Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

sunnudagur, október 30, 2005

Ég fór í sjötugs afmæli ömmu minnar sem haldið var á Þingvöllum á Laugardaginn. Þar stóð ég fyrir allmiklu gríni, sagði meðal annars svæsnar sögur úr ferðalagi mínu frá Suður Ameríku yfir matarborðið, og gat ekki staðist mátið að drepa á öllu alvarlegra máli. Þá staðreynd, að þrátt fyrir að vera meðal elstu barnabarnanna væri ég sá eini í hópnum sem ekki væri genginn út, og þetta þrátt fyrir býflugnafræðslu frænku minnar. Af þessu hlógu viðstaddir en gerðu það ekki í tráss við væntingar mínar að vilja kynna mig fyrir einstæðum konum sem það þekkti. Sagði annars sögur af því þegar ég át apahendi í frumskóginum, þegar ég þurfti að fara á klósett um miðja nóttu í niðamyrkri þar sem var baneitraður snákur og mislukkuðu kvennafari þegar sex afbrýðissamir réðust að mér.. allt til að aukamatarlystina auðvitað.. en jæja. Þarna bragðaði ég á ýmsustu kjötmeti, þó ég hafi nú mestmegnis ruglað þeim nöfnum saman voru þar mættar til boðsins gæsir, hreindýr, rjúpur, endur, (og fleira er ég man ekki) og ekki síst hrefnukjöt. Það hefur mig langað að bragða á síðan við Guðmundur grilluðum Hrefnukjöt hér um árið (kveiktum reyndar í grillinu) í partí undir yfirskriftinni "Kill the whales". Ég ræddi einmitt við kokkkinn þetta kvöld og sagði honum að við hefðum látið kjötið liggja í bjór til að losna við lýsisbragðið og hann hló af þeirri vitleysu. Svo eins og menn muna var kjötið óætt vegna lýsisbragðs, nema auðvitað Hallur, hann át þetta með bestu lyst og fékk restina með sér heim í poka. Þó þetta hrefnukjöt hefði ekki verið með lýsisbragði var lítið varið í það.

Búinn að fá inngöngu í leiklist í NYFA en veit ekki hvort ég slái til. Fékk reyndar óvart senda staðfestingu um inngöngu í leikstjóranám en ég leiðrétti það með skeyti.

posted by Huginn 7:19 e.h.
|

föstudagur, október 28, 2005

Er að íhuga að fljúga til London 11.nóv að sjá þar í litlu bíóhúsi stuttmyndina sem ég var að leika í, gæti verið gaman að sjá sjálfan sig á bíótjaldi :) En svo veit ég ekki, 50.000 kall, kannski bara betra að bíða eftir að fá eintak á DVD.

Annars er ég að fara í sjötugsafmæli hjá ömmu minnar á morgun á Þingvöllum, en það getur nú varla talist skemmtileg keyrsla að fara þangað með litla sem enga færð í þessu snjófoki.

Enn hef ég ekkert heyrt frá þeim 7-8 manns sem eru að lesa fyrri helming sögunnar, svo ég er farinn að halda að ég hendi þessu í ruslið og klári bara skáldsöguna... nú er þunglyndi ljósleysis að ná tökum á mér og ill sjónvarpsdagskrá er hægt og sígandi að drepa mig... finnst orðið 70-80% af myndum sem ég horfi á rusl, en auðvitað stöku mynd slær í gegn, var að horfa á Napoleon dynamit og ég gat ekki hætt að hlægja. Bíð svo spenntur eftir Torrente 3 sem er víst komin úti (eða alveg a koma). Verk er kolféllu hinsvegar var Hichhiker´s guide to the galaxy (bókin þótti mér góð á fimmtánda aldursári) og Envy með Ben stiller, það var illt og óþæginlegt að horfa á hana.

Aðeins þrír menn sem standa eftir í keppninni. Ekki getur talist mikið úthald að endast í tvær til þrjár vikur eins og hinar bleyðurnar!... maður á þá sjens eftir allt saman að vinna þetta!

posted by Huginn 5:28 e.h.
|

mánudagur, október 24, 2005

Ég er búinn að senda á nokkra mæta menn fyrri hluta ferðasögunnar. Þeir sem vilja lesa yfir geta þá sent mér póst á kaupsala@hotmail.com og ég sendi söguna um hæl...

Þá er það seinni hlutinn, ég þarf að ráðast í að lesa hann yfir. Ætla að prenta bókina í 10 eintökum fyrir jól bara til gamans, get þá skellt slíku á borð útgefenda og séð hvað verður. Ætlaði líka að reyna að klára skáldsögu en næ því ekki, þar sem ég er að fikta við skrif á nýrri og tekur það allan tíma í nóvember.

Jæja, fátt að gerast. Aðeins fjórir eðaldrengir af 9 þáttakendum standa eftir í keppni, aðrir hafa annaðhvort fallið fyrir eigin hendi eða ráðabruggi kvenkinda. Ég er enn í keppni, en sé varla fram á nema 2-3 sætið. en til mikils er að vinna, 9000 krónur í pottinum!! Vuhu! Það má kaupa sér nokkra bjóra fyrir það. Talandi um bjóra, desember nálgast, jafnvel að ég taki 30. nóvember á miðnætti, stilli upp 5 staupglösum og skvetti í mig þegar klukkan slær tolf. Eða eru þrjátíu og einn dagur í þeim mánuði... ekki hugmynd...ekki frekar en að ég kunni stafrófið..

posted by Huginn 7:47 f.h.
|

mánudagur, október 17, 2005

Sótti um leiklistarskólann New york film Academy (nyfa.com) i kvöld... 8 mánaða leiklistarnám í Los Angeles í Universal studios settinu. Þetta er gert til gamans til að sjá hvort ég komist að, en ekki í meira sprelli en svo að ég greiddi 2000 krónur fyrir svo einhver alvara liggur nú að baki. Annars er ég að skrifa handrit að ferðaþáttum sem ég íhuga að gera. Ferðalag í 1 ár um hálfan heiminn og taka það upp, mjög litrík svæði sem ég íhuga að heimsækja og þema þáttanna yrði hressilegt. Sjáum til hvað verður. Svo annar möguleiki, fara út í pólitík, fá félaga til að hjálpa við að smala fólki og hella sér af fullum krafti út í þann leik. Eða bara að fara að vinna... hvað finnst fólki að maður eigi að gera? Nei, býst nú ekki að heyra neitt af viti frá ykkur bölvuðum! :)

posted by Huginn 5:04 e.h.
|

sunnudagur, október 16, 2005

R.I.P., dánarvottorð nr. 2 hefur verið gefið út í keppninni. Þar fór góður maður en veikgeðja undir áhrifum sopans. Ekki beit á hjá dýrinu á Victor, síðasta hálmstrói drukkinna manna og þéttra belladonna, og því fór sem fór. Ég hef öruggar heimildar fyrir því að sá þriðji falli í kvöld, þá er hann á stefnumóti við kvensu er hann kynntist nýverið, undir yfirskriftinni "videokvöld", jafnvel ég einfaldur skil hina réttu fyllingu þess orðs. Skutullinn á lofti og nú er SEX menn enn inni í keppni...

posted by Huginn 5:29 e.h.
|

laugardagur, október 15, 2005

Einhver gaukur úti í bæ hvíslaði því að mér að það sem ég setti hér inn í gríni og ætlað félögunum hafi ratað í DV. Því, eðli málsins samkvæmt, fór fram smá ritskoðun. Ekki er þessi umfjöllun nú beint til þess gerð að auka hróður manns hjá kvenkyninu! En keppnin heldur áfram, einn er fallinn en 8 standa enn linir á sínu.

posted by Huginn 9:57 f.h.
|

mánudagur, október 10, 2005

Enn dregst að senda út fyrstu drög af ferðasögunni til yfirlestrar. Lítið rekuren hér fara drög af baksíðu.

Í Suður-Ameríku stinga ævintýrin víða upp kolli. Sögumaður dregst inn í stjórnarbyltinguna í Ekvador, glímir við krókudíl í Amason, fer um fornar slóðir indjána í Peru, sefur á fljótandi reyreyju á Titticaka vatni og þarf að hlaupast undan vopnuðum ræningjum víðast hvar. Stórbrotin náttúran setur líka strik í reikninginn. Við fótspor útdauðra risaeðla í Bólivíu er sögumaður hætt kominn ofan í neðnjarðarhellum. Í Argentínu traðkar hann um lönd og gistir í húsum ókunnugra. Vart er svo hægt að stíga niður fæti í Chile án þess að kljúfa gjósandi eldfjöll og hrasa um önnur náttúruundur.

Á ferð sinni um álfuna kemst sögumaður í kynni við ýmsa skrautlega fugla, einn Argentínumann sem talar íslensku, snælduvitlausan Íra, Hollending með kvenleg hugðarefni og Normann sem drepur ferðafélaga sinn. Sannsöguleg reisusaga sem er skáldskap ótrúlegri.

Huginn Þór Grétarsson, höfundur bókarinnar, hefur farið víða um heim og lennt í ótal raunum. Ferð hans um Suður-Ameríku er svo sannarlega engu öðru lík. Þetta er bók sem ætti ekki að fara fram hjá neinum ferðaglöðum Íslendingi.


En ég er löngu búinn að missa sans fyrir hvort þetta sé að virka. Ætli maður hvíli sig ekki bara á skrifum í smá tíma og fari að gera eitthvað uppbyggilegt...

posted by Huginn 5:34 f.h.
|

mánudagur, október 03, 2005

Hættur að drekka, byrjaður að lyfta per dag og hef látið af öðrum ósiðum. Betrumbót? Eða líkast til bara leiðindi... Er í keppni við móðir mína um að láta djamm vera fram í desember, 10.000 kall undir, þá getur maður aftur hellt ofan í trekktina.

Annars ganga skriftir la la, þykir ferðabókin of hrá, of hratt farið yfir því efniviðurinn er of mikill til að troða almennilega á svo fáar síður. En er líka að ljúka við á þessu ári skáldsögu sem félagar geta fengið í jólapakkann, hún er léttrugluð á nýjan hátt, full af skemmdum húmor sem ókunnugt fólk hefur þó hrósað. En jæja, með nýju ári koma ný plön, er bara að fara yfir kostina núna...

Verð nú að taka klukkinu þó ég ætli ekki að klukka aðra, tek þá bara þeirri böl er fylgir því að láta ekki slíkt ganga.

1. Það hefur ágerst síðustu daga að ég hafi jafnvel ekki farið frammúr rúminu fyrr en klukkan sjö að kveldi!! Þá með fartölvuna tengda við netið, setið við skriftir og horft á sjónvarpið og hlustað á rokk í útvarpinu! Hvað meira þarf maður? (Eitt stykki konu kannski..)

2. Er farinn að lyfta daglega, en spring líklega á því eftir tvo-þrjá daga. Þar í Sporthúsinu er ég í alvarlegri hættu af freistingum nöðrunar því slíkir kenlíkamar, musteri ástarinnar, ganga þar í sífellu framhjá að mér blístendur.

3. Eitt af mínum stærri skylduverkum eftir öll þessi ferðalög er að viðhalda pennasambandi við aragrúa fólks, þá sérstaklega telpur hér og þar svo ruglandi getur orðið...

4. Þó margir hafi staðið í trú um annað, þá er ég með ljóst undurfagurt skegg! Þetta nefni ég þar er borið hefur á því að menn hafi fullyrt það gegn sinni betri vitund að skeggið sé rautt.

5. Er að breytast í bókaorm, hef nú sjö bækur á náttborðinu!! Er að lesa í þremur í einu og eftir hinum bíð ég spenntur, og við bætast tvær rússneskar er CrimJim tróð upp á mig, ein um klámfengnar játningar Pushkins. 9 samtals!

Og þar með líkur þessarri bloggfærslu.

posted by Huginn 5:32 f.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco