Bókin er komin út!!

Bókin er komin út!!

laugardagur, janúar 28, 2006

Fimm dagar í brottför!

Það eru fræknir fjórir sem leggja í hann á vit ævintýranna til USA og Perú. Mo, Heimo, Erik og Egill. Við byrjum í New York í tvær nætur. Lendum þar á fimmtudegi 2.feb og fljúgum áfram til Lima, höfuðborgar perú, á laugardaginn 4.feb. Nú er bara að ´bíða... ferðin hefst í Leifstöð að vanda, þar sem við munum sitja með Víking bjór á leið í ruglið.

posted by Huginn 7:59 f.h.
|

föstudagur, janúar 13, 2006

Talandi um Föstudaginn þrettánda...

Ég var ný kominn úr "vinnunni" á leið heim. Fékk til þessa lánaðan drulluskítugan vinnubíl föður míns. Rúðan var drulluskítug. Ég var á leið heim og sólin stóð beint í andlitið á manni. Var að miklubrautinni hjá kringlunni, gatnamótunum þar, og sá ekki neitt, var ð rýna hvort það væri grænn eða rauður kall, rétt gat séð í gegnum smá blett á rúðunni, en rúðuþurkurnar virkuðu ekki. Keyrði þá "yfir" en þá endanlega kom massiv sól beint í augun og endurkastaðist úr snjónum svo ég varð alveg blindur, gjörsamlega, drulluskítugar rúður líka. Í nokkrar sekúndur taldi ég mig vera á réttri leið, með umferð allt í kringum mig, en tja, svo sé ég birtast fyrir framan mig snjóskafl. Ef ég hefði farið í hliðina á honum eða reynt að bremsa hefði ég getað kastast á aðra bíla, svo ég dúndraði upp á skaflinn. Bölvað, vinstri hliðin upp á hann og bíllinn snérist svo eftir nokkra metra uppi og é gendaði nánast uppi á grasi. Held að bíllinn sé í lagi, en skjóðurinn má ekki við miklu, svo gamall greyið. Til sárabóta sagðist ég bjóða foreldrunum út á Indó-austurlenska félagið veitingastaðinn áður en ég fer út...

Þetta er í fyrsta skipti sem ég ek á...

posted by Huginn 3:50 e.h.
|

þriðjudagur, janúar 03, 2006

2.febrúar -> New York, USA.

3.febrúar -> Lima, Perú.

Ég og Heimo búnir að negla flug, tja, svona næstum því, eigum eftir að festa seinni legginn en það verður gert í kvöld. Stefnan er að gera heimildarmynd "Á slóðir Inkanna" ásamt því að njóta lífsins löðrandi sveittir í sólinni.

16. apríl -> New York, USA.

18. apríl -> Keflavík, Ísland.


Var búinn að fá 3 útprentaðar bækur í hendurnar af reisubókinni minni. Er að prófarkalesa sjálfan mig núna og fer með á útgefendur fyrir brottför 2.feb. Þá kemur í ljós hvort allt þetta strit hafi verið til einskis.


Hef slappast niður í ræktinni síðar kortið mitt rann út en ætla að kaupa árskort í Suðurbæjarlaugina og Nautilus ræktina á eftir eða morgun og taka mánuð fyrir brottför. Þeir ætla svo að frysta kortið fyrir mig í tvo mánuði þar til maður skilar sér aftur á klakann.

Gamlárskvöld! Talaði dönsku, spænsku, íslensku og ensku þetta kvöld. Byrjaði heima með Heimo, Ingo, Úlla, Bókinni. Tróðum úlla í skottið á leiðinni inn í Reykjavík. Fyrst voru það tvær lögulegar danskar, dansaði massivt við aðra þeirra, báðar lögulegar og við piltarnir allir slefandi yfir þeim. Svo urðum við viðskila, ég hitti á einhverja suður ameríku snót og ræddi á helskemmdri spænsku við hana. Annars var þetta bara langt og léttruglað fyllerí, man að ég var að rugla í Agli þáttastjórnanda og reyndar Agli dyraverði og vöðvabúnti líka....

Það er svo hugmyndir uppi um aðra spræka heimildarmynd þegar "Á slóðir Inkanna" lýkur. Þar er um kómíska ræmu að ræða. Bæ.

posted by Huginn 8:20 f.h.
|

Powered by Blogger

"Háskaför um Suður-Ameríku"

Personal Info!
Nafn: Huginn Þór
Aldur: 27 ára (28 13.des)
Hæð: 191cm Þyngd: 86kg
Menntun: Viðskiptafræðingur
Flensborg/Háskólinn í Rvk.

Email/MSN:
Kaupsala@hotmail.com
Sími: 866-8800


Past
current


Aðrir bloggarar!

GUMMO!
Árni
Gunna Bekkjarfélagi HR
LJ Eyjagella
Rebekka
Dr. Hilmar
Geir Melur
Atli Týr Bjórsumblari
Erik Auga
Birkir Brósi
Aðdáendaklúbburinn Dagbj.
Emma
Mr. Beggz
Ómar a.s.a. Dari
Heiðar "snyrtimenni"
Thordur Spekingur
Don Leifur felagi
Daði Magg
Haukur ferðalangur
Svenni samf.
Steini kammerat
Ein Pólitísk
Myndband mán.
Ferðablogg



Myndir

Mynd af mér
Mo, Heimtospaino og Elvis!
Vangefid Look
Bilge
Ég í Basel, Sviss
I tvottahusinu
Fjöldi mynda frá arab-ferð
Alcatraz, San Fransisco