fimmtudagur, október 30, 2003
Var klæddur upp áðan sem Dragdrottning! Ég sat með bóner og horfði á sjálfan mig í speglinum, slík var fegurðin á stelpunni! Systur minni vantaði einhvern til að vera módel í förðunarskóla No-Name og dróg mig með sér, makaði og ataði mig út í þessarri drullu þar til skyndilega var ég horfin og þarna sat þessi huggulega stelpa. Með gerfi augnbrýr, hærri augnbrún, varalit, hárkollu, glimmer og fleira "female" stuff. Svo tók hálftíma að reyna að þrífa þetta úr, plokka vaxið úr augnbrúnunum... Eitthvað hefur nú farið af þessum efnum í augun því þau langar mig helst að plokka úr á þessarri stundu. Annars fátt fréttnæmt, nema það að mig vantar sárlega fagran og vel gefinn kvenmann til undaneldis.... en vantar ekki öllum eitt slíkt? Því ekki er hægt að fá það sem ekki ert til!!! hahahaha... hmm... måske að það sé satt, måske er ég karlrembusvín?
posted by Huginn 6:02 e.h.
|
miðvikudagur, október 29, 2003
Sólahringurinn hefur snúist upp í að fara að sofa um 4-5 leytið og vakna um 12-1 leytið. Ég er "officially" orðinn rithöfundur og hef hafið skriftir. Reyndar aðeins setið tvisvar og rembst við að skálda en þetta er nú samt betra en að gera ekkert! Uppteknum stráknum tókst nú samt að finna tíma fyrir mormónana sem hringdu í mig, setti þá niður á þriðjudaginn í næstu viku klukkan 2 enda allur annar tími þéttsetinn! Ég þarf jú að sinna mínum skrifum! Þeir sem vilja mæta og snakka við mormónana eru velkomnir. Ohh.. akkurru koma ekki þessar tvær Votta Jehóva stelpur að heimsækja mig...mmm.. myndi bjóðast til að tileinka lífi mínu guði ef ég fengi BARA að leggjast ofan á þær kviknaktar og hamast í fáeinar mínútur. ójá! .. sem minnir mig á verk djöfulsins. Var þarna í sambandi við einhverja stelpu sem kíkti yfir og ég endaði, fótbrotinn, hálfur ofan á henni. Hún mátti eiga það að brjóstin voru stór og myndarleg. Síðan batnaði það ekki, heldur ástundaði ég við hana símavændi! Megi ykkar rotnu heilabú ímynda sér hvað fólst í því en þetta var fáranlegt og eitthvað sem ég hyggst ekki endurtaka í bráð, jafnvel aldrei aftur...
posted by Huginn 2:31 e.h.
|
föstudagur, október 24, 2003
Ökklabrotinn og með slitin liðbönd!!!!!!! Er ég fífl? Er guð að refsa mér fyrir að afvegaleiða konuna um helgina? Læknirinn sagði "Þetta sýnir að það er hægt að meðhöndla brot án gifs" og var massivt íhugull og hjúkkurnar kölluðu á hvor aðra "Þessi er búinn að labba um allt ökklabrotinn í 6 daga!". Já, ég er heimskur drengur, en losna við þetta gifs eftir 3 vikur. Tærnar á mér fá ekkert blóð og eru orðnar bláar! Var látinn blása í gær í rör lögreglunnar! Lét eins og ég væri fullur, kallandi á hana, hlæjandi og bullandi og allur bíllinn angaði af áfengi (lögreglan commentaði á það) enda Hilmar foli með opið áfengt aftrí og Gvendur búinn að sötra umtalsvert af tequila og einhverju öðru sulli. Megi guð hætta að níðast á mér, sparkaði í borð í gær, skrapaði á mér hendina o.s.frv. o.s.frv.....
posted by Huginn 1:09 e.h.
