Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

Ég fór að hjálpa pabba í dag og það líklegast næstu daga. Vinnudagur upp frá 8-5 svo ég er orðinn sótsvartur á ný. En vonandi bara í nokkra daga, hann enn að jafna sig eftir fall úr styllas svo ég verð nú að hjálpa kallinum. Drulluskítugur eftir vinnu, fer ekki í sturtu fyrr en eftir tennis. Hárið bifast ekki, fastmótað og hvítir málingarblettir í því og andlitinu. Fallegt. Andaði að mér tíu tonnum af ryki í dag, gleymdi símanum í klukkutíma á golfinu og það sástekki á skjáinn fyrir ryki og viðbjóði.

Það er farið að styttast all svakalega í ferðina til Suður Ameríku!

Fór á fyllerí síðustu helgi, og það er síðasta fyllerí í óákveðinn tíma. Langan óákveðin tíma. Langaði lítið, en það var verið að kveðja Ingó sem fer til útlanda í nám. Varð nú að kveðja strákinn. Var erfiður, drakk mikið, hömpaði Egil, sparkaði tánni utan í borðfót og hún er blóðrauð og måske brotin, skiptir engu, spila samt tennis og stunda vinnu, þetta er bara smáhnjask. Endaði heima með Baldri og tveimur asískum vinkonum hans, setti græjurnar í gang og vöktum aðra fjölskyldumeðlimi sem heilsuðu upp á okkur fersk í morgunsárið. Þær fengu að sofa í rúminu mínu, við Baldur sváfum í sitthvorum sófanum. Djöfullsins rugl. Hitti reyndar kvenkyns partner "in crime" á laugardaginn, en sumir menn vita hvað ég á við með því. Gaf létt faðmlag en snáfaði. Framvegis er það mestalagi sötr með 1, 2, 3 eða 4 bjóra. Allt annað er rugl. Fer á morgun á tónleika með Bjögga Gummabróðir, fæ mér einn bjór, já, takið eftir, einn bjór, og samt fer ég á pöbbarölt. Þetta er framtíðin drengir, 27 ára og nóg komið!

Keypti 400 dollara til viðbótar, á nú 800 dollara í penge og síðan dregur maður út ef ég þarf meir. En vonandi kemst ég af með lítið sem ekkert úti, er með frítt hótel og einhverjar máltíðir en borga fyrir entertainment og drasl sjálfur. Tek þá dollarana til Suður Ameríku. Keypti innanklæðaveski hjá bankanum, 500 kall, skítt að þeir gefi þetta ekki!

ahh... á ég að byrja í Equador eða Venesúvela? Það er spurninin, þarf að fara að bóka miða þangað.

Svo er bara einhver ung falleg kona af erlendum uppruna að bjóða mér í sumarbústað með fjölskyldunni um helgina. Hvað á það að þýða?

posted by Huginn 12:51 e.h.
|

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Það er lítið að gerast, stari stundum út um gluggann á snjóbilinn. Það er þá hápunktur dagsins. Tók þrjár bækur á bókasafninu, "góðir íslendingar", "Dódófulgsins eitthvað" og "Á slitnum skóm". Allt ferðabækur íslendinga og er að lesa tvær í einu.

Spila tennis á kvöldin. Er núna uppi í háskóla á netinu, svo verður farið að éta og í Bingó! Langt síðan það hefur gerst. Sá stóri handa hornsins og ég mun næst skrifa um það hvernig ég vann 100.000 krónur. Er að drepast úr hungri. Verkjar í belginn innantóman.

Sáttastur er ég við að mig langar akkurat nada í drykkju þessar helgar, sit bara rólegur og bíð þess að fara út 14.mars. Flýg til Orlando í chill...

posted by Huginn 12:08 e.h.
|

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

1, 2, og 3... og já, ég er ennþá veikur! Reyndar orðinn sæmilegur, pensilinið eitthvað að slá á strekkakokkana. Stefni á rólegan Tennis á morgun.

Þá er það ákveðið, ég flýg út 14.mars til Flórída, dvel þar með grande familie til 28.mars en fer þá til Suður Ameríku. Þaðan flýg ég annaðhvort 15 eða 20. júní, er að gera upp hug minn, þarf að láta vita í kvöld upp á staðfestingu á flugi. Já, þetta er síðasta ævintýrið og þá hef ég líka farið hálfan heiminn! Bara stór-asía eftir, grænland og líka Afríkan sem ég hef engan áhuga á.

Ég er auðvitað natural þegar kemur að samba dönsum svo þær Brasilísku eru þegar farnar að vottna af spenningi.

Hef spilað aðeins í Tiger Woods golfleik í þessum veikindum til að drepa tímann. Horft á slakar myndir á borð við Bad boys 2 og Christmas vacation 2 eða eitthvað. Er nú farinn að lesa aftur í Don Quiote sem er ein af fáum bókum sem fær mann til að skella uppúr af hlátri í miðjum lestri. Mjög kaldhæðinn húmor.


posted by Huginn 10:47 f.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco