miðvikudagur, maí 31, 2006
Það kom hressilegt bakslag í klippingar á heimildarmyndinni "Á slóðum Inkanna". Harði diskurinn hrundi, hressilegt, og mikil vinna farin í súgin. En maður verður bara að byrja aftur, búinn að kaupa nýjan disk og fljótlega setur maður sig í stellingar aftur.
Ég mun prenta ferðabókina og gefa út í september. Hún er mikið bætt frá fyrstu útgáfum og rennið orðið hið ágætasta. Veit ekki hvort skáldsagan klárist í tæka tíð fyrir jólavertíðina.
Svo er önnur heimildamynd á dagskrá í sumar.
Annars fátt eitt að frétta, rotið líf sem ég lifi þessa dagana við yfirlestur og klippingar.
posted by Huginn 9:21 f.h.
|