|
fimmtudagur, október 23, 2003
Hahahaha... ég fucking drapst úr hlátri þegar ég fékk bréf í gær. Það var frá Filippseyjum! Stelpa þar sendi mér mynd af sér og svo segist hún vilja vinna hér og sé í sambandi við frænda minn úti hann Malla kallinn.. Drullu fyndið, svo fyndið að ég gat varla hlegið fyrst, það hefði þurft eitthvað nýtt. Semsagt, Malli er að redda mér einni frá Filippseyjum og núna er spurning hvort maður fái þetta á klakann og taki "prufukeyrsluna" á þetta? Segir meðal annars "Your uncle is so good to me" hehehe.. fyrir það fyrsta þá er Malli ei frændi minn! Djöfulsins "kingdom" er þetta úti hjá honum, rekur sitt eigið fyrirtæki, með lífverði og alles. Þetta er náttúrulega bara rugl, þegar maður fær seðla frá vesturlöndum er maður sem greifi þarna úti! Svo var þetta bara voða fallegt "ástarbréf" og jaa.. móðir mín virtist fíla að fá eina svona til að sjá um heimilið svo maður veit aldrei, kannski að maður láti bara verða af þessu??!!
posted by Huginn 5:56 f.h.
|
mánudagur, október 20, 2003
Áii, er að drepast í ökklanum en kem að því síðar! Á laugardaginn skellti ég mér í afmæli hjá Árna kallinum. Færði honum þetta líka dýrindis rósavín en Gummo gaf honum Bubbi byggir skrújárn. Þarna var boðið upp á asskoti ferska bollu og fínar veitingar. Sat þarna þar til ég var farinn að berja sjálfan mig og aðra með uppblásinni blöðru. Einnig farinn að biðja aðra að berja mig með sömu blöðrunni en fékk litlar undirtektir. Sagðist einhverra hluta vegna hafa týnt símanum mínum og guð má vita afhverju en þá fór Gummi að leita að honum hjá nágrönnunum! hehe, algjör snilld, bankandi hjá fólki og spyrjandi hvort það hafi nokkuð séð símann minn,, hvernig datt okkur í hug að nágrannarnir hefðu eitthvað með símann að gera??? Síðan kvaddi maður afmælisbarnið og Egill hinn mikli kom okkur niður í bæ. Þar kíkti ég rétt á Celtic Cross, spjallandi mökkölvaður við einhverja kellu, sá Braga að vanda þar og Hildi og asskotinn var að sjá stelpuna reykja ófrísk og læti! Ráfaði milli staða, priksins, nellys og fleiri og spjallaði við "djúpulaugar" stelpuna eins og við köllum hana, telpa úr hafnarfirðinum sem fór í djúpu og gaurinn neitaði að koma út um kvöldið..hehe..algjört dizz! Hélt áfram að skemmta mér, gaf actually ljótasta svarta jórturhúsdýri sem ég hef á ævinni séð bit af samlokunni minni og ætlaði hún að joina mig, en ég steig í vitið og var fljótur að forða mér. Var á Pianó barnum kominn inn á klósett með einhverri konu, gerðist nú fátt annað en við vorum á leiðinni heim þegar skyndilega úti í kuldanum að hún verður mun ölvaðri en fáeinum mínútum fyrr. og svo á meðan við sitjum og bíðum leigubíls sofnar hún, ég reyni að lyfta henni upp með þeim afleiðingum að hún fyrst stígur í fótinn en svo bara hrynur yfir mig og Áiii!! Hún hrynur kylliflöt og ég með, og asskotans fóturinn þurfti endilega að lenda undir henni og beyglast til helvítis! Ég gat ekki stigið í fótinn í gær og núna kjögra ég um eins og 90 ára ellismellur um íbúðina. Fimmfaldur, útblásinn ökklinn er bara rusl og vonandi er ekkert slitið eða brotið! En jæja, var hæstánægður að vakna ekki upp með þessu kvendi í morgunsárið, Gummo færði drengnum Subway sem var eina fæðan sem ég át í allan gærdag... Hmm.. missti af Bingo sem er sóðalegt! Jæja, en ég get hið minnsta stigið í fótinn núna, en telpan sem ég ætlaði að hitta í gær og måske í kvöld er ekkert sátt við endalausar frestanir hjá mér...hmm.. sem er bara nett!
posted by Huginn 8:33 f.h.
|
föstudagur, október 17, 2003
Kill Bill er dásamlega vangefin en annars fátt merkilegt við verkið. Ankannarlegt að menn séu farnir að henda hálfum myndum út í sýningu. Sátum heima hjá Birgiri hárfagra og horfðum á ræmuna, ég, Gummo, Eriko og Egill. Asskoti óþolandi teiknimyndabrot, langdregið og ómerkilegt, skemmdi stemminguna örlítið. Hefði eflaust staðið undir sér sem ágætis mynd ef seinni helmingurinn hefði verið til staðar. Ekki hægt að birta hálfa mynd eins og ég sagði áður! Í dag gekk ég til fundar við Guðmund og saman fórum við og heilsuðum upp á Birgir kallinn. Sátum síðan eins og verstu rónar á bekk þegar faðir Gumma pikkaði okkur upp... vorum milli steins og sleggju í ákvarðanatöku hvort við ættum á fyllerí. Að lokum var tekin sú ákvörðun að kíkja frekar á æfingu, ég hljóp einhverja fáeina kilómetra og lyfti lóðum. Fór síðan inn í hringinn með Gumma sem þóttist vera að æfa varnarleik. Ég þreytti sjálfan mig á aumkunnarlega skömmum tíma og svo kom hann og tók mig í bakaríið þegar ég var sprunginn. Já, fjandi gaman! Fengum okkur ljúfan Zinger Kentucky bita og svo rottnað hjá Birgiri. Asskoti er Djúpa laugin grotinn þáttur orðið, sorglegt á alla vegu! Var einhverntímann hægt að sjá eina og eina gellu þar en núna eru þetta eintóm viðrini og bæjarar sem láta hafa sig í þessa þætti. Svo líklegast er ég að fara að heilsa upp á stelpu á morgun... úhhúú... og jaa.. reyndar að bjóða foreldrunum út að borða á einhvern fínan stað, líklega Apótekið. Megi Veritaz veita mér styrk og láta þjónana gleyma að rukka mig!
posted by Huginn 7:08 e.h.
|
fimmtudagur, október 16, 2003
...og viti menn.. rakst á síðu Atla Týrs góðkunningja úr flensborg og frænda Tómasar góðs vinar. Jæja. Kíkið á röflið í stráknum! Hmm... ég er flokkaður sem "stundum"... hmm.. ætli það merki ekki að hann skoði síðuna stundum? Er það ekki eins og að fá 5 af 10 möguleikum, semsagt skita? :)
posted by Huginn 11:52 f.h.
|
Var að tengja inn á fallegan Geir Mel rétt í þessu. Strákurinn slær öllu við með sjálfsmyndinni inni á vefnum sínum og mæli ég með því að fólk kíki og dáist að fegurðinni. Ætla mér ei að skrifa mikið núna, var áðan í sundi í tvo klukkutíma og er sökum þessa að sofna! Jaa.. er að fylla út Leonardo áætlun svo maður fái nú smá fé út úr kerfinu þegar Sviss verður sigrað! Og já,.. nýjar myndir væntanlegar frá ferðinni inn á netið, var að rekast á nokkrar góðar hjá kunningjanum honum Peter...
posted by Huginn 11:24 f.h.
|
miðvikudagur, október 15, 2003
Ég er að verða sjúklega latur. Fór út úr húsi áðan í fyrsta skipti síðan á sunnudag! Og var dreginn út til að aðstoða familíuna! Seldi reyndar hlutabréf sem ég átti með góðum árangri, fæ rúma millu og þar af 200þ. í hagnað. Asskoti fínt en nú þarf ég að leggja allt kapp á að selja bílinn minn, hef ekkert að gera með hann liggjandi á bílasölu svo mánuðum skiptir. Set væntanlega auglýsingar næstu daga í blöðin þar sem við fáum t.d. frýjar auglýsingar í Dabbann fyrir það að vera áskrifendur! Búinn að klára tölvuleikinn Diablo II, hversu sjúkt er það? Ég hafði ekki verið í tölvuleik í mörg ár og svo bara sökum skemmdar og eyrðarleysis hékk ég í þessu. Einhverjum myndi nú blöskra að hálffullorðinn maðurinn skuli hanga í tölvuleik? Hef verið í samskiptum við telpu undanfarið sem ætlar nú að fara að gefa sig næstu daga, eða það þykir mér líklegt. Veit samt ekki, nenni varla þessum "samskiptum kynjanna" veseni öllu. Ekki nema maður hitti á einhverja furðu skemmtilega sem er nú ólíklegt eins og fyrir heiminum er komið... Ætla mér að gera hið sama og Dr. Hilmar og bjóða 35 kr. verðlaun hverjum þeim sem kemur mér í samband við hressa og skemmtilega telpunhnátu! Djöfull er skrítið að vera búinn að raka skeggið, furðulegur andskoti þessi drengur skegglaus!
posted by Huginn 10:37 f.h.
|
mánudagur, október 13, 2003
Með hita og slappleika sem veganesti fór ég hress og kátur á laugardaginn til fundar við Árna nokkurn Leedsara. Tókum fáeina bjóra í heimahúsi og trítliðum síðan á Ölver þar sem við sátumst hjá ókunnugum. Horfðum á leikinn, Ísland voru kaldir úti strax frá upphafi en Litháen hefði getað bjargað okkur. En eins og hvert mannsbarn á þessum ýturvaxna knetti (jörðinni) veit töpuðu bæði liðin! Eftir leikin og fáeina kalda í viðbót trítluðum við attur til Árna. Á leiðinni stoppuðum við í krónunni og einhverra hluta vegna sagði ég við stelpuna í röðinni fyrir framan okkur að ég myndi berja kærastann hennar. hehe..algjör snilld...skil ekki hvaðan þetta comment kom... þá komum við hressir útur versluninni þegar hún er að benda kærastanum á mig og ég bíð spenntur eftir átökum. Ekkert gerðis svo ég gekk að bílnum og heilsaði stráknum, telpan spurði mig hvort ég væri hafnfirðingur og því játti ég. Einnig kannaðist ég vel við bróðir hennar Enok og skyldu allir sáttir. Hjá Árna sötruðum við bjór þar til allt í einu að hann fékk þá fáranlegu hugmynd að hann væri betri en ég í knattspyrnu. Að sjálfsögðu varð ég að stríða honum og eftir veðmál þar sem hann skyldi múna á þrjár persónur sem ég myndi velja fórum við út og ég "wipped his ass" í knattspyrnu. Tók því afspyrnu rólega, lék mér að dúndra yfir! svo strákurinn fengi að hlaupa svoldið en kvefið og veikin fór reyndar að segja sterkt til sín svo við sömdum um jafntefli þrátt fyrir að ég væri að sigra 8-6. Fljótlega fór Árni að syfja enda hafði hann hvorki úthald né geti til að spila knattspyrnu við svo fráan kappa eins og ég er! Svo ég rölti einn á leið, angraði eitthvað starfsfólk 11-11 á leiðinni, krakkahóp og húkkaði svo eftir stutt innlit inn á Bóheim strætó í átt að miðbænum. Hitti þar fyrir Lalla Jóhns og áttum í samræðum en var ég rekinn af borðinu af geðveikri kærustunni hans enda orðinn örlítið ágengur á svarta, brjóstgóða kellingu mér við hlið. Hringdi þá í snillinga; Gumma, Heimir, Bigga bók og gingang (Gulla). Þeir mættu og áfram röbbuðum við við Lalla og þóttist ég heita Pétur. Hann bað ítrekað um lán frá mér sem ég að sjálfsögðu gerði ekki. Síðan var bara djammað allt kveldið, rakst á Rebekku gellu og lagði mikið kapp á að ná í Gumma sem var heitur fyrir stelpunni. Það gekk og vel og þau náðu bara líka þetta asskoti vel saman... Hittum Úlla á leiðinni heim...hmm.... man bara ekki meir frá þessum tíma. Var þunnarri en andskotinn í gær, en fór og heilsaði upp á Subway dömuna í gær, hehe.. algjör skita, ég er svo steiktur að sjálfur djöfullinn skammast sín! ehh.. hef ei frá fleiru að segja...
posted by Huginn 9:47 f.h.
|
föstudagur, október 10, 2003
Vil minna alla kunningja og vandamenn á að einn félaginn, hann Guttormur, á afmæli á Sunnudaginn. Guttormur hefur lengi verið einn af okkar betri kunningjum og ófáir hafa fengið að draga "húsdýrin" úr bænum þegar allt annað bregst. Hvar væru slíkar hvalaserðingar ef ekki væri fyrir Guttorm? Sýnum honum verðskuldað þakklæti, fjölmennum í húsdýragarðinn strákar og færum bolanum heillaóskir (og þeir sem eru með atvinnu hafa kannski ráð á því að kaupa fyrir hann eitthvað fallegt (sem þýðir að hann fær ekkert frá þessum vinahóp enda allt fagmenn án vinnu!(eða menn sem hafa vit á því að eyða ÖLLU sínu í BJÓR))).
posted by Huginn 6:08 f.h.
|
Var rétt í þessu að hitta tvær hressar, fyrrum bekkjarfélaga mína úr Háskóla Reykjavíkur. Þeim leist þetta líka skínandi vel að Sviss og þann sigur sem eyrðarleysið mitt er. hmm... eða er þetta allt orðið í huganum á mér? Er þessi hiti og óráð búið að fremja á mér varanlegan skaða líkt og þessi eldrauði djöfull sem fékk mig til að RAKA MIG! Ég þekki ekki sjálfan mig í spegli, er svo unglegur að 12 ára smástelpur eru farnar að blikka mig! Ég bíð með óþreyju eftir þriggja daga skegginu svo ég geti farið út meðal fólks! Íhuga að fara að ganga með bleyjur attur ef ég verð einhverju unglegri í lookinu! hmm... hvað gekk mér til, sveittur með óráð og vannærður? Afhverju þurfti ég að ráðast á ljónsrauða makkann? Líður eins og Herkules sem missti styrk sinn þegar af honum var rakað hárið! Ég hef misst allt, þokka minn og gleði, kraft og lífslöngun, jötunstyrk minn og fjallageitalookið! Ég minnkaði bókstaflega og næ núna ekki upp í efstu hillu ískápsins þar sem allt besta jammið er geimt! Leikurinn á morgun, leikurinn á morgun, jei, hið minnsta eitthvað sem er ekki í tilverunni beinlínis til að nýðast á mér, eða hvað, er ósigur íslendinga á morgun til að slá lokahögginu á veikburða drenginn? Er mér ætlað að falla saman og verða endanalega af Bjarna sem hefur reynt að taka yfir í dimmum tómum sölum hugans undanfarið þar sem Huginn hefur mátt hafa sig allan við að vera ekki tekinn í rassgatið, fleigt út eins og hverri annarri notaðri tusku og setið eftir einn, í köldum tómum bak"garði" höfuðkúpunnar? Megi Íslendingar sigra og þá måske eigi ég von...
posted by Huginn 6:00 f.h.
|
miðvikudagur, október 08, 2003
Allt djamm helgarinnar fór alveg með strákinn. Búinn að vera hin versta LUFSA síðustu tvo daga, horft á ca. 20 bíómyndir (Office space, leathal weapon, mice and men, hundar og kettir, Forrest Gump, Edison eitthvað, o.fl!) og chillað meira en góðu hófi gegnir! Reyndar að finna fyrir smá ferskleika núna en í gær nótt vaknaði ég kófsveittur, bolurinn minn sem ég svaf í vegna kulda var allur rennblautur... Er að verða búinn að klára allan klósettpappír á heimilinu vegna sífellds nefrennslis. Er núna að merkja smá slurk leka í rólegheitunum í átt að vörum mínum, spurning hvort ég eigi að hætta að skrifa og fara að sníta mér eða láta þetta yfir mig ganga? Ahh.. farinn að sækja snítupappír!
posted by Huginn 12:51 e.h.
|
sunnudagur, október 05, 2003
Vil byrja á því að biðja Árna afsökunar á að hafa "étið framhjá" og fengið mér subba án nærveru hans. Var reyndar að nærast að kvöldi til og hafði að sjálfsögðu látið hann vita af Bingóinu sem við vorum að fara í! En nóg með það, fyllerí og vitleysa helgarinnar var rosaleg... Reyndar á þessum Subway rétt hjá Granda var stelpa að vinna sem ég bauð næturgistingu heima hjá mér á föstudagskvöldið án þess þó að fá að leggjast ofan á hana! En jæja, á föstudaginn byrjuðum við Gummi í rólegheitunum að sötra heima hjá mér, fengum Einar til að skutla okkur í Reykjavík þar sem við byrjuðum í kosningapartý hjá ungum jafnaðarmönnum. Sorglegt andrúmsloft svo við ákváðum að halda brott í Október fest hjá Háskóla Íslands. Það var eins og maður væri kominn til útlanda, algjört snilldarframtak og fær sá maður mikið lof fyrir sem hélt þetta! Þarna var allt sneisafullt af fögrum fljóðum, ég talaði við þær margar að vanda en hellti svo niður á einhverja stelpu. Baðst margsinnis afsökunar og áður en ég vissi var ég farinn að spjalla við sæta vinkonu hennar. Það samtal endist mjög lengi og endaði ég á því að fá númer telpunnar þó ég viti nú ekki hvað ég eigi að gera við slíkt í dag. Já, mjög sæt stelpa ný komin úr 6 ára "fangelsi"/sambandi. En fjörið hélt áfram, drukkum þónokkra kalda þarna og mættum svo tvíefldir til leiks aftur hjá Samfylkingunni. Þar var helst að líta Hressa Bryndísi Nielsen, Jói Útherji frá vestmannaeyjum er líka asskoti sprækur en var horfinn á brott áður en ég vissi. Þarna var líka kexrugluð Rósa "kanamella" frá Keflavík. En þannig kynnti hún einmitt móður sína á sínum tíma minnir mig... Hún var hress, sungu eitthvað lag stelpurnar fyrir mig og þetta var allt í góðum gír. Guðmundur fór fyrr á röltið í leit að sinni "heitt elskuðu"... Þarna hafði einhver kveikt á brunaslöngu og allt löðrandi blautt þarna en ekki minnkaði það nú gleði mína. Fórum víða þetta kvöld, en á Amsterdam var ég kominn með stelpu, þukklandi á barminum í hverju dansspori og mjög ferskur þegar vinkona hennar ræðst brjáluð á mig og segir að hin telpan eigi kærasta. Tel það hafa verið lygar en þurfti að halda henni frá mér lengi vel eða eins og Gummo kallaði þetta þá vorum við í "krumlu"... neee... þarna tapaði ég þessu "fagra" fljóði en nóttin var ung (reyndar öllu lokað þegar þar kemur við sögu) en við redduðum okkur far með einhverri vinkonu Valla (soon to be danafari) en þegar það stóð til að leggja í hann hittum við stelpuna frá Subway og kannaðist hún samstundis við mig frá því að ég gekk á rúðuna síðasta sunnudag. Ég faðmaði hana strax og fljótlega vorum við farin að mjaka vörum okkar saman í sveittum munnvatnspolli. Það gekk og eftir að ég tók leigubíl heim með stelpunni, sem býr víst í göngufæri frá mér, en að morgni varð hún nú frekar bangin, ég grotinn, þunnur og geðveikur í lookinu kvaddi telpuna sem gekk heim á leið. Hún var nú bara ansi fín og fönguleg þarna um kvöldið, hefði vel getað þegið fleiri kossa frá henni en þa virðist vera að fiskurinn hafi bara rétt nartað á agnið og svo hrokkið af þegar ég var að hala inn... Laugardagurinn var skelfileg þynka, reynt að þrauka, fórum og keyptum áfengi í Smáralind og síðan Hrefnukjöt! Skunduðum heim til að undirbúa fögnuðinn, sátum í pottinum og ræddum heimsmálin, drukkum bjór í einhverja 2-3 tíma þar. Sáum plöntunum fyrir umtalsverðu magni afgangsvatns sem flæddi úr líkömum vorum. Okkur hafði verið sagt að til að fjarlægja lýsislyktina þyrfti hrefnan að liggja í mjólk í lágmark sólahring. Tók ekki í mál að félítill félagi minn Gummi myndi sóa munaðarvöru svo við létum hana liggja í bjór í ca. 4 klukkustundir. Það var og gert til að bragðbæta andskotann. Félgar fóru að tínast inn, en þarna voru einungis fagmenn á ferð. Hallur kom fyrstur og bauð ég honum bjór... Ég sá um að grilla andskotann, rúlla þessu fram og til baka á grillinu (sem gummi reyndar kveikti í með því að buna bensíni yfir allt og alla!) Drukkum stíft, menn á borð við Stefán Hjaltalín, Páll Ólafsson, Erik Edward auga voru mættir! Helvítis hrefnan var óæt, öll íbúðin stinkaði af helvítis lýsislykt og ég skar í fingurinn á Gummo þegar við vorum að færa þetta á borð. Flestir smökkuðu en skilst mér að Birgir hárfagri, Ingvar Nike og Stebbi Hj. hafi kikknað! En viti menn, Halli þótti þessi úldni skítur lostæti og endaði með því að ég helti draslinu í poka og gaf honum til að taka með heim. Hann var með troðfullan kjaftinn smjattandi á tessu, hlæjandi og drekkandi sem þótti mikið skemmtanagildi. Um mitt kvöldið var komið af þaulskipulagðri dagskrá. Bandaríski fáninn (hæð 1,80, breidd ca 3metrar) var brenndur við mikla athöfn, helltum bensíni á fánann og götuna og þegar það var kveikt í (ég, Gummi og Einar héldum fánanum stoltir) þá kom svona bensínssprengja, fáninn fuðraði upp og minnstu mátti muna að við drukknir drengirnir yrðum honum að bráð. Skrílslætin voru rosaleg, fögnurðuinn jafnvel enn magnaðri og gleðin og stoltið ólýsanlegt! Af þessu voru teknar myndir, sem reyndar eru asskoti dökkar eða eldblossinn þekur okkur alla á þeim flestum! Slík var dýrðin! Hallur var farinn að ræna bjórnum mínum, og eftir að ýtreka það að taka ekki fleiri og sjá hann stelast attur í einn neyddist ég til að rukka drenginn sem fékk ekki góðar undirtektir viðstaddra sökum nettleika Halls en ég gef ekki skít... ætlaði að kenna stráknum rétta siði... en grýtti seðlinum í Gumma sem sameiginlegur sjóður en Erik tók gaurinn attur og ætlaði að afhenda Halli. Upp úr þessu varð örlítil rimma milli þeirra þar sem Erik mælti "Ég pota í augun á þér bastarðurinn þinn!" "Lof mér að koma fram vilja mínum og aumka anal þinn" og fleira í slíkum dúr þar til upp úr sauð svo sáttadrátturinn var tekinn og þeir fóru afsíðis í góðar 20 mínútur. Allt fór vel, héldum áfram að drekka og gulldrenguinn hann Erik, einnig nefndur Erik eyepoker gaf mér gott sterkt vín og var ég mjög ánægður með það framtak hans. Má hann eiga þakkir skilið fyrir slíkt. Voru menn farnir að tínast út þegar Gummi hrundi niður, dróg ég hann upp í rúm en barðist hann við og sagðist FERSKUR. Ja, stóð upp og hrundi niður með þeim afleðingum að allt lauslegt flaug um herbergið, braut einhverja kassa og fleira en eftir að hafa vippað honum attur upp í rúm lág hann grafkyrr og svaf sem lítið ungabarn. Ég fór á Ahansen sem var sorglegt, systir mín skuttlaði mér í bæinn einum en ætlunin var að sjá hvort ég fyndi partý Samfylkingarinnar sem ég gerði ekki! Ráfaði um blindfullur, djammandi, man fæst en þó á tíma var ég komin með fullorðna konu mér við hönd sem reyndar virtist vera með kalli þarna sem var alltaf að stíja okkur í sundur.. hehe.. sem var bara fyndið.. svo vorum við að fara saman en tilviljun réði því að kallinn hennar rakst í þriðja sinn á okkur og tók þá konu sína attur. Jaa.. ég var nú léttur á því og hann líka, virtist ekkert stressaður yfir þessu og er nú ekki viss um að hann hafi í raun verið kallinn hennar, jafnvel bara að hössla hana þarna um kvöldið en blabla... Hitti Úlla snilling og ráfuðum við eitthvað um, rakst reyndar líka á Braga gamlan bekkjarfélaga og sat þar og drakk, snerti brjóst Hildar gamallar skólasystur og hún var víst með barn í maga eftir nokkurra nætur gaman. Jaa, hvað er að verða um þennan heim? Hitti frænku mína sem má eiga það líkt og aðrar frænkur að vera hugguleg ung stúlka. Lánaði einhverri stelpu ökuskyrteinið mitt til að nota sem falskt skilríki og virtist það hafa virkað. Týndi henni reyndar en fann svo að lokum og fékk skirteinið til baka. Tókum einn unaðslegan Hlölla Pizzabát, leigubíl heim með Gunnari Bersa kunningja frá fornri tíð. Hafði reyndar um mitt kvöldið (nóttina) sofnað inni á Ölstofu Kormáks og verið rekinn út. Skil nú ekki af hverju það var verið að svívirða mig og henda mér út fyrir að nappa rétt? Í dag hefur svo aftur þynka átt mestan minn tíma, fórum til Helga í svaðilför. Þar var hjálpað foreldrum hans að flytja en nú býr drengurinn einn í þessu risa húsi. Hann er semsagt byrjaður að BÚA! Helgi og Anna skötuhjú. Fengum pizzu í lokin og þótti það gott, Birgir fór og hamstraði Brazza ávaxtasafa í Nóatúni og hefur nú fest kaup á einhver tæp 20 stykki. ahh... vil ekki skrifa meira...
posted by Huginn 2:57 e.h.
|
miðvikudagur, október 01, 2003
Var að bæta inn "shout out" möguleika á síðuna, þá getur fólk commentað á einstök skrif þó ég geri nú varla ráð fyrir að margir nenni né vilji leggja orð í belg! En verði ykkur af þessum tækninýjungum litlu elskurnar mínar!
posted by Huginn 2:20 e.h.
|
Ég mæli eindregið með því að menn prófi Trivia.is á mIRC! Það er unaður, trivial spurningakeppni og fyrir menn sem ekkert hafa að gera þá má eyða þar tímunum saman! Keypti mér kort í Sporthúsið og er byrjaður að hlaupa og lyfta örlítið. Var blóðugt fjárhagslega en þangað mun ég mæta vonandi 5 sinnum í viku minimum! Talaði við fyrrverandi ungfruisland.is í dag, það var stutt en yndislegt samtal. Hún mun kenna okkur inn á tækin næstu daga og hlakkar okkur mikið til. Áðan neytti ég Subway´s á sama stað og ég gekk á glugga á sunnudaginn! Já, var að kíkja á símann minn og túndraði á glugga. Hann var svo dandurhreinn að ég sá hann ekki! Við drápumst úr hlátri þarna fyrir utan Subway og starfsmaðurinn einn sá þetta, var að mæta til vinnu og brosti núna áðan til okkur enda vissi upp á mig sökina. Hinn starfsmaðurinn hélt að eitthvað hefði brottnað, svo mikil voru lætin! Fékk auðvitað kúlu á ennið til staðfestingar á þessu óhappi.
"Kill the whales!" partý um helgina, og óska ég hér með eftir lauslátum, hressum kvendum til að kíkja í þessa sláturveislu. Ætlunin er að bragða á grillaðri hrefnu, dúsa í heitapotti og brenna Israelska fánann við mikla athöfn!
Erum að sjálfsögðu á leiðinni í Bingo Bingo núna, þar sem við munum taka á honum stóra okkar og leggja okkur alla fram við að sigra! Gríðarleg keppni undanfarið en færni okkar vex óðfluga! Jájá, fór reyndar og aðstoðaði faðir minn við að byggja einhvern "kofa" og þurfti að bera gríti í 12 klukkustundir og ér með sársaukafullar harsperur! En lífið er ekki eingöngu dans á rósum þó það sé nú varla heldur þægilegt, sér í lagi ef rósirnar hafa enn þessa helvítis stingandi nálar... hmm... jæja, fyrirgefið þá synd að ég skuli ekki skrifa oftar, en ég hef minnkað verulega tölvunotkun vegna leti og aumingjaskaps. Er að vera sannkallaður eyrðarleysingi og stoltur af því. Á morgun stefni ég á það að mæta í hádegisverðarfund útskrifaðra viðskiptafræðinga frá HR en måske gleymist það eins og svo margt annað! Chao!
posted by Huginn 1:58 e.h.
|
|
Myndir
Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco
|