Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

laugardagur, nóvember 26, 2005


Þetta er helvíti gott. Hvert stefnir þetta, fer þetta út í að konur verði naktar hvað á hverju?

Annars fátt að frétta, nema að ráðabrugg er komið af stað í keppninni þar sem tveir standa eftir. Liggja menn nú undir teppum (feldum) en um miðnætti eru liðnir 49 dagar. Heyrst hefur að samist hefur verið um að þegar klukkan slær 24:00 verði mönnum frjálst að hafa sínu fram, að því tilskyldu að verðlaunaféið renni til góðgerðarmála. Það er ekki hægt að leggja þetta lengur á menn. Það verður semsagt notað peninginn til að kaupa tunnu af bjór fyrir teiti heima hjá Fleimo næsta laugardag! Gott málefni án efa!

Og af annarri keppni, ég samdi af mér í þynku fyrir um þremur mánuðum síðan að snerta ekki ölið. Hef staðið af mér freistingar nöðrunnar og núna er svo komið að brátt eru pyntingarnar á enda. Hef þurft að fórna mörgu góðu fylleríinu, ókeypis áfengi og fleiru, en 1.des get ég aftur farið að stunda vínmenninguna.

posted by Huginn 1:45 e.h.
|

mánudagur, nóvember 21, 2005

Ég er kominn með í hendur eintak af stuttmyndinni Fatal Coincidence sem ég lék í. 18 mínútur en atriði þar sem ég þurfti að reykja vindil hefur verið klippt út :) Annað er nú inni, og drepst ég í myndlok.

Ótrúlegt þetta réttar- og rannsóknarkerfi okkar Íslendinga. Títt heyrir maður að rannsóknir klúðrist fyrir vanhæfnissakir og lélegan aðbúnað, en þegar það er svo komið að menn segist "ekki hafa efni á" að standa að rannsóknum á t.d. svefnlyfjum sem konum er byrlað við nauðgun, þá er þetta auðvitað orðið óásættanlegt. Hverskonar samfélag er það sem takmarkar svo nauðsynlegt réttlætismál við kostnað upp á 40-100 þúsund per rannsókn. Þetta geta varla verið nema 20-30 tilfelli á ári og er hneyksli ef ekki verður brugðist við og fé veitt til þessa.

Nú styttist í að ég prenti fyrstu drög á ferðasögunni, stefni á það um næstu mánaðarmót. Þetta er auðvitað ekki prófarkalesið en ég mun íhuga að senda þetta á útgefendur.

Er að fikta við að gera handrit að grínmynd, svo ef menn hafa skondna sketcha þá endilega senda á mig. Þetta er súr húmor, í stíl Napoleon Dynamit, um atvinnuleysingja í leiguíbúð sem neitar að fara út úr henni, um bóndason sem þarf að fara til stórborgarinnar Reykjavík vegna þessa máls, og fleiri furðulegir karakterar. Svo er aldrei að vita nema maður prófi að gera eina mynd í fullri lengd fyrst svo margir félagar manns eru á þessu sviði...

posted by Huginn 2:04 e.h.
|

föstudagur, nóvember 18, 2005

Ég á langt í land með að sigra heiminn. Þetta eru þau lönd sem ég hef komið til:



create your own visited countries map
or vertaling Duits Nederlands


Þeir hafa nú stundum frambærilegt efni fram að færa á Ómega sjónvarpsstöðinni. Í gær sá ég myndir frá hjálparstarfi og íhuga nú alvarlega að greiða mánaðarlega fyrir börn per mánuð í gegnum abc.is. Í kvöld tala þeir um homma og lesbíur. Það er alltaf fullyrt í umræðunni að það séu 10% samkynhneigðir en þeir á stöðinni segja að kannanir sýni að það séu nær 2,6% karla og 1,6% kvenna samkynhneigð. Ég get vel trúað að þetta séu tölur undir 5%, þó auðvitað geti vel verið mörg ólík stig af játningum. Einhverjir hugsi kannski til slíkra hluta en láti aldrei verða af því, enn aðrir helteknir af slíku, hópurinn sem brýst út úr skápnum og svo þeir sem aldrei efast um samkynhneigðina. Til umræðu í þættinum voru nýfengin réttindi samkynhneigðra. Ég persónulega fagna því að þeir geti fengið viðurkenda sambúð sín, lífeyrisréttindi og erfðamál, en er sammála Omegamönnum þegar þeir segja "ég eða aðrir hafa ekki rétt á að ættleiða neitt barn. Mér finnst barnið eiga rétt á að eignast góða fjölskyldu". Væntanlega fjölskyldu með móður og föður. Ég tek réttindi og aðstæður barnsins fram yfir réttindi samkynhneigðra, og það getur ekki talist eðlilegt eða rétt að krakki sé rifinn inn í tveggja feðra fjölskyldu. Afhverju spyr fólk? Það eru fyrir því nokkrar ástæður og nefni ég hér fáeinar. Sambönd samkynhneigðra endast skemur að jafnaði, krakkinn fær ranghugmyndir um eðlilega fjölskyldulíf og getur jafnvel liðið þess í uppeldinu og liðið miklar raunir fyrir af skömm og stríðni. Það er ekki hægt að neita því að krakkar eru hégómleg, þau skammast sín fyrir svona hluti og ég hefði persónulega ekki viljað alast upp í samkynhneigðri fjölskyldu þó ég þekki marga góða homma og lesbíur. En annað sem ég ætla að segja, hvort sem fólki líkar betur eða verr, mér hefur oftast (en ekki alltaf) fundist hommar sem ég hef hitt í mínu lífi vera "skrítnir", ekki bara með kynhvatir í tráss við venju, heldur bara virkað á mig sem eitthvað meira stafi að. Þetta kann að hljóma sem sleggjudómar en þetta er einfaldlega upplifun mín. T.d. sá mæta piltur sem birtist á stöð 2 með ungum nýjungagjörnum presti. Sá piltur var að vísu ekki í sambandi við annan karlmann en þótti gott og blessað að eiga rétt á ættleiðingum í framtíð, en eins og hann talaði þótti mér hann vanþroska, Hreint og beint, og hefði alls ekki treyst honum fyrir barni... og fleiri slíka hef ég hitt sem ég hef hreinlega efast um andlega heilsu. Mér hefur þá fundist eitthvað allt annað vera að hjá þeim og samkynhneigðin geti þá verið hluti að stærra vandamáli. Einhverskonar brenglun í efnaskiptunum, í uppeldinu, andleg eða jafnvel smávægileg stökkbreyting sem geri það að verkum að slíkar hvatir eru ríkjandi. Ég er mjög sáttur við að viðmót hefur stórbatnað í samfélaginu gagnvart samkynhneigðum, en ég horfi jafnframt fram á þann möguleika að einhverntímann í framtíðinni skilji menn betur af hverju þetta stafi og geti jafnvel komið í sumum tilfellum í veg fyrir með hormónameðferðum og öðrum leiðum. En þangað til, þá er áframhaldandi samþykki samfélagsins nauðsynleg.
Ég hef líka með fólk töluverða samúð, það hlýtur að vera erfitt að þola. Það að geta ekki eignast börn með maka sínum, það hlýtur að vera víti, en þá standa vísast til lesbíur betur að vígi. En engu að síður stend ég fastur fyrir að ættleiðingar þykja mér ekki verjandi. Og þó samkynhneigð sé viðurkennd í samfélaginu og hafi fengið viðurkenningu síðustu árin má samt ekki peppa slíkt upp í einhverja "tískubylgju" sem sé hrósað í hástafi... að það verði eitthvað költ að vera hommi eða lessa. Ég er auðvitað ekki að gefa í skyn að fólk breytist við slíkt, en þetta getur haft ruglandi áhrif á þær ungu sálir sem eru tvístígandi, haft það út í einhverja hluti sem það sér eftir lengi vel.
Það má ekki draga fyrir skilningarvitin hulu með skrúðgöngum með pompi og prakt svo að krakkar fari að blekkja sjálfa sig í skrípaleik um að þetta sé fullkomnlega eðlilegt. Vitibornir menn hljóta blákalt að horfast í augu við að í slíkum kvötum sé ekki allt með feldu. Öllum hlýtur að skiljast að hér er eitthvað á mis. Að náttúran ætlaði þetta ekki svona. Að við fáum sumu bara ekki ráðið, við erum ekki sköpuð sem einfrumungur sem skiptir sér, að til þess að fjölga okkur sé getnaður en ekki einhver vélabrögð nema naðusyn krefji. Að skynsemi og rökhugsun hafi betur, að menn hljóti að sjá eftir ígrundun að hér hafi sköpun og þróun tekið feilspor. Eða ætlum við líka að breyta því, sem og samfélagsmynstrinu, að fólki verði hreinlega breytt líkamlega eftir þörfum líkt og angir fyrir. Er þá ekki full langt gengið?

Og nú hef ég reitt einhverja til reiði.

posted by Huginn 9:55 f.h.
|

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

..og þá voru þeir tveir eftir í keppni.

Fór með Hjaltalín og Gumma um daginn í "Lifandi bókasafn". Ég leigði mér Femenista en þeir strákar saman eina tvíkynhneigða. Svo fékk maður 45 mínútur með stúlkunum, ég sast niður og ræddi um jafnrétti í víðara samhengi en kvenfrelsi, það er, jafnfrétti á einstaklingsgrunni. Strákarnir spurðu tvíkynhneigða stúlkuna spjörunum úr en ég missti af því, fengum ekki að fara þrír með einni því það bauð upp á of mikið sprell. En jesús dúdda mía, telpan í Hinu húsinu var fögur, með þetta líka flegna skyrtu svo við þrír sáum ekki framan í hana.

Pantaði mér vikuferð til danmörku í jólainnkaup og að hitta vinkonu mína Caroline þá Kanadísku. Fer 7.des minnir mig. Gleymdi 60þús á bankareikning þarna úti þegar ég var þar síðast svo það verður spanderað...

posted by Huginn 1:42 e.h.
|

mánudagur, nóvember 07, 2005

Ég er byrjaður að læra Rússnesku. Þetta er hjá Norræna félaginu, þrjú kvöld og því fyrsta var að ljúka. Ótrúlega líkt íslensku og nokkuð þægilegt þó stafrófið sé kúngstugt. Lærði meðal annars að segja "Ég elska þig" sem mun nýtast vel einhverntímann, og kennarinn sagði okkur af borg er gengur undir nafninu "Bride´s town" þar sem hlutfall kvenna er þar bara rugl, svo margar að hver góður maður fær tvær (kannski eilítið ýkt) en 10 milljón fleiri konur búa í Rússlandi en karlmenn. Þangað er því í nóg kvonfang að sækja fyrir okkur aumingjana.

Ég og Gummo vorum á gangi eftir erfiðan dag heim úr sundi. Höfðum rétt troðið slíkri rækt við hugann inn í annasama dagskrá okkar og hittum þá á einn fyrrum bekkjarfélaga, hann var að sækja TVÖ börn sín í leikskóla. Allur pakkinn. og það sem er, tja, mér finnst einhvernveginn eins og 85% á okkar aldri séu kominn í þetta mynstur, og ég spái því að allflestir í nánasta hópi vina verði eftir 2 ár komnir í sama gír. Hvað er að manni, ég hef akkurat enga löngun til að festast í slíku... allt aðrar hugmyndir sem renna í gegnum höfuðið á manni... skoða heiminn, rasa út, blabla...hvaða nöfnum sem frelsið nefnist,... en líkt og Hjaltalín segir, þá er maður reyndar með teprulega pistla um þessar mundir, um kvenmannsleysið. Þetta skýrist vitaskuld af því að ég hef tekið þátt í keppninni af mettnaði og er við það að springa, erum þrír eftir af níu og ætlum greinilega ekki að gefa okkur. Ég hef þyngst um tvö kíló undanfarið og menn vilja meina að þetta sé allt á milli lappanna á mér... uppsafnaður forði sem hleðst út á æðaveggina, dreifir sér um líkamann og hefur áhrif á alla hugsun. Það er nú meinið.... maður er kynsveltur...uss... ég tala eins og mellan í Sex in the city, sá þáttur er einmitt í imbanum núna! Öjj..

posted by Huginn 2:55 e.h.
|

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Fiddi feiti, Hjaltalín sjómaður, Hallur Erlends, The húsdýralover og undirritaður áttu skrautlegan dag saman. Föruneyti bjórsins svokallað, en í einhvern tíma hafði staðið til að kíkja á miðvikudegi í Þjóðminjasafnið nýja og skoða ókeypis. En meira af því síðar, ég og Gummi tókum strætó niður í miðbæ tveir aumingjalegir karlmenn komnir á þrítugsaldurinn í bussinu svo ekki nokkur heilvita kona leit við okkur. Í Reykjavík var síðan arkað á knæpuhús (Rökkrið) þar sem Stefán og Fiddi feiti sátu við glas, þetta var rétt yfir hádegi og hafði víst farið óorð af þeim árla dags á Aróma. Stórfurðulegt lið þarna enda er þetta nýja rónabúllan eftir að þeirri á austurstræti var lokað. Einhver karl var með eigin vodkaflösku sem var tekin af honum og hann öskrandi og vildi fá hana aftur. Eigandinn byrjaði þá að garga á móti "Þú segir mér ekkert til verka apahaus!" og sló hann í andlitið. Í horninu með okkur sat ung stúlka, ólánsamur eiturlyfjaneitandi, og Fiddi var að íja að henni að vera með einhverju okkar strákanna "Hvað fæ ég fyrir það?" spyr hún víst, svo langt er hún sokkin niður í neyslu. Hún sat með enska bók, en skyldi ekki tungu þá, heldur teiknaði í bókina myndir. Annars voru kátar samræður á knæpunni. Fiddi biður mig um að taka bílinn inn í Hafnarfjörð, hann sé búinn að standa þarna úti í tvo daga. Auðvitað kominn með stafla af sektum. Kallar upp á eigandan "elín" og hún svarar strax "Æji þegiðu Fiddi feiti!".. mjög höstug en skrautleg kona komin á sjötugs aldurinn. Þannig fer að þegar Hallur loksins skilar sér klukkutíma of seint að við förum allir á Þjóðminjasafnið, ég keyri bílinn og Fiddi er haugafullur. Þar á safni kemur starfskona og spyr hann "hvað ertu að skoða?" "Ég er að skoða þig!" og er valtur svo ekki entist ferðin lengi. Ákváðum að fara þarna næsta miðvikudag og áfram er haldið til Hafnarfjarðar. Það er skemmd keyrsla, loftlúgan var opnuð og Fiddi skrúfaði tónlistina upp í 30 í tónstyrk. Djöfulsins hávaði alla leið í bæinn en við dylluðum okkur við tónlistina, þar á Aróma var Fiddi kominn í bann, mátti ekki kaupa en ég náði að friða stelpuna. Gummo stakk af, en ég Hjaltalín og Hallur fórum með Fidda á Hróa hött að eta pizzu en þá var þolinmæðin búin, þetta var eins og barnapössun orðið, svo við skutluðum honum á Áttuna og löbbuðum heim. Þetta er nú hratt farið yfir sögu, ýmislegt fleira, en nenni ekki smáatriðum... hressilega súr dagur.

Horfði á Gothika, sæmilegasta mynd alveg.

Sé að Þórður félagi minn og spekingur talar um sálræna vellíðan lyftinga. Enn held ég uppteknum hætti og mæti í sportið reglulega, drekk ekki fyrr en á miðnætti 30.nóv, þá íhuga ég að raða upp staupglösum og skvetta í mig, og enn er ég í keppninni umtöluðu og umdeildu. Mikið sálfræðistríð ríkir nú á milli síðustu þriggja keppenda, þeir bera allir við eigin styrk og að þeir séu hvergi nærri fallnir, en raunin er sú að andstæðingar mínir eru farnir að linast og bara tímaspursmál hvenær þessari vitleysu líkur. Ég mun jfanvel afþakka konur sem bjóða blíðu sína, svo alvarlega tek ég keppninni, en þeir eru báðir beyskir og veikgeðja og falla undir áhrifum áfengis innan tíðar, tja, sennilega á næsta fylleríi..

posted by Huginn 10:29 f.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco