þriðjudagur, júní 27, 2006
Það hlaut að koma að því. Ég er hættur ferðamennskunni í bili. Nú er það eina sem lifir eftir af þeim ævintýrum bókin sem ég mun gefa út í jól "Háskaför um Suður-Ameríku" og hvet ég alla til að troðfylla jólapakkana í ár með þeirri skruddu.
En semsagt, ég er byrjaður að vinna hjá Odda sem markaðsstjóri. Þannig að nú er bara að setja sig í samband við mig ef fólki vantar prentlausnir, hönnun eða vefsíðu. Þá redda ég því! Reyndar enn að setja mig inn í starfið, sit og les mér til, stúdera markaðinn og ígrunda aðgerðir. Sennilega orðinn svellkaldur eftir mánuð í þessu jobbi.
En ég man þá tíð, fyrir nær nákvæmlega þremur árum síðar, þá sagði ég við félagana orðrétt "Ég ætla ekki að gera neitt næstu þrjú árin". Það stóðst nánast upp á mánuð. Mönnum þótti ólíklegt þá, en þetta hefur gengið eftir og ég margsannað að ég er maður orða minna :)
Er ekki einhver góður íslenskumaður þarna úti??? Vantar í lokayfirlestur...
Nú vantar bara konu og krakka og þá er maður kominn í pakkann!
posted by Huginn 2:46 e.h.
|