga miða við 280 síður! Mestmegnis hugðarvæla höfundar.
Núna hinsvegar hálfnaður með bók Einars Kárasonar, Þar sem frómur flækist, og er meira um ferðalög og vel skrifuð.
Kíkti til Eriks í gær, þar var Egill og Susanna hjónakorn, Ingvar hress og Mo og horfðum við á Anchorman. Drullu skemmdur húmor sem má alltaf hlæja af þó ég hafi séð hana áður.
Hálsbólgutöflur bíta ekkert á þessu, jafnt vonnt að kyngja fyrir því. Og höfuðverkinn nenni ég ekki að lagfæra með einhverju bölvuðu pilluáti!
posted by Huginn 11:37 f.h.
|
miðvikudagur, janúar 26, 2005
Á laugardaginn kíktum við nokkrir félagar til Egils og sötruðum. Ég fór reyndar fljótt úr sötri í þamb. Drakk mikið magn bjórs en svo fór ég að þamba vodka og var ei í þessum heimi lengur. Flaug á hauzinn og rústaði á mér vinstri löppinni. Djöfulsins vitleysa. Fórum í bæinn en þaðan á ég fáar minningar. Eflaust verið til eintómra vandræða.
Svo í lok kvölds fór ég, Gulli, einhver crazy gaur, annar ókunnugur og einhver kjelling í stóran taxa. Einhverra hluta vegna enduðu allir heima hjá Gulla. Gaurinn sagði við mig þegar ég hoppaði úr taxanum "Pabbi minn er nauðgari" og svo gekk hann upp að einhverju skilti og kýldi í það með miklum látum og gargaði "ég meika ekki þegar er verið að fucka í mér". Honum hefur eflaust fundist helvíti fúlt að kjellingin sem hann hafði áður setið svoldið einn að var nú ekki að sýna honum mikinn áhuga lengur. Ég hinsvegar haltraði að honum drullu fullur og vitlaus og sagði "Ég ég væri ekki draghaltur, væri ég alveg maður í slagsmál". Djöfull er maður skemmdur, en ekki getur maður leikið kjúkling í svona stöðu.
Fórum svo öll inn til Gulla, ég lagði mig á meðan Gulli grýtti skrílnum út en þeir stálu víst frá honum vodkaflösku.
Nú er ég með hita útaf Gulusprautunni. Það átti einmitt að skila sér 5-10 dögum síðar, hef verið eins og tussa síðustu daga. Heimo var víst með 40 stiga hita af sömu sprautum. Æjj, hvað maður verður nú þunglyndur af svona veikindum.
Pabba tókst svo að slasa sig í gær, liggur á spítala núna varla með rænu..
posted by Huginn 8:05 f.h.
|
þriðjudagur, janúar 18, 2005
Ég míg á gamlar kjaftasögur um að frægasti og virtasti róni Íslands sé dauður! Margar sögur þess efnis hafa gengið enda snillingurinn ekki sést lengi...
Ég var að keyra niður hverfisgötuna og hvern haldið þið að ég hafi séð? Hring skít sjálfan! Meistarann! Hjólareiðakempuna! ...að vísu með smá grátt í hári núna nokkrum árum eftir að hann sást síðast á lífi. En enn með hjólið sitt haltrandi áfram. Og á bögglaberanum heilt heimili. Ég brosti útaf eyrum, skrúfaði niður rúðuna og ætlaði að garga á snillinginn "Blessaður hringur skítur" en það rann upp fyrir mér að líklegast myndi hann sparka í bílinn hjá mér svo ég sleppti því. Snéri mig hinsvegar úr hálslið og fylgdist með meistaranum meðan ég beið á rauðu ljósi.
Já, kjaftasögurnar fallnar um sjálft sig eða það ég sá draug í dag. En hvar ætli maðurinn hafi haldið sig öll þess ári? Var hann lokaður ofan í kjallara hjá einhverjum sértrúarsöfnuðinum? Eða var hann að færa út kvíarnir og hjóla um landið? Jafnvel heiminn endilangan?
Fór í sprautur vegna Suður Ameríku í dag. Kostaði 11.250!!! Djöfulsins rán. Fékk við gulu, taugaveiki og Twinrix attur. Reyndar þessi twinrix mál mín í hreynu rugli, tekið þetta með svo löngu millibili að alveg óvíst hve lengi þetta dugar. Og fékk vís teinhverjar óþarfar sprautur úti í Sviss á sínum tíma sem ég var þegar með...
...fyrst maður er kominn með sprauturnar, er nokkuð annað að gera en að skella sér?
posted by Huginn 1:57 e.h.
|
mánudagur, janúar 17, 2005
Ég er þessa dagana að stúdera Þýsku. Hitti reglulega þýska telpu sem vill læra íslensku og reyni að aðstoða hana meðan hún hjálpar mér við tungumál "foringjans". Hún er nú ekki nema nítján svo það er fullungt...en samt ágæt alveg!
Kominn á fullt í Tennis... en enn latur við að mæta á hlaupabrettið. Fór með Agli, Erik og Susönnu um daginn í Tennis og einhverja hluta vegna fór Erik að strippa. Fögur sjón.
Svo virðist sem eitthvað hökti í áætlunum um Suður Ameríku. Einn fyrirrennarri hugmyndarinnar féll út, og svo hittir illa á með tíma sem ég er í Florida og aðrir höfðu hugsað sér að kíkja út. Engu að síður er ég á mörkum þess að taka ákvörðun um að skella mér, þó "solo" verði. Ekki síst þar sem nafn bókarinnar sem ég er að skrifa er "Á Farandsfæti - Með hálfan heiminn að fótum mér" svo mig eiginlega vantar enn að klára suður ameríku svo þessi nafngift standist. Líka er telpa þarna sem ég hef verið í email samskiptum við í 2 ár að fara um þessi lönd og ég myndi eflaust hitta... en foreldrarnir eru vandamál, þau röfla massivt útaf þessum hugmyndum mínum. Fer líka svoldið illa í mig hve hrædd þau eru um að ég drepist í þessarri ferð....
Og svo er það helvítis skólinn. Búinn að finna nám í danaveldi sem er samt ekki alveg það sem mig dreymir um. En samt er Köben spennandi kostur. Kíki á þýska skóla og met svo stöðuna. Kannski gef ég bara skít og skelli mér í New York Film Academy. Veltur svoldið á því hvort mér takist að gefa út bók, hvort ég lofi mér áframhaldandi rugl.
Fékk mér tvo kalda í gær með Stefán Hjaltalín, Fúsa, Halli, Agli og Úlla. Hlógum svo mikið af allskonar vitleysu (karlrembuhúmor) að mér verkjaði í kjalkana og tvær kjellingar flúðu borðið.
Keypti 400 dollara áðan í gjaldeyri. Maður er allavegana með Flórída bókaða. Uss... styttist nú óðum í þetta, 14.march. Og þá kannski Sud Amerika strax á eftir... Uss... þarf að taka ákvörðun mjög fljótlega og mun láta vita hvað verður.
posted by Huginn 7:02 f.h.
|
laugardagur, janúar 08, 2005
Ég var að klára bókina "Múrinn í Kína" ferðasaga eftir Huldar Breiðfjörð. Frekar döpur ævintýri, en þó skemmtilegt að lesa um lífshætti fólks í landinu. Hann hinsvegar blótar þessu, en mér þætti nú líklegt að maður myndi njóta þessa frumstæða lifnaðarháttar.
Ég og Egill fórum í Skvass. Mjög undarlegt sport í upphafi, en kom fljótt. Egill dúndraði boltanum í sífellu yfir á fótboltavöllinn, hlaupabrettin eða hinn Skvassvöllinn í Sporthúsinu. Ég þurfti að fara og kaupa annan bolta þegar hann hafði týnt þeim fyrsta. Svo auðvitað bustaði ég strákinn í stigakeppni, alveg þartil hann festi nýja boltan í loftinu. Damn you Egill!
Já, Ég er sjúkur. I know, that´s the beauty of it! Ég er að líklegast að fara til Florida og þaðan til South America. Í fyrsta skipti síðan ég reyndi að sannfæra foreldrana um að drepa mig ekki og viðraði þessa hugmynd áðan þá var þetta rætt í rólegheitum og virðist vera að takast. Ég mun fljúga út 15.mars til Florida, síðan 27.mars til Suður Ameríku eða Kúbu eða bara eitthvað. Svo flýg ég heim í kringum 15.júní. Helvítis rugl maður... en senjoríturnar eru að kalla og því verður að svara "Here´s daddy!" (á einhverju ódýru móteli). Nei, reyndar ekkert ákveðið en þetta eru draumórar í kollinum á mér. Allahh og Veritaz vita einir hvað mun raunverulega gerast.
Er núna með Erik og Birkir brósa uppí háskóla að kanna Master nám fyrir September.
Hef verið að skrifa mikið undanfarið. Tvær bækur, annarsvegar Travelbook sem gengur erfiðlega að skipuleggja enda um gríðarmikið efni að ræða. Hinsvegar SJÚKA skáldsögu um einstakling sem ég byggi á atriðum úr eigin lífi, lífi Húsdýraloversins, lífi Rauðhærða mannsins og annarra félaga. En reyndar mest skáldskapur en notast við sum fyndin atriði og orð sem okkar hafa farið á milli, þó algjörlega úr samhengi. Gerði það áheit þegar ég var að ferðast að ef svo ólíklega vildi til að ég myndi ná að gefa út bók þá læt ég 10% af hagnaði/ritlaunum ganga í góðgerðarmál. Nú er að sjá hvort guð vilji hjálpa þeim sem minna mega sín!!! :)
Hola Chica bunita, Di Amigo er á leiðinni!
posted by Huginn 8:36 f.h.
|
þriðjudagur, janúar 04, 2005
Djöfulsins snilld. Ég er víst rankaður 19. besti tennisspilari landsins. Og það eftir 2 mánaða spilamennsku! Ekki dapurt! Svo er maður að íhuga South America... neee... er það ekki bara rugl?
posted by Huginn 7:36 f.h.
|
mánudagur, janúar 03, 2005
Í gær kíkti ég rétt á Hansen. Svo fórum við á Esso í smá snarl, hitti þar fyrir utan Gunnar í Krossinum "Nei, er þetta ekki Gunnar í Krossinum?" "Jú" "Guð veri með þér kallinn!" sagði ég við hann og klappaði honum á öxlina. "Já, Guð veri með þér" en svo geng ég inn á Esso og set Hamborgarann í örbylgjuna. Úlli í léttu sprelli spreyjar einhverju drasli inn í ofninn en ég var ekki að íhuga hvað þetta væri. Svo þegar ég er að éta borgarann kíki ég á spreybrúsann. "Flugnaeitur!" Uss... djöfullsins rugl, þessvegna hef ég erting í tungu, koki og víðar.... var að fucking éta eitur í gær. Kæmi mér ekki á óvart að um helmingur þeirra 4 heilasella sem voru enn við störf séu núna látnar og hinar tvær séu uppteknar við að jarða þær.
posted by Huginn 4:36 f.h.
|
sunnudagur, janúar 02, 2005
Kíkti í Partý hjá Agli. Þetta var meira stökkpallur fyrir okkur félagana út á næturlífið. Ég, Heimo og Egill byrjuðum sötrið þarna en fljótlega bættust við fagmenn á borð við Birgir Kays, Geiri og Ingólfur ásamt fáeinum kvenfljóðum.
Ég og Birgir höfðum keypt suðræna blöndu sem var drukkin, einnig búið til Hlaup sem var allt allt og sterkt blandað. 50% vodki svo þetta var varla ætt en við átum þetta engu að síður og ég var orðinn léttskemmdur. Sú króatíska sem var þarna starði á mig af undran.
Í bænum röltum við á Dubliner, Victor og Nasa. Hittum þarna þær frönsku sem gistu hjá mér og ég faðmaði þær. Ég var farinn að spjalla við telpu en var eins og óákveðinn hestur sem skiptir í sífellu um gangtegund. Ég byrjaði alltaf að tala ensku líkt og það væri móðurmálið en var alltaf beðinn um að tala íslensku í hvert sinn. En var fljótlega aftur farinn að tala ensku.
Annars er líf mitt bara drepleiðinlegt, lítið um bakkus og fer væntanlega minnkandi. Kannski 1 dagur í viku hið mesta.
posted by Huginn 11:45 f.h.
|
|
Myndir
Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco
|