Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

mánudagur, desember 19, 2005

Helgin já, furðulegt fyrirbæri hvernig hún hvarf mér.

Á föstudag um tvöleytið sast ég með Hjaltalín og við ræddum heimsmálin á Aróma. Sá Hall ræflast fyrir utan og kallaði á drenginn sem undurfagur mætti og talaði ekki um annað allan tímann en gjöfina sem hann ætlar að gefa Erik.
Við sátum þarna en bjórinn þótti fulldýr til lengdar, svo við fórum á Kænuna, þar kostar hann jú 50 krónum minna. Þar sátu félagar Stebba, tja, og ættleiddur bróðir hans Fiddi feiti. Sá mæta maður var edrú, segist ekki ætla að bragða vín fram til Áramóta, því hann hverfur víst 4-5 daga að eigin sögn þegar það gerist. Mér brá við, enda stóð ég í þeirri trú að hann væri ekkert fyrir Bakkus.
Ég var kominn í kippi af bjór og helti niður þarna óvart, en var þó allsgáður. Óli leit inn á okkur og skutlaði mér svo heim, þar tók ég sturtu, gataði gamalt belti en það var orðið allt of vítt á mig, tjaa...furðulegt, varla var ég feitur fyrir en bjórbelgurinn vísast til að mestu horfinn. Þarf að herða mig í drykkju. Svo þegar ég var nýkominn úr sturtu var ég sóttur af Fidda, en Erik, Fúsi og Stebbi voru líka í bílnum og vorum við fjórir á leið í Perluna. Fiddi var bara designated driver, sá eðal drengur.
Á perlunni þótti mönnum nýliðinn (ég) í þessari venju þeirra vera full frjálslegur við borðhaldið. Maturinn var ekki nógu góður, en þó voru þarna nokkrir sterkir leikir, en ég át þar til ég stóð á gati og gat varla gengið. Vorum með bjór í bílnum bæði á leið upp á Perlu og aftur í bæinn í leigubíl, (geymdum hann fyrir utan), en svo hætti maður hreinlega að koma ofan í sig bjór í klukkustund eða svo. útbelgdur. Sátum aftur á Aróma og drukkum, svo kíkt í léttan Sen, þar hittum við Bokina og Heimo og endar með því að maður kemst aftur í gang með drykkju og þar runnu þónokkrir bjórar niður. Ég Heimo og Hjaltalín fórum í bæinn, það var víst eitthvað um Asískt kvenfólk, lögulegt eintak að vísu en þetta fer að nálgast rugl þessi sækni manna í slíkt, en það var svosem bara haldið áfram drykkju á Pravda og Hressó, ég og Heimo tókum svo bíl í bæinn en ekkert fylgdi kvenfljóð, bölvað... og laugardagur, og sunnudagur, þeir voru tussulegir og nú er smá aumingi í mér, kvef, nefrennsli, tár, tusslingur....

Það er engu að síður á dagskrá að kíkja jafnvel á Háskólaball á Broadway á miðvikudaginn. Það er kominn tími til að ná sér í eina stúdentínu, og svo kaupum ég og Heimo líklega flug til Peru í vikunni, fljúgum þangað í febrúar. Fyrri partur yrði þá fiesta, bjórsumbl og þægindi en nokkuð róleg ferð, lítið um ferðalag en meira um skriftir og tilraun til heimildarmyndagerðar. Að vísu er stúlka þarna vinkona mín að bjóða okkur efri hæð í sumarhúsi í febrúar, en þær senjorítur vinkonur hennar eru að djamma þar með neðri hæðina... Það lofar góðu.

posted by Huginn 7:49 f.h.
|

fimmtudagur, desember 15, 2005

Nú er ég kominn heim frá Kóngsins Köben. Þetta var í megindráttum bjórsumbl og búðarráp. Keypti jólagjafirnar þarna úti svo ég var að rogast eins og versta kaupóða kelling í gengnum fríhöfnina með bakpokann og þrjá útblásna poka.

Datt í það annað kveld með Írskum og einni stúlku frá Berlin. Kíkt á diskótek en þurfti svo að skrá mig út eldsnemma næsta morgun af hostelinu sem var helvíti hart, sofnaði í sófanum á hostelinu en var vakinn og beðinn um að fara út ef ég væri ekki gestur. Þurfti að skrá mig svo snemma út því ég var að hitta Caroline frá Kanada og það var annað hostel meira miðsvæðis sem við ákvaðum að gista á.

Á því hosteli voru með okkur í herbergi þrír svíiar, tvær þýskar stúlkur, par frá danaveldi og par frá þýskalandi. Allt átti eftir að enda með einhverju soghljóðum. Og viti menn, fyrst voru það drengirnir þrír!! þeir sváfu saman í tvíbreiðu rúmi allir, og mér er sagt daginn eftir að þeir hafi verið a kyssast og einhver vitleysa. Þakka fyrir að hafa verið sofnaður og ekki þurft að liggja andvaka að hlusta á slíkar aðfarir. Hefði verið brenndur for life.. Svo var það par frá Þýskalandi, þau höfðu asskoti hátt meðan maður var að reyna að sofna eina nóttina....og svo ein þýsk hnáta sem kom með danskan inn en þá hafði ég vit á því að sofna áður en til átaka kom. Helvíti gaman af þessum hostelum.

Annars var spanderað allt of miklu í mat og túrisma, en við kíktum í Tívolíið og fórum í barnatækin. Svo fór ég í hlutverk leiðsögumanns með Caroline um Köben, sýndi henni litlu haffrúnna, kastalana, strikið, nýhavn, ... fórum svo til Roskilde í dagsferð, kíktum á safn með víkingaskipum frá um 1100, en bölvaðir danirnir skrifa á upplýsingar um landvinninga Víkinga að það hafi verið Víkingar frá Grænlandi sem fundu Ameríku. Þvílík afskræling á sannleikanum er óþolandi, eða ónækæmni í besta falli, og gera þeir þetta því þeir hafa jú Grænland undir sér og eru á vissan hátt að eigna sér heiðurinn, viðbjóður, svo ég helti mér yfir starfsmann í afgreiðslunni um allt annað mál til að létta á mér. Reyfst og sagði að það sem hún vildi meina að væri drykkur víkinga og kallast Mjodur væri í raun bara túristaþvæla og markaðstrikk, að uppskrift byggð á gammeldansk frá 1700 gæti ekki talist á neinn hátt sambærilegt því bruggi sem gerðist í tíð Víkinga. Varð bara að létta af mér yfir slíkri heimsku að hvergi væri minnst á að það hefði verið íslendingar/normenn sem sigldu til ame´riku og danir ættu ekkert í þeim heiðri...

Kíktum yfir til Malmö, þar var vinkona Caroline sem bauð okkur í mat og við fylgdumst með St. Lucía degi, hefð sem hefur haldist í svíþjóð frá Kaþólikkatrú, þá er einhver stúlka klædd upp í hvítan kufl og látin marsera með kerti á höfði og syngja jólalögin til virðingar við heilga Lúcía sem var víst brennd á báli eða eitthvað slíkt. Það var ágætt að komast í mat hjá vinkonunni, síld, lax og annað góðgæti.

Annars er ég æði dofinn núna og læt þetta því duga.

posted by Huginn 7:19 f.h.
|

þriðjudagur, desember 06, 2005

Ég flýg út á morgun klukkan 14:15.... þannig að ef þú ert að lesa þetta frá hádegi og að þeim tíma, þá er líklegt að ég sitji á Leifstöð og sötri kaldan Víking, nema ég hafi misst af rellunni.

Sendi í prentun fyrstu drög að bókinni, þrjú eintök, en fljótlega eftir jól ætla ég að vera tilbúinn með drög sem ég prenta út fyrir útgefendur og sé hvernig það helvíti fer.

Það er víst veðbanki að opna, það er verið að leggja undir á þrjá unga drengi og afköst í Brazilíu. Gingang Fab, Þrumuna og Anallover... ég tek við veðmálum, en sem stendur er Gingang með lægsta stuðulinn, hann er talinn verða mjög kvenheppinn úti...

Heyrumst, heil og sæl!

posted by Huginn 4:14 e.h.
|

föstudagur, desember 02, 2005

Það eru liðnir góðir þrír mánuðir síðan maður kíkti á almennilegt fyllerí. En stund sannleikans rennur upp á morgun, Laugardaginn. Við Heimo, SIGURVEGARAR keppninnar, ætlum að kaupa tvo kassa af bjór og Fisherman´s staupflösku fyrir verðlaunaféið. Það hefur heyrst að feður landsins ætli að loka dætur sínar inni um helgina, því þetta verður eins og fimmta stigs hvirfilbylur sem gengur yfir næturlífið. Konur munu hvergi vera hólpnar!

Annars kíktum við á miðvikudaginn á sen að kveðja Gumma, sem er farinn til Spánar (síðar brazil, namibía..) og þar beið hans óvænt Úlli dúlli að taka á móti honum og einhver fimmtugur boozer, doninn svokallaður. Á morgun kveðjum við svo rauða liðið, Þrumuna og Gingang, en þeir fljúga í vikunni, en það geri ég reyndar líka, en bara í viku og til Danmarks að chilla, skoða háskóla, kaupa jólagjafir, drekka búz, fífla konurnar og guð veit hvað....

Ætla að prenta kannski fimm eintök af ferðabókinni núna fyrir jól. Á Lulu.com, kostar svona 700 kall stykkið, bara til að prófa, sjá mismunandi forsíður og svona. Þetta er massiv vinna, massiv! að lesa yfir svona 280 síðna bók, halda hrynjandanum og sagnagleðinni, svo ég er að sturlast af þessu. þegar þessu lýkur bíður mín handritagerð fyrir bæði heimildarþátt og grínmynd í fullri lengd sem við gælum við að gera félagarnir í sumar.
Ég hef nú kannski ekki mörgum sagt það, en skáldsaga sem ég er að skrifa og er komin langt á leið byggir að miklu leiti á lífi furðulegra félaga og manna í kringum mig. Þetta er kómidía, hefur fengið góðar viðtökur hjá þeim sem hafa lesið, en gríðarleg vinna í að laga allt flæði o.s.frv. En, vonandi snemma á næsta ári geta menn lesið um sjálfa sig í þessu verki, mun líka prófa að prenta hana í nokkrum eintök til yfirlestrar... jæja, nóg af röfli.

Skilst að ég sé að fara að leika í annarri stuttmynd hjá Ingó. Síðast lék ég sákrimma með létta sturlun, nú á ég að leika kynvilling! Á þetta að segja mér eitthvað hvaða augum félagarnir líta mig??? Eða er þetta bara traustyfirlýsing að ég ráði við krefjandi hlutverk? :)

posted by Huginn 10:11 f.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco