Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

miðvikudagur, júní 30, 2004

Í dag rúntaði ég um með Agli sem vildi klára eitt og annað. Hann keypti fallegt teppi í íbúðina sína, ég keypti sólgleraugu sem ég efast um að fái eitthvert notagildi í sumar.. Æjj, ég held að við Egill séum hættir við að fara til Rússlands. Þetta Visa vesen er auðvitað partur ástæðunnar en svo bara nenni ég varla að ferðast meir. Ætli ég fari ekki bara að gramsa í viðskiptabókunum aftur og fari að vinna... Hef aldrei verið eins tvístígandi hvað skal gera í "livet". Endalausar hugmyndir þjóta um kollinn á daginn og ég þarf bara fljótlega að grípa eina og taka ákvörðun. 1. Á enn pening fyrir að ferðast en held þetta sé komið gott. 2. Gæti farið í Master en bíð líklega með það til þar- eða þarþar næsta hausts. 3. Gæti farið í eitt ár leiklist bara af áhuga og hætt svo að leika mér. 4. Vinna. Já, og svo endalaust af öðrum litlum hugmyndum, alltaf einhverjir að senda mér viðskiptahugmyndir eða ræða slíkt, gamlir félagar og núverandi.

Erik blessaður flúinn til USA. "God have mercy on him"!

Já, svo er það Metallica! Fékk miðann minn áðan! Ekki laust við að ég sé orðinn spenntur... sá þá reyndar í fyrra en það "doesn´t count" því ég var of drukkinn til að njóta þess til fulls. Nú er bara vægt sötr á sunnudegi...

Fór að hjálpa við gróðursetningu við nýbyggingu foreldranna og var móðir mín afspyrnu erfið. Mun leitast við að hafa fullgildar afsakanir héðan í frá ef um gróðursetningu er að ræða, nema auðvitað að ég fái að ráða þessu sjálfur!

Þessi blessaði nýji Chiwawa hundur sést aldrei. Þetta er ekki sökum þess hve lítill og rottulegur hann er heldur að systir mín og kærasti hennar einoka litla bastarðinn! hann er heima hjá familíunni hans öllum stundum! Hann lítur á kærasta systur minnar sem eiganda og hlíðir engum öðrum almennilega... ég hristi hausinn yfir slíku. Tilhvers var móðir mín að fá sér hund ef hún ætlar aldrei að vera með hann?

Ég var að ljúka við að lesa bókina "Mýrin" eftir snilling Arnald Indriðason (eða var það öfugt?). Fínasta bók! Klassíski síreykjandi einstæði einkaspæjarinn er aðalpersóna. Svo núna næst ætla ég að lesa bók skrifaða 18xx um heimsókn einhvers útlendings hingað á klakann og um sjokkið sem hann verður fyrir að sjá grútskítugt fólkið í moldarhúsunum...

jæja, nóg af röfli, fátt drifið á daga mína undanfarið...

posted by Huginn 3:54 e.h.
|

sunnudagur, júní 27, 2004

Þetta Partý hjá Ingó var eitthvað það skemmdasta sem ég hef nokkru sinni mætt í. Mætti þangað um ellefu leitið enn nokkuð þunnur. Fljótlega voru allir orðnir vel hífaðir og ruglaðir. Videokamera var á svæðinu svo það er eflaust til eitt og annað óprútt á filmu. Einhver þjóðverji sat þarna og Erik var að taka atriðið úr "Eurotrip", marserandi í nasistastíl fyrir aftan hann og ég var að drepast úr hlátri. Sieg Heil kveðjan á fullu. Þarna sungu menn klassíska slagara á borð við "Egill er hommi". Það var hrikalega fyndið. Tókum þetta í sama stíl og fagnaðarhrópin á FH leikjunum sem við erum þegar orðnir frægir fyrir eftir að hafa aðeins mætt á einn leik, og þeir fengu 100.000 kr. verðlaun! Þær ættu að sjá sóma sinn í að hella okkur stuðningsmennina fulla!
Telpur einhverjar mættu þarna líka sem æsti karlpeninginn upp. Menn voru eins og hýenur í kringum þessar ungu sálir. Svo var Gulli fenginn til að kýla nokkur högg í belginn á mér en eitt misreiknaðist og fór í olnbogann sem var nokkuð sárt... Fleiri masókista-sjálfspyntingar voru stundaðar á meðan við hlógum að páskafylleríinu þegar Gulli híddi mig með belti. Það var drullu fyndið! Já, kann að hljóma sjúkt enda var þetta helskemmt partý! Egilll blessunarlega skutlaði okkur í bæinn. Þar voru tvær 14 ára stelpur blindfullar! Lágu nánast í jörðinni. Síðan skreið Hallur inn á danska sendiráðið og Erik tók mynd af glæpnum.
Ætlunin var að hittast á Grandrokk svo við sem komum í fyrstu ferð biðum þar. Hitti ungar systur sem fengu mig út í að semja ljóð. Hef nú ekki stundað slíkt um nokkurt skeið og blindfullur í þokkabót svo útkoman var ekki neitt svakaleg, skrifuð á lítinn krumpaðan gulan "sticker" miða.

Í viðjum hjónabands
Sálin situr fangin
lágvær öskur andans
bæld og bangin

Rís upp persóna
í vonarósk og gleði
Hljómar þinna tóna
Líf og hamingja að veði

Jaa... svo bara þetta klassíska bæjarrölt. Nei, auðvitað. Hallur var að þukla á einhverri konu þarna. Mjög fyndið.. Erik lág í jörðinni hlæjandi svo ég þurfti að toga hann upp. Sagan segir að gummi hafi villst heim til hennar seinna þetta kvöld. Ég og Ingó, heimish og Úlli vorum að trítla að leigubíl þegar einhverjir tveir gaurar taka erfiðleikann á þetta. Ingó bað þá að hætta þessu og láta okkur í friði en þeir héldu þessu áfram. "Slágumst, tveir á tveir" og þannig var ég einhvernveginn kominn inn í þessa skemmtan. Fyrst ítrekað sagði ég þeim að koma sér og hætta þessum erfiðleikum en sá hinn meira drukkni var kominn í bardagaham og þeir tuskuðust eitthvað til. Hinn hljóp nú bara burtu. Minn hlutur í þessu var því bara eitt Kung Fu og svo bara hypjuðum við okkur fljótlega... Ég og Úlli átum á Esso og svo bara í háttinn. Nýji hundurinn er búinn að sundurnaga heyrnatól og fleira inní herberginu mínu. Skeit líka á gólfið!

Og já, tvær stórar ákvarðanir eru að formast í loftkúlinni. Ég er hættur að vinna í þessari skáldsögu sem ég var að skrifa. Hún er bara of léleg og hrá. Byrjaður að skrifa aðra sem er enn bjánalegri. Seinni ákvörðunin er sú að skoða aðeins leiklistarnám hjá New York Film Academy. Ég hafði á sínum tíma langað að fara út. Eiginlega ákveðið að fara í stutt námskeið en nú er ég jafnvel að fara að skella mér á ár. Kostar reyndar 1.200.000 en annars bara nett. Ingó ætlar í sama skóla, reyndar í London en ég færi sennilega til L.A. ef ég kemst inn. Hann reyndar að fara í kvikmyndagerðina. En já, þetta er nokkuð stór ákvörðun. Alltaf langað aðeins að prófa leiklistina meira og jaa... þetta er akkurat rétti tíminn!

posted by Huginn 9:53 f.h.
|

laugardagur, júní 26, 2004

Jæja, myndir á http://www.fhingar.is af ferðinni til Skagans um daginn með FH. Ég með eitthvað Evil look á annarri en í bakgrunni með flautu og bjór á hinni. Gummo með blysið. FH-ingar valdir bestu stuðningsmennirnir fyrir prúða og góða framkomu! muhaha... vorum nú ekkert allt of prúðir þarna. Fór í veislu hjá frænda mínum í gær. Sötraði mjög mikið af áfengi og farinn að blanda bláan Smirnoff enn og aftur 50% 50%. Föður mínum blöskraði þessi blanda, aldrei séð annað eins gert og þóttist vilja fá sopa þegar ég var hálfnaður en aldrei fékk ég nú glasið aftur. Eflaust hellt þessu niður bannsettur. hehehe.. Kíkti niður í bæ með nokkrum ættingjum, þar á meðal veisluhaldara. Frekar dapurt. Klukkan orðin margt og við ráfuðum milli staða... Hitti Óla Marteins, hefði betur tillt mér þar en fljótlega var maður kominn inn á aðra sorglega staði og reyndist mjög döpur bæjarferð. Partýið hinsvegar fínt, sjá ættingja hoppa og skoppa, dansa og tralla. Það er víst "Metallica" partý í kvöld... spurning hvort maður láti sjá sig þar. Já, kíktum á þessa ljósmyndasýningu í kringlunni og svo á Kenna sem er þessa dagana í 1 sæti yfir skyndibita.

posted by Huginn 1:31 e.h.
|

fimmtudagur, júní 24, 2004

ahrrg!! var búinn að skrifa og skrifa og allt datt út... RUSL!

Ég skellti mér á gólfnámskeið, byrjaði á mánudag og búinn með 4 af 5 dögum. Síðasta skiptið verður á morgun. Sökum höggþunga þurfti ég að nota verri kylfu en aðrir í hópnum. Það dugði þó ekki til að hemja mig :) og á þriðjudag þurfti að skjóta ská yfir völlinn svo boltinn færi ekki í bíla og fólk á næsta velli. Í lok þess tíma var ég farinn að skjóta attur að bílnum og rétt hjá fólkinu! (það hafði fært sig fyrri daginn útaf öllum boltunum sem ég var að þrykkja þangað).

Það er sem ég telji mig geta drepið golfboltana með því að þrykkja bara nógu andskoti fast í þá.

Miðvikudaginn æfðum við skot úr bunker, nákvæmni og pútt. Það var allt farið að ganga vel, tók einhver 12 skot í röð allt á svipað svæði. Svo í dag kepptum við á litlum æfingavelli. Kom aldrei í ljós stigaskorið heldur dróg hún út vinningshafa og hlaut ég "Bjartasta vonin" og fékk að launum golfkúlur, tí og fleira smádót. Ég og Árni félagi ætlum jafnvel að kíkja svo í Keflavík í golf yfir helgina.

Á þriðjudag gengum við Erik upp Helgafellið og lág sú hnáta við fætur vorar sigruð og baðst lausnar. Eftir þetta skemmtitrítl fórum við í sund og hittum Hall sem á víst 30 afmæli bráðum.

Hef legið mikið yfir Rússlands-info. Það er heljarinnarvesen með vegabréfið. Það þarf víst að fá "boð" frá einhverjum í rússlandi. Hótel dugar en þá þarf maður að hafa bókaða gistingu nákvæmlega þá daga sem maður vill vera. Það er pirrandi fyrir ferðastílinn, viljum vera frjálsir og óbundnir af ákveðnum stöðum. En ég reyni að redda þessu einhvernveginn næstu daga...

Missti nú af leikjum í þessarri viku, og mestum hluta stórrleiks Englands Portúgals en sá þó nokkur gullin brot! Þvílíkur leikur! Snilld að Portugal vinnur einungis sökum þess hve sorglegt er að allir skuli halda með Englandi eingöngu afþví að þeir hafa mestu "commercial" viðbjóðs deild í heimi! Geta þá engir aðrir verið góðir í knattspyrnu? Þvílíkur uppblástur á getu Englands alltaf útaf því hve vel markaðsett deildin þeirra er... en það er bara sitthvor osturinn! (eða eitthvað). Reyndar eru þeir með gott lið núna en þykir bara skemmtilegra að heimailiðið haldi áfram... Sé að Auður ræðir um boltan í commentum, já, ég skil ekki hvaða rugl það er að hafa þetta ekki á Sýn eða sér rás! Virði rétt þeirra sem ekki nenna að horfa á þessa bölvuðu uppblásnu gúmmítuðru! :)

Joe Smoe á Popptíví... muhahah... frekar b-flokks þættir en samt fyndið hvað gaurinn er mikill eyrðarleysingi. Mættur í þættina einungis útaf því að hann hafði AKKURAT EKKERT betra að gera í lífinu. og helsta refsing fyrir að tapa keppni er -> Þurfa að fara að vinna 9-5 vinnu aftur! haha... þvílík snilld!

Já, svo gleymdi ég matarboðinu auðvitað. Kíktum til Egils í mat, ég, Erik, Biggi Kóngur, Helgi og kona hans Anna. Ég var reyndar að frétta það fyrri fáeinum dögum að þau eiga von á barni. Vita ekki hver er faðirinn... En allavegana. Mjög góður matur sem Egill eldaði, Lambakjöt og dýrindismeðlæti. Strákurinn fær A++ í mínum kokkabókum. Svo fórum við a hjálpa helga við að flytja. Held þetta sé í þriðja sinn í vikunni...hehe... og ég spyr, fær maður ekkert Diploma? þetta fer að verða 18 eininga nám ef svo heldur áfram sem horfir... :) jæja... þetta var reyndar fínt sprell, strákurinn búinn að kaupa sér þessa líka glæsilegu íbúð og býðst ég her með til að passa krakkann þegar hann verður orðinn 18 ára og þarf á djamm og kvennaráðleggingum að halda!


posted by Huginn 6:49 e.h.
|

sunnudagur, júní 20, 2004

Djöfull er gaman af Evrópumeistarakeppninni. Þetta er eðal sjónvarpsefni! Spurning um að fá menn til að veðja á úrslitin? Þegar komið er í 8 liða úrslit...

posted by Huginn 2:27 e.h.
|

laugardagur, júní 19, 2004

Þetta föstudagskvöld var rólegt. Hjálpaði Helga félaga að flytja. Sá mína fyrrverandi ólétta og þótti nokkuð skondið á sama tíma og furðulegt. Svo bara sátum við félagarnir heima hjá Erik að gera lítið sem ekkert í allt kvöld. Móðir mín sem hefur nú gert margt skrautlegt ákvað sísvona að birtast í dag með Taco Bell hund, lítinn rottu-unga, og faðir minn ekki á eitt sáttur með tegundina! Tja, litli naggurinn vælir og vælir, sofnaði næstum í fanginu á mér letiblóðið. Ég og Egill íhugum að kíkja saman út, jafnvel til Rússlands. Strákurinn á sumarfrí og ég er víst gimpurinn sem á að plata með út. Ég bara veit ekki, þetta er hálf vonlaust líf hjá mér. Mig langar ekkert sérstaklega að ferðast meira en mig langar samt eiginlega heldur ekki að hanga hérna á Íslandi. Voðalega dapurt eitthvað. Líklega endar þessi óvissa um leið og ég tek þá drastísku ákvörðun að fara að vinna, kaupa íbúð, finna mér konu og grýta hratt og örugglega niður einu ofvirku barni!?

Jú, gleymdi frá því að segja að ég lék tveggja línu hlutverk í stuttmynd sem Ingólfur félagi minn er að gera. Svo þurfti nú ekki að spyrja að því en hann sagði mér að ég væri besti leikarinn so far í myndinni. Tjaa... lág nú í loftinu! :) Ætti ég kannski að fara til LA í leiklistarnám? Það væri ævintýri en kostnaðarsamt, líklega ein milla eða jafnvel meir... jú, vitið, þessi hugmynd blundar reyndar í mér bara upp á grínið, ekki að ég geri mér væntingar um frægð og frama í þeim bransanum. Væri bara fínn lokakafli í þessu flippi mínu áður en ég tæki aftur alvöru nálgun á blessað lífið.

TACO BELL, þarf núna bara að kenna hundinum að rífa kjaft eins og í auglýsingunum þeirra!

posted by Huginn 8:05 e.h.
|

föstudagur, júní 18, 2004

Ehh... Annar hver dagur í mínu lífi er þynka. Þetta er komið gott í bili. Ég fór á FH - ÍA leikinn á skaganum með rútu. Algjör snilld, örfáir sem mættu. 15 með rútunni og ca. 15 á einkabílum en það var dúndur stemmari. Lætin í okkur var margfalt meiri en 300 manna stuðningsliði ÍA. Vorum vel drukknir, félagarnir allir mættu með blys til að fagna og eftir fyrsta mark FH kveiktum við á blysi og fögnuðum sem geðveikir værum í beinni á Sýn. Þetta vakti litla lukku en ég og Gummi trítluðum á local bar og fórum að sötra. Þar var leikurinn í beinni og með því fyrsta sem við sjáum er annar félagi í vandræðum meðb lys í hendi og öryggisvörður að taka af honum gripinn. Mjög fyndið. Gummi að míga og lögreglan kom og ég reyndi að tefja með því að leggjast fyrir bílinn. Það virkaði illa, lögreglan kom út en ég talaði hana fljótt og örugglega til að sekta ekki strákinn fyrir að kasta hlandi á almannafæri. Fór á víkingahátíðina með Brósa litla, þar var fín stemming þó fáir væru mættir. Búinn að lifa á skyndibita síðustu daga því ég er alltaf þunnur og þá er safaríkur feitur biti eina sem virkar. Fylleríið á miðvikudag var ágætt eftir leikinn. Hoppuðum úr á gatnamótum og fengum Egil til að skutla okkur í bæinn. Þar kíktumvið í lítið partý. Gummo fékk þá hugmynd að ráfa um með 2-3 metra spítu um allt inn á alla bari. "Það má ekki vera með spýtu hérna inni!" voru flestir bareigendur fljótir að segja. Ég sötraði töluvert... mjög falleg kona sem reyndi við mig, kallaði á mig og sagðist hafa verið að horfa á mig en viti menn. Ég var svo drukkinn og ruglaður að ég var ekki samræðuhæfur. Var eiginlega bara leiðinlegur og erfiður drengur. Kvaddi því fljótlega það unga fljóð og hélt áfram. Hitti gumma og þá á Viktor, eftir það vorum við fyrir utan. Gummi fann þessa líka undurfögru útblásnu gyðju, sem fyrir tilstilli einhvers fíflagangs í okkur fór allt í einu að ráðast á aðra konu. Það varð ekkert alvarlegt en samt fyndið. Þessi kona sem gummi fann sér var fantur og óféti! :) hehe.. jæja... Ég og Úlli fórum svo úr hjá Esso og sváfum þar úti í sólinni fram á morgun bara í léttu chilli. Æjj, maður gengur ekki heill til skógar þegar að fylleríi kemur!

posted by Huginn 4:15 e.h.
|

miðvikudagur, júní 16, 2004

Djö... 200 blogg komin. Þetta orðaflaum mitt fer nú að verða komið gott. Måske að maður hætti bara að blogga, hef nú hvorteðer varla sinnt þessu undanfarið. Jæja, Ég fór víða um landið eftir blessaðan Seyðisfjörðinn. Til Egilstaða, Akureyrar þar sem ég kíkti í bíó. Myndin var Day after tomorrow og fékk mig reyndar aðeins til að íhuga hitastigsbreytingar á jörðu og framgöngu okkar við náttúruna. Ekki frá því að hitastigshækkunin núna sé góð með tilliti til þess að reglulega hefur þetta nú breyst í ísöld en spurning hvort þetta hafi einhver áhrif á haftsraumana? Á leiðinni til Ak. kom ég við hjá Dettifossi, asskoti fallegur foss og sá vatnsmesti í Evrópu segja þeir.

Fórum til Húsavíkur en fyrirfórst að kík´ja á reðursafn Íslands sem ég hélt að væri enn í Reykjavík. Fórum hinsvegar á hvalasafnið sem er nokkuð vel gert, líklegast eitthvað flottasta safn hérlendis.

Kíktum í bæ Eiríks Rauða sem hefur nýlega verið byggður og þar eru einhver létt-rugluð dönsk gella að kynna siði víkingana og þar hituðum við brauð og átum, skar af kjeti smástykki og át hrátt. Mjög sniðug túristaskemmtan og gaman að sjá þegar Íslendingar taka sig til við að byggja upp ferðamannastaði umhverfis landið.

Komum við á Stykkishólmi og sigldum út til Flaeyjar. Fínt að trítla þar um og spjallaði ég við bóndann þar. Komum rétt við í Húsafelli og viti menn, einn af þessum 100 sem fengu víst flensu þaðan er ég. Komst í snertingu við fáeina starfsmenn þarna og kom heim með ælupest. Djöfulsins viðbjóður, hiti fylgdi svo ég var hálf skemmdur þarna. Svo bara chill í sólinni, setið og sötrað kakó, ráfað eitthvað um næstu daga...

Kíkti á fyllerí á Laugardaginn síðasta, eða það sem átti að vera fyllerí. Ég kom manna síðastur og varð manna drukknastur því ég blandaði 50% 50% vodka bláum og kók. Rosaleg blanda sem enginn vildi smakka á. Tók víst í hönd lögreglukonu sem mætti á svæðið eftir svívirðingar einhvers við nágrannnann. Kyssti hana að herramannasið (frönskum sið?) á handarbakið og ætlaði að tók um mitti hennar og gerði mig líklegan til að kyssa hana þegar ég var stöðvaður af félögunum. Ég man nú ekki eftir þessu en hef nú aldrei borið ýturvaxna virðingu fyrir yfirvaldinu. Æjj, ég var svo drukkinn (líklegast aldrei verið eins weisted) að eftir að við komum í bæinn sáu menn ekkert vit í öðru en að láta skutla mér heim í rúm. Erik reddaði því blessunin. Drullu fyndið þarna um kvöldið, þá var dregið upp fánastöngina brjóstahaldari í stærðinni 46 að ég held, massa stórt, passaði sem fínasta munkahúfa á höfuð mitt. Þetta var afrakstur Gumma um helgina áður þegar hann hitti stóra en undurfagra konu og átti með henni himneska kvöldstund.

Fór á mánudaginn upp í bústað að hitta foreldrana. Þeir vildu endilega fá mig til að hjálpa þeim við að planta niður trjám á þessarri ýturvöxnu bústaðalóð rétt hjá Laugarvatni (reyndar nær Sólheimum). Gróf einhverjar 60 hour yfir þvera lóðina (10 hektarar) og svo hentum við þessum Alaska0spum niður. Restina af tímanum notaði ég í körfu, sund, veiði með litla bró. Hann húkkaði einn vesælan fisk sem var eldaður og étinn um kvöldið.

Jæja, svo er það bara boltinn, búinn að stara á leikina einn af öðrum og orðinn nokkuð spenntur. Mjög góð keppni sem komið er og það er prógram næstu daga...jaa..ekki nema ég skelli mér til Spánar í viku. Heildarkostnaður við Íslandsferð, tæpar tvær vikur, var 100.000. Nokkuð dýrt borið saman við önnur lönd en jæja. Ef ég fer til Spánar í viku þá er það líklega annar 100.000 kall.... svo bara kominn smá vinnupúki í mig. Á ég að sækja um störf...? Það er spurning sem veltist um í huga mér því bráðum fer nú að verða komið nóg af ferðabrölti.....

posted by Huginn 6:15 f.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